Varafréttastjóri

Árni Sæberg

Árni er varafréttastjóri á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjar­lægi „níðstöngina“

Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, flutti í dag árlega ræðu sína á Alþingi um ósk hans um að listaverkið Svarta keilan, sem stendur við þinghúsið, verði fjarlægð. Hann kveðst ekki hafa trú á öðru en að nýr meiri hluti borgarstjórnar láti verða af því.

Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern?

Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu boða til fundar um boðaða skattahækkun á fyrirtæki í fjármálageiranum. Fundurinn hefst klukkan 13 og má sjá í beinni útsendingu á Vísi.

Hafi á­hrif á tugi ung­menna: „Þetta eru vel launuð störf“

Formaður Starfsgreinasambandsins hefur miklar áhyggjur af ákvörðun forsvarsmanna Elkem um að rifa seglin verulega í sumar vegna verndarráðstafana Evrópusambandsins vegna járnblendis. Ákvörðunin komi til með að hafa vel launuð sumarstörf af tugum ungmenna.

Slökkva á ofni vegna verndar­ráð­stafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“

Forsvarsmenn Elkem á Íslandi hafa ákveðið að slökkva á einum þriggja ofna járnblendisverksmiðju félagsins á Grundatanga í sumar. Þetta er gert vegna verndarráðstafana Evrópusambandsins vegna kísilmálma. Með því að draga úr framleiðslunni yfir sumartímann getur félagið haldið öllu fastráðnu starfsfólki í vinnu en lítið sem ekkert verður ráðið í sumarstörf.

Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga raf­virkja

Starfsmannaleigu hefur verið gert að endurgreiða starfsmanni sínum 15 þúsund krónur sem dregnar voru af launum hans vegna meints brots á húsreglum, en starfsmaðurinn leigði herbergi af starfsmannaleigunni. Þá var starfsmannaleigunni einnig gert að endurgreiða starfsmanninum ofgreidda leigu.

Ætlar að synda niður Lagar­fljót fyrstur manna

Sigurgeir Svanbergsson sjósundskappi stefnir á sögulegt sund niður Lagarfljót. Tímasetning er ekki enn ljós en kappinn stefnir á að láta til skarar skríða um leið og veður leyfir eftir sjómannadag. Tilgangurinn er að vekja athygli á þjónustu Píetasamtakanna á Austurlandi og um land allt.

Rafbyssum aldrei beitt oftar

Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs drógu laganna verðir rafbyssu úr slíðri eða ógnuðu með tækinu í þrjátíu málum og í fimm málum var því beitt. Þetta er mesta notkun rafbyssa á einum ársfjórðungi frá því að þær voru teknar til notkunar en á þriðja ársfjórðungi síðasta árs var rafbyssum beitt næst oftast, eða fjórum sinnum við handtöku.

Tók fjögur ár að slá föstu að sam­ræði við barn væri nauðgun

Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu í gær að karlmaður á þrítugsaldri hefði gerst sekur um nauðgun með því að hafa samræði við þrettán ára stúlku. Í héraði var hann sýknaður á þeim forsendum að stúlkan hefði veitt samþykki. Talskona Stígamóta gagnrýnir að barnið hafi ekki fengið niðurstöðu í mál sitt fyrr en rúmum fjórum árum eftir nauðgunina.

Sjá meira