Varafréttastjóri

Árni Sæberg

Árni er varafréttastjóri á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

„Ekki hlut­verk hins opin­bera að ýta sparnaði fólks í í­búðir“

Fjármála- og efnahagsráðherra segir markmið ríkisstjórnarinnar að stuðla að einföldun regluverks og að það eigi að vera einfalt fyrir venjulegt fólk að fjárfesta sparnaði sínum á Íslandi, enda hafi þátttaka almennings á hlutabréfamarkaði ýmislegt jákvætt í för með sér. „Við ætlum að hætta að ýta sparnaði fólks yfir í steinsteypu. Einhvern veginn höfum við endað í kerfi, þar sem stuðningur hins opinbera snýst fyrst og fremst að því að styðja við íbúðafjárfestingar. Það er ekki hlutverk hins opinbera að ýta sparnaði fólks í íbúðir.“

Bein út­sending: Kraft­meiri sparnaður í seilingar­fjar­lægð?

Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu og Nasdaq Iceland standa fyrir viðburði um möguleikann á upptöku fjárfestingarreikninga fyrir einstaklinga hér á landi. Yfirskrift viðburðarins er Kraftmeiri sparnaður í seilingarfjarlægð? og hann má sjá í beinni útsendingu á Vísi.

Kvika skráði ekki tugi þúsunda við­skipta og fær tug­milljóna sekt

Kvika banki hefur gengist undir sátt við Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands vegna brota bankans á ákvæðum reglugerðar um markaði fyrir fjármálagerninga, MiFIR. Bankinn lét undir höfuð leggjast að skila svokallaðri TSR II-skýrslu vegna 73.792 viðskipta á tímabilinu 14. desember 2022 til 7. febrúar 2024 og þarf að borga tuttugu milljóna króna sekt vegna þess.

Gabríel á bak við lás og slá fram á föstu­dag

Gabríel Douane hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til föstudagsins 13. febrúar að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á líkamsárás í miðborginni á laugardagskvöld.

Þor­steinn fær á­heyrn Hæsta­réttar

Þorsteinn Hermann Þorbjörnsson, sem var sakfelldur í Landsrétti fyrir að svipta sambýliskonu sína lífi á heimili þeirra í Naustahverfi á Akureyri í apríl árið 2024, hefur fengið leyfi til að áfrýja dómi Landsréttar til Hæstaréttar.

Fé­lag Skorra Rafns að kaupa Val­höll

Alva fasteignir, félag Skorra Rafns Rafnssonar, er langt komið með að ná samningum við Sjálfstæðisflokkinn um kaup á Valhöll. Enn á þó eftir að ganga frá lausum endum á borð við undirritun kaupsamnings. Skipulagsfulltrúi hefur tekið jákvætt í fyrirspurn Alva fasteigna um hótelrekstur í húsinu.

Rann­sókn á­fram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina

Rannsókn Lögreglunnar á Suðurlandi á andláti á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum er enn í fullum gangi, þrátt fyrir úrskurð Landsréttar þar sem gæsluvarðhaldskröfum var hafnað. Bráðabirgðaniðurstaða krufningar liggur fyrir.

Vægur dómur fyrir að á­reita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldurs­mun“

Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið dæmdur til fimmtán mánaða fangelsisvistar, sem er að mestu skilorðsbundin, fyrir að áreita átta stúlkur á aldrinum ellefu til þrettán ára kynferðislega á samfélagsmiðlinum Snapchat. Í samtölum sínum við stúlkurnar talaði hann mikið um útlit þeirra, bauð þeim í einhverjum tilfellum áfengi, sígarettur, rafrettuvökva og kynlífstæki og sagðist ekki vera barnaperri, þar sem slíkir löðuðust aðeins að börnum yngri en ellefu ára. Hann neitaði sök og bar meðal annars fyrir sig að hann hefði verið að grínast í stúlkunum.

„Full­yrðingar á­kæru­valdsins eru á sandi byggðar“

Þórarinn Arnar Sævarsson, einn eigenda fasteignasölunnar Remax, sem sætir ákæru fyrir markaðsmisnotkun telur fullyrðingar ákæruvaldsins um sekt hans á sandi byggðar. Í greinargerð hans kemur meðal annars fram að viðskipti hans með bréf í Kviku hafi numið 0,14 prósentum af heildarviðskiptum á ákærutímabilinu, þróun gengis félagsins hafi verið í takt við þróun gengis Arion banka á tímabilinu og hann hafi ekki reynt að hafa áhrif á dagslokagengi Kviku. Viðskipti hans með bréf í félaginu hafi aldrei hækkað gengið um meira en 1,5 prósent, sem er langt undir öllum viðmiðunarmörkum.

Sjá meira