Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Fjöldi atvinnulausra á aldrinum 16 til 74 ára var 13.100 í maí 2026, samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. 24.6.2026 10:30
Fyrrverandi eiginmaður Sturgeon í fimm ára fangelsi Dómstóll í Skotlandi hefur dæmt Peter Murrell, fyrrverandi eiginmann Nicolu Sturgeon, fyrrverandi forsætisráðherra Skotlands, í fimm ára og þriggja mánaða fangelsi fyrir fjárdrátt. 24.6.2026 07:18
Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Tekjur samstæðu Samherja námu 78,4 milljörðum króna á síðasta ári og nam hagnaður fyrir skatta, afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) 10,7 milljörðum króna og jókst um 1,8 milljarða milli ára. 23.6.2026 14:26
Gjörbreytt staða ef Íslendingar ganga inn í ESB Utanríkisráðherra Noregs segir gjörbreytta mynd blasa við ákveði Íslendingar að ganga inn í Evrópusambandið. EES-samningurinn myndi þó halda en staða Norðmanna veikjast. 23.6.2026 14:16
Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Bæjarráð Grundarfjarðarbæjar samþykkti á fundi sínum í dag viljayfirlýsingu milli sveitarfélagsins og JAE ehf. um mögulega uppbyggingu ferðaþjónustu í Grundarfirði – baðlón og lúxushótel. 23.6.2026 14:14
Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Landsvirkjun og Borealis Data Center hafa samið um aukin raforkukaup vegna uppbyggingar gagnavers Borealis á Blönduósi. Um er að ræða langtímasamning um kaup á 12 MW forgangsorku til viðbótar við núgildandi samning. 23.6.2026 14:00
Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Í skilaboðum frá meintum mannræningjum Nancy Guthrie, móður bandarísku sjónvarpskonunnar Savannah Guthrie, er fullyrt að Nancy sé látin. Hún hafi látist fyrir slysni og biðjast mannræningjarnir þar afsökunar. 23.6.2026 11:37
Ráðnir forstöðumenn hjá OK Gunnar Ingi Björnsson og Andri Tryggvason hafa verið ráðnir forstöðumenn hjá tæknifyrirtækinu OK. 23.6.2026 10:36
Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Sjóðfélagar Lífeyrissjóðs bænda (LSB) samþykktu einróma tillögu um sameiningu sjóðsins við Frjálsa lífeyrissjóðinn á ársfundi LSB sem haldinn var 19. júní síðastliðinn. 23.6.2026 10:02
Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Stjórn Orlofssjóðs BHM hefur ráðið Gissur Kolbeinsson í nýtt starf framkvæmdastjóra sjóðsins. 23.6.2026 09:49