Dagurinn þegar Bessastaðatjörn varð vettvangur harmleiks Í desember 2014 varð mikið áfall innan hestamannahreyfingarinnar þegar tólf hestar fundust drukknaðir í Bessastaðatjörn á Álftanesi. Hrossin höfðu verið í haustbeit á Bessastaðanesinu á vegum Hestamannafélagsins Sóta og Íshesta, og þegar smalað var eftir óveður kom í ljós að óvenju mörg dýr vantaði. Í kjölfarið var farið að leita og þá kom í ljós hið versta: hrossin höfðu farið út á ísinn einhvern síðustu daga, ísinn gefið eftir og þau farið undir. 25.1.2026 10:00
„Sílíkon er eitthvað sem mun fara með mér í gröfina“ „Það voru alltaf einhver veikindi, ólík veikindi. Og ég var bara ung, hraust stelpa áður, ég var íþróttastelpa, aldrei veik og ekkert vesen. Það er bara ótrúlega sárt að horfa til baka og vita ekki að brjóstin á mér voru að gera mig svona veika,“ segir Ásta Erla Jónasdóttir, ein af þeim fjölmörgu íslensku konum sem á sínum tíma fengu sér PIP brjóstapúða, með afdrifaríkum afleiðingum. 24.1.2026 09:32
„Ég er til í að gera allt svo ég þurfi ekki að grafa þriðja barnið mitt í viðbót“ Thelma Karen Kvaran Bjarnfinnsdóttir og eiginmaður hennar, Úlfur Kvaran, eru bæði arfberar af SMA, sjaldgæfum og illvígum erfðasjúkdómi sem þau höfðu aldrei heyrt um fyrr en hann varð hluti af þeirra eigin lífi. Á stuttum tíma misstu þau tvö börn sem bæði erfðu sjúkdóminn og komu andvana í heiminn. 18.1.2026 08:01
Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Högni Kjartan Þorkelsson, sem situr í gæsluvarðhaldi í Medellín í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot gegn 16 ára stúlku, var í félagi við aðra ólögráða stúlku þegar hann var handtekinn þann 23. desember síðastliðinn. 17.1.2026 07:02
Innflytjendamálin eru fíllinn í stofunni „Þó svo að þetta sé „absúrd“ leikhús, og við förum svolítið langt með karakterana og aðstæðurnar, þá held ég að áhorfendur muni geta speglað sig í þessum persónum eða séð fólk sem það þekkir í þeim. En fyrst og fremst vona ég að fólk skemmti sér. Það er mikill kraftur fólginn í því að fá fólk til að hlæja, og sérstaklega að sjálfu sér,“ segir Þór Túliníus leikari og rithöfundur. 13.1.2026 20:02
„Á Íslandi eru konur hvattar til að dreyma og vera í forystu“ Fyrir örfáum árum var líf Noorinu Khalikyar mótað af námi, framtíðardraumum og þeirri trú að hún hefði rödd og val. Hún lagði stund á læknisfræði í Afganistan og starfaði við fræðslu um kvenheilsu og getnaðarvarnir, á tímabili þar sem konur höfðu, að einhverju marki, svigrúm til að mennta sig og láta sig dreyma. Sú veröld hvarf skyndilega þegar stjórnin féll og talibanar tóku völdin. 12.1.2026 07:02
Þegar miðborgin stóð í ljósum logum Þann 18. apríl 2007 varð einn alvarlegasti eldsvoði í sögu Reykjavíkur þegar stórbruni braust út í húsnæði við Austurstræti, í hjarta miðborgarinnar. Eldurinn breiddist hratt út og olli gríðarlegum skemmdum á hluta elstu byggðar borgarinnar, á svæði sem gegnt hafði mikilvægu hlutverki í borgarlífi Reykjavíkur um áratugaskeið. 11.1.2026 08:02
Sjá Jón Kára sem barn með óendanlega möguleika Þegar miðjusonur Gríms Gíslasonar greindist einungis ársgamall með alvarlegan sjúkdóm breyttist líf fjölskyldunnar til frambúðar. Óvissa, kvíði og endalausar spurningar tóku við samhliða spítaladvöl og stöðugri leit að svörum sem hafa enn ekki öll fundist. Bjartsýni lækna og jákvæðni hefur haldið þeim gangandi. 11.1.2026 07:00
Stóru spurningunni um dularfullt slys enn ósvarað „Það var alveg brjálaður áhugi á þessu máli. Ég held að þetta sé með svona stærri málum sem hafa komið upp á síðustu árum, af því að það er svo marglaga og svo margir angar á þessu,“ segir Sunna Sæmundsdóttir fréttamaður sem á sínum tíma fjallaði ítarlega um Skáksambandsmálið svokallaða. 10.1.2026 19:00
Íslenskur fjárfestir í óvenjulegri skilnaðardeilu í Bretlandi Íslenskur fjárfestir stendur nú í óvenjulegri skilnaðardeilu fyrir hæstarétti í Bretlandi þar sem WhatsApp-skilaboð kunna að ráða úrslitum um eignarhald á lúxusfasteign. 6.1.2026 07:30