Fréttamaður

Birgir Olgeirsson

Birgir er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Þreifingar um lausn en fram­haldið ó­á­kveðið

Þreifingar voru í gær milli samninganefnda flugvirkja og Icelandair um að þoka kjaraviðræðum áfram. Framhaldið hefur ekki verið ákveðið en ótímabundið verkfall á að hefjast aðfaranótt miðvikudags, 23. september.

Skoða hvort út­lendingar þurfi að bíða eftir fullri að­stoð

Kópavogsbær ætlar að skoða hvort fólk þurfi að hafa búið á Íslandi í tiltekinn tíma til að fá fulla fjárhagsaðstoð. Bæjarstjóri vísar til danskra reglna og segir hlutfall útlendinga meðal þeirra sem fá aðstoð hjá bænum hafa hækkað úr 33 í 71 prósent frá árinu 2021. Engar vísbendingar séu þó um misnotkun kerfisins.

Segja kröfulista Icelandair tefja samninga

Sáttasemjari hefur hvatt fulltrúa Icelandair til að leggja áherslu á færri mál í kjaraviðræðum við flugmenn, að sögn samninganefndar Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Nefndin telur umfangsmikinn kröfulista félagsins hindra framgang viðræðnanna.

Tengir stór­fram­kvæmdir við fram­tíð lýð­ræðisins

Stofnun innviðafélagsins Ganga og brúar er líka pólitískt verkefni um að sýna að lýðræðislega kjörnar ríkisstjórnir geti komið stórum hlutum í verk, segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra. Hún segir stóra erlenda fjárfesta sýna félaginu áhuga og að með því skapist fjárhagslegur rammi fyrir Sundabraut og fleiri stór samgönguverkefni.

Yfir þúsund hafa fært flug vegna yfir­vofandi verk­falls

Rúmlega þúsund farþegar Icelandair hafa nýtt sér boð félagsins um að færa flug vegna fyrirhugaðs verkfalls flugvirkja. Enginn sáttafundur hefur verið boðaður í deilunni en ótímabundið verkfall á að hefjast aðfaranótt miðvikudagsins 23. september.

Fimm aukaíbúðir þar sem að­eins mátti vera ein

Eigendur einbýlishúss í Breiðholti verða að breyta húsinu eftir að fimm aukaíbúðir voru innréttaðar þar sem borgin leyfir aðeins eina. Borgin gaf þeim þó of skamman tíma til breytinganna og tók ekki nægilegt tillit til fólksins sem leigir íbúðirnar.

Blindfullum ung­lingum fækkar

Hlutfall framhaldsskólanema undir átján ára sem sagðist hafa orðið blindfullt síðustu þrjátíu daga lækkaði úr 13,4 prósentum árið 2023 í 9,6 prósent árið 2025. Þetta kemur fram í gögnum að baki nýjum lýðheilsuvísum, sem sýna jafnframt að rúmlega fjórðungur nemenda í 6.–10. bekk segist hafa orðið fyrir árás eða verið laminn síðustu tólf mánuði.

Fréttir af dagsleyfi kynferðisbrotamanns slógu ráð­herra illa

Endurskoða þarf lög svo menn sem dæmdir hafa verið fyrir gróf kynferðisbrot gegn börnum fái ekki dagsleyfi svo skömmu síðar, að mati dómsmálaráðherra. Hún segir eitthvað að lögunum ef þau heimili að menn sem dæmdir hafa verið fyrir gróf kynferðisbrot gegn börnum fái dagsleyfi eftir svo stutta afplánun. Lögin megi ekki særa réttarvitund almennings. Gera þurfi greinarmun eftir því fyrir hvaða brot menn séu dæmdir, bæði við veitingu dagsleyfa og þegar komi að því hversu lengi þeir afpláni áður en þeir fái reynslulausn.

Sjá meira