Fréttamaður

Birgir Olgeirsson

Birgir er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Ríkis­stjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar

Ríkisstjórnin stendur mun veikar en hún gerði í vor og ósigurinn í þjóðaratkvæðagreiðslunni var reiðarslag, að mati Eiríks Bergmanns stjórnmálafræðiprófessors. Hann segir efnahagsmálin hafa snúist í andhverfu meginerindis stjórnarinnar. Þrátt fyrir aukinn mótvind sjái hann enn ekkert sem bendi til þess að stjórnin sé að falla.

Segir af­nám vaxta­bóta bitna á tekjulágum heimilum

Vaxtabætur verða felldar niður, viðmið barnabóta látin standa óbreytt og minna lagt til húsnæðisbóta en áætlað er að greiða í ár. Hagfræðingur BSRB segir aðhaldið bitna á heimilum, einkum þeim tekjulægstu og fólki með mikla húsnæðisbyrði.

Rukka meira fyrir aksturinn og sér­stak­lega fyrir veginn

Ríkisstjórnin boðar tæplega 16 prósenta hækkun kílómetragjalds í fjárlagafrumvarpi ársins 2027, samhliða áformum um að fjármagna fleiri samgöngumannvirki með veggjöldum. Ökumenn greiða bæði gjöldin á gjaldskyldum leiðum. Stjórnvöld telja það heimilt þar sem kílómetragjaldið sé skattur en ekki sérstök greiðsla fyrir veginn sem ekið sé um.

65 milljarða halli ef svart­sýna sviðs­myndin rætist

Svartsýn sviðsmynd fjármála- og efnahagsráðuneytisins sýnir að 4,7 milljarða króna afgangur ríkissjóðs samkvæmt fjárlagafrumvarpinu gæti orðið að um 65 milljarða halla árið 2027. Í bjartsýnu sviðsmyndinni gæti afgangurinn hins vegar orðið um 25 milljarðar.

Stöðnun og dýr­tíð að baki stór­sigri AfD

Langvarandi stöðnun, hátt verðlag, þungt regluverk og versnandi innviðir eiga stóran þátt í sögulegu fylgi AfD í Saxlandi-Anhalt, að mati íslenskrar athafnakonu sem hefur búið í Þýskalandi í rúm tuttugu ár. Hún segir of einfalt að skýra niðurstöðuna eingöngu með útlendingamálum.

Markaðurinn verð­leggur meiri verð­bólgu eftir fjár­lögin

Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir fjárlagafrumvarpið þegar hafa haft áhrif á skuldabréfamarkaðinn. Fjárfestar verðleggi nú meiri verðbólgu á næsta ári en fyrir helgi. Gjaldahækkanir ríkisins valdi vonbrigðum og sendi röng skilaboð þegar kjarasamningar eru til endurskoðunar.

Sjá meira