„Þægileg blanda af von og trega“ „Þetta er svona lag þar sem bassalínan rífur í hálsmálið á þér og spyr spurninga. Þægileg blanda af von og trega,“ segir tónlistarmaðurinn Jónfrí um nýtt lag sem hann og Ólafur Bjarki voru að senda frá sér. Lagið heitir Gott og vel og voru þeir sömuleiðis að senda frá sér tónlistarmyndband sem er frumsýnt í spilaranum hér fyrir neðan. 14.5.2024 11:30
Hlutu „Óskarinn“ í brúðkaupsskipulagningu „Þetta sýnir okkur að það sé tekið eftir þeirri vinnu sem við höfum lagt í að koma Íslandi á kortið sem ákjósanlegum áfangastað fyrir brúðkaup og viðburði“, segja forsvarsmenn ferðaskrifstofunnar Pink Iceland, sem hlaut í apríl verðlaun sem uppáhalds skipuleggjandi áfangastaðabrúðkaupa í Evrópu og Asíu. Skrifstofan er talin brautryðjandi í skipulagningu brúðkaupa fyrir erlenda gesti sem vilja gifta sig á Íslandi. 13.5.2024 15:00
Kom fram sem stórstjarna Útgáfutónleikar nýstirnisins Blossa fóru fram í Iðnó síðastliðið miðvikudagskvöld þar sem hann fagnaði útgáfu fyrstu smáskífu hans Le Blossi. 13.5.2024 13:02
„Þegar manni líður vel í eigin skinni skín það í gegn“ Tískuskvísan Fanney Ingvarsdóttir starfar sem samfélagsmiðlasérfræðingur hjá Bioeffect og hefur gaman að tjáningarformi tískunnar. Á unglingsárunum var Stjörnugallinn einkennisbúningur Fanneyjar sem æfði handbolta og fótbolta af fullum krafti en eftirminnilegasta flíkin er líklega síðkjóll frá Ungfrú Ísland. Fanney er viðmælandi í Tískutali. 11.5.2024 11:30
„Drull sama hvað einhver apaköttur segir“ „Mér er drull sama hvað ókunnugu fólki finnst en þú hlustar auðvitað á fólk sem er að tala við þig af því þeim þykir vænt um þig,“ segir rapparinn og listamaðurinn Erpur Eyvindarson. Hann hefur verið viðloðinn tónlistarsenuna síðastliðin 25 ár og fagnar þeim áfanga með stórtónleikum ásamt hljómsveit sinni Rottweiler í Laugardalshöll næstkomandi föstudagskvöld. Blaðamaður hitti Erp á heimili hans í Kópavogi þar sem hann fór yfir ferilinn og bauð upp á líbanskt kaffi. 11.5.2024 07:01
„Stútfull og við það að springa en hefur aldrei klikkað“ Tónlistarmaðurinn Magnús Jóhann er stöðugt að og er því mikilvægt fyrir hann að vera vel búinn þegar að það kemur að töskunni hans. Fartölvan er það allra mikilvægasta en hann er duglegur að skipta um tösku og hefur gaman að því að vera með nokkrar töskur í stíl. Magnús Jóhann er viðmælandi í fasta liðnum Hvað er í töskunni? 9.5.2024 11:30
23 ára og með sína eigin förðunarlínu „Hugmyndin að línunni fæddist þegar ég bjó úti í London. Flestar vinkonur mínar þar koma frá ólíkum uppruna og töluðu mikið um að erfitt væri að finna sér snyrtivörur sem pössuðu við sinn húðlit,“ segir förðunarfræðingurinn Snædís Birta Ásgeirsdóttir sem var að stofna snyrtivörulínuna Dewy Cosmetics. 8.5.2024 12:32
„Svo hræðilega óyfirstíganlegt að ég þurfti að rífa plásturinn af“ „Ég þori í fyrsta skipti að vera persónuleg,“ segir tónlistarkonan Inki eða Ingibjörg Friðriksdóttir. Hún hefur komið víða við í tónlistarsköpun, smíðað sjálfspilandi hljóðfæri, gert fjölda hljóðinnsetninga og samið tónverk sem byggir á viðtölum við fyrri fanga Kvennafangelsisins. 7.5.2024 10:00
Laufey skein skært á Met Gala Tónlistarkonan, súperstjarnan og Grammy verðlaunahafinn Laufey fékk boð á eftirsóttasta tískuviðburð í heimi, Met Gala í New York. Hún skein skært í gærkvöldi í bleikum síðkjól frá tískuhúsinu Prabal Gurung. 7.5.2024 09:57
Best klæddu stjörnurnar á Met Gala Fyrsti mánudagur maí mánaðar er runninn upp en hann reynist tískuunnendum mikið tilhlökkunarefni. Ástæðan er sú að tískuviðburður ársins, Met Gala, fer fram í kvöld á Metropolitan safninu í New York borg. Stærstu stjörnur heimsins koma saman í glæsilegum klæðnaði hátískuhönnuða þar sem menning, tíska og upplifun rennur saman í eitt. 6.5.2024 23:30