Fimleikamaður sem elskar hælaskó: „Það eru ekki allir að dæma eins og við höldum svo oft“ Fimleikamaðurinn og lífskúnstnerinn Örn Frosti hefur mikinn áhuga á tískunni og finnst gaman að tjá sig í gegnum hana. Með tímanum hefur hann orðið öruggari með sinn persónulega stíl og er óhræddur við að fara eigin leiðir og skína skært. Örn Frosti er viðmælandi vikunnar í Tískutali. 15.4.2023 11:30
„Veit um tvær stelpur sem eru skírðar í höfuðið á laginu mínu“ „Ég byrjaði í tónlist þegar ég var pínulítill. Pabbi er söngvari og ég var fimm ára þegar ég byrjaði að spila á gítar,“ segir tónlistarmaðurinn Thorsteinn Einarsson, sem skrifaði átján ára gamall undir plötusamning í Austurríki. Hann hefur verið að gera góða hluti þar undanfarin ár, er með milljónir spilanna á streymisveitunni Spotify og hefur spilað víða á tónleikum. Blaðamaður hitti hann í kaffi og tók púlsinn á honum. 15.4.2023 07:01
Segir eitt að djamma niðri í bæ en allt annað að djamma á hálendinu Ljósmyndarinn Benjamin Hardman heillaðist af Íslandi frá fyrstu heimsókn og var staðráðinn í að flytja hingað, sem hann svo gerði. Hann er hugfanginn af landslaginu og grípur stórbrotin augnablik á filmu í starfi sínu sem ljósmyndari og tökumaður en það er honum afar minnisstætt að hafa heimsótt hálendið í fyrsta skipti. Benjamin Hardman er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. 14.4.2023 07:01
Kim Kardashian sýnir ógnvekjandi hliðar Raunveruleikastjarnan og athafnakonan Kim Kardashian er óhrædd við að takast á við ný og jafnvel ógnvekjandi verkefni, ef marka má nýjustu færslu hennar á samfélagsmiðlinum Instagram. Þar kom fram að Kim fari með hlutverk í væntanlegri seríu af hryllingsþáttunum American Horror Story. 11.4.2023 10:55
Draumurinn rættist þegar Netflix hringdi Ljósmyndarinn Benjamin Hardman hefur verið hugfanginn af Íslandi frá því hann kom hingað í fyrsta skipti árið 2013. Tveimur árum síðar flutti hann hingað og hefur síðan þá unnið hörðum höndum að því að láta draum sinn rætast um að vinna af fullum krafti við ljósmyndun og myndbandsgerð. Hann á að baki sér áhugaverða og einstaka sögu en Benjamin Hardman er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. 10.4.2023 07:01
Herra Hnetusmjör og Frikki Dór aftur á toppnum Tónlistarmennirnir Herra Hnetusmjör og Friðrik Dór sitja á toppi Íslenska listans með lagið Vinn við það. Lagið hefur flakkað upp og niður listann á síðustu vikum. 8.4.2023 17:01
„Enn að kynnast nýjum líkama og því hvernig mér finnst best að klæða mig“ Samkvæmisdansarinn, raunveruleikastjarnan og ofur skvísan Ástrós Traustadóttir hefur farið í gegnum ýmis tímabil í tískunni. Í dag er hún nýbökuð móðir og sækir meira í jarðtóna liti en áður ásamt því að vanda vel valið á þeim flíkum sem hún fjárfestir í. Ástrós er viðmælandi vikunnar í Tískutali. 8.4.2023 11:31
Flutti úlpulaus til Íslands en fann lykilinn að listsköpunni Benjamin Hardman flutti úlpulaus til Íslands frá Ástralíu fyrir rúmum sjö árum með um það bil þúsund fylgjendur á Instagram og draum um að geta unnið sem ljósmyndari. Hann er nú með um 725 þúsund fylgjendur þar sem hann deilir ævintýrum sínum og sinnir ástríðu sinni á ljósmyndun og myndbandsgerð af fullum krafti. Benjamin Hardman er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst, þar sem hann ræðir opinskátt um lífið, listina og mikilvægi þess að elta draumana sína. 7.4.2023 09:00
Varar fólk við storminum sem er að skella á tónlistarsenuna „Þessi skífa er einfaldlega lognið undan storminum,“ segir tónlistarmaðurinn Issi, sem ætlar að gefa út EP plötuna Rauð viðvörun á miðnætti. Blaðamaður tók púlsinn á honum. 6.4.2023 11:30
Fólk mætti í skírteinismyndatöku og endaði í listrænu verkefni um bænina „Titill sýningarinnar er sóttur í kristna trú,“ segir listamaðurinn Sigurður Unnar sem er að opna sýninguna Lömb og Guðir á morgun, á föstudaginn langa. Blaðamaður tók púlsinn á honum. 6.4.2023 10:01