Fréttamaður

Elísabet Inga Sigurðardóttir

Elísabet Inga er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

„Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“

Formaður Starfsgreinasambandsins furðar sig á þeim orðum fjármálaráðherra að launafólk hafi það ekki verra nú en áður og að heimilin standi vel. Einn aðili hafi skilað auðu í því verkefni að láta kjarasamninga halda og það sé ríkið.

„Ég er ó­geðs­lega reiður“

Formaður stéttarfélagsins Framsýnar segist „ógeðslega reiður“ og fúll vegna ummæla fjármálaráðherra. Reynslu- og sambandsleysi einkenni ríkisstjórnina og ljóst að lægst launaða fólkið í landinu þoli ekki efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar.

Ís­lensk heimili eigi að geta þolað sárs­aukann

Það er sársaukafullt að ná aga í ríkisfjármálum og ef eitthvað ríki geti þolað sársaukann sé það Ísland enda standi heimilin mjög vel. Hann segir ekki rétt að launþegar hafi það verr nú en fyrir tveimur árum og fullyrðir að ummæli sem formaður efnahagsnefndar Alþingis lét falla um helgina séu ekki rétt. Þetta er á meðal þess sem Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir í ítarlegu sjónvarpsviðtali við fréttastofu.

Ekið á fimm ára barn á hjóli

Lögreglunni á Suðurlandi barst í gær tilkynning um ökumann sem ók á fimm ára barn. Atvikið átti sér stað í Hveragerði og var barnið á hjóli þegar ekið var á það.

Segir merki­legt að einkaskilaboð séu rædd á Al­þingi

Þingflokksformaður Framsóknarflokksins segir að svara verði því í hvaða umboði fyrrverandi aðstoðarmaður Guðmundar Inga hafi sent skilaboðin umdeildu þar sem honum voru gefnir tveir kostir, afsögn eða stríð. Þingmaður Samfylkingarinnar segir merkilegt að einkaskilaboð milli fólks séu til umræðu í pontu Alþingis.

María Sigurðar­dóttir er látin

María Sigurðardóttir, eða Mæja eins og hún var alltaf kölluð, er látin 69 ára að aldri. Hún lést á sjúkrahúsinu á Akranesi þann 11. ágúst eftir baráttu við krabbamein.

„Það er skil­greiningin á því að pissa í skóinn sinn“

Formaður VR telur þær aðgerðir sem ríkisstjórnin boðar í þeim tilgangi að ná hallaleysi verðbólguhvetjandi og segir það hina raunverulegu skilgreiningu á að pissa í skóinn sinn. Hún segir meiri líkur en minni á að samningum verði sagt upp fyrir þann 8. október.

Sjá meira