Veður

Tals­verð rigning næstu daga

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Regnhlífin verður staðalbúnaður næstu daga, það er að segja ef hún þolir rokið.
Regnhlífin verður staðalbúnaður næstu daga, það er að segja ef hún þolir rokið. vísir/anton

Suðvestan átta til þrettán metrar á sekúndu og lítilsháttar skúrir en bjart að mestu um landið austanvert. Hiti á bilinu fjögur til tíu stig.

Þetta segja spár Veðurstofunnar. Vaxandi sunnanátt í fyrramálið og dálítil væta en léttskýjað norðaustan- og austanlands. Talsverð rigning á morgun. Sunnan og suðaustan fimmtán til tuttugu og fimm metrar á sekúndu síðdegis, hvassast vestantil en úrkomulítið á Norður- og Austurlandi. Hiti verður þá á bilinu sjö til þrettán stig.

Vaxandi sunnanátt og dálítil væta um helgina en léttskýjað norðaustan- og austanlands. Áfram hvasst og talsverð rigning.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×