Fréttamaður

Freyja Þórisdóttir

Freyja er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Lög­reglan í Vest­manna­eyjum óskar eftir vitnum

Tvö mismunandi atvik þar sem keyrt var utan í ökutæki og stungið af hafa átt sér stað fyrir utan sama húsið í Vestmannaeyjum en lögregla þar óskar eftir vitnum. Í bæði skiptin, sem voru í ágústmánuði, varð utaníkeyrslan til þess að hliðarspegill brotnaði af.

Vissu ekki að þeir yrðu í aug­lýsingu fyrir Á­fram Ís­land

Það vakti undrun einhverra að slökkviðliðsfólki úr röðum Brunavarna Suðurnesja skyldi bregða fyrir í auglýsingu nei-hreyfingarinnar Áfram Ísland á dögunum. Slökkviliðsstjóri segir að í beiðni sem honum barst um að taka upp kynningarefni hafa hvergi verið minnst á að það væri fyrir auglýsingu hreyfingarinnar. Áfram Ísland segir slökkviliðsmennina ekki mótfallna því að vera í auglýsingunni.

Beint streymi frá opnum fundi Á­fram Ís­land

Nei-hreyfingin hefur efnt til útifundar á Austurvelli klukkan 17:00 í dag en í aðdraganda fundarins hafa símaskilaboð borist fjölda fólks þar sem því er boðið að mæta til að stilla saman strengi fyrir laugardaginn. Meðal ræðumanna eru Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir fyrrverandi þingmaður og ráðherra. Hægt er að fylgjast með streymi á Vísi.

Beint streymi frá opnum fundi Já til að sjá

SJÁ, hreyfing þeirra sem vilja segja „Já til að sjá“, heldur opinn viðburð í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst. Fundurinn fer fram klukkan 17:00 í dag í Tónabíói, Skipholti 33, og er öllum boðið að kíkja við en einnig verður hægt að fylgjast með streymi á Vísi.

„Við höfum gott af því að rífast að­eins“

Þau Þórhildur Þorkelsdóttir ráðgjafi og hlaðvarpsstjórnandi, Þórarinn Hjartarson hlaðvarpsstjórnandi og Lilja Katrín Gunnarsdóttir útvarpskona mættu í fjórða og síðasta Pallborð Vísis fyrir laugardaginn 29. ágúst. Þar voru þau einróma um að þjóðin hefði gott af umræðunni sem hafi skapast í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið.

Al­menningur hafi aldrei átt séns

Í fjórða og síðasta Pallborði Vísis í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar á laugardag mættu fyrst stjórnmálafræðingarnir og þáttastjórnendur Skuggavaldsins þau Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir. Þau snertu á upplýsingaóreiðu og hafði Eiríkur á orði að almenningur hafi aldrei „átt séns.“ Umræðan sé farin að minna ískyggilega mikið á Brexit umræðu í Bretlandi á sínum tíma.

Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia

Brynjar Már Brynjólfsson hefur verið ráðinn í stöðu leiðtoga vaxtar og viðskiptaþróunar hjá Corus. Í starfinu mun hann leiða samstarf við viðskiptavini félagsins og tengja saman ráðgjöf, sölu og vöruþróun. Hann hefur áður starfað hjá Isavia, RB, Origo og Kjarna. Brynjar mun hefja störf hjá félaginu á næstu vikum.

Mikil­vægt að fatlaðir geti tekið þátt í um­ræðunni

Víða hafa verið haldnir fundir, pallborð og kappræður nú þegar þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem kosið verður um áframhaldandi viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu nálgast óðfluga. Félag fólks með þroskahömlun stóð fyrir einum slíkum í dag, þann 26. ágúst, og leit fréttamaður Sýnar þar við.

Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“

Tímabilið þar sem lundapysjum sem hafa rambað inn á byggt ból er bjargað og þeim sleppt út á sjó stendur sem hæst um þessar mundir. Langflestar pysjur finnast í Vestamannaeyjum og hefur þar verið útbúið sérstakt sleppisvæði en í það minnsta einni lundapysju hefur verið bjargað af götum Reykjavíkur þetta árið.

Haft sam­band við þá bændur sem búa næst gilinu

Öryggismál við Stuðlagil hafa verið í brennidepli eftir að ferðamaður lést þegar hann féll ofan í gilið á mánudag. Var það annað banaslysið við gilið á tæplega tveimur árum en sveitarstjóri Múlaþings segir fyrsta viðbragð þegar svona sorglegt mál komi upp vera að hlúa að fólki. 

Sjá meira