„Blint í stórhríð á Vestfjörðum“ Enn eru við gildi gular viðvaranir á Vestfjörðum en einnig óvissustig vegna snjóflóðahættu á Norðurlandi. Snjóflóðahætta verður á vegum á Vestfjörðum og hefur Vegagerðin lýst yfir hættustigi á Súðavíkurhlíð og Flateyrarvegi frá miðnætti og verður vegunum þá lokað. 15.3.2026 07:37
Pítsan sem kostaði 7.740 krónur Sveinn Ásgeir Jónsson tók málin í eigin hendur 12. febrúar þegar hann taldi sig ranglega rukkaðan um vangreiðslugjald. Hann kynnti sér málið, lagðist yfir gögn frá Neytendastofu, samningalög og innheimtulög og skrifaði andmælabréf með vísun til Hæstaréttar og sendi á Green Parking sem felldi kröfuna niður á innan við hálftíma. 14.3.2026 15:11
Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Brynju Dan Gunnarsdóttur hefur verið gert að víkja sem oddviti Framsóknar í Garðabæ. Hún segist hvorki munu taka sæti á lista flokksins í komandi kosningum né styðja flokkinn á nokkurn hátt. 14.3.2026 11:12
Ákvörðunin stærri en núverandi ríkisstjórn Kjósendur verða að beita eigin dómgreind og kynna sér sjónarmið. Á sama tíma er það skylda stjórnvalda að vanda undirbúning í hverju einasta skrefi. Þessi ákvörðun sé stærri en flokkspólitískir hagsmunir. 14.3.2026 10:17
Einn réðst á dyravörð og um tíu voru grunaðir um akstur undir áhrifum Lögreglan handtók mann í miðbæ Reykjavíkur í nótt þar sem hann hafði ráðist á dyravörð. Við leit á honum fundust fíkniefni en maðurinn hefur verið vistaður í fangaklefa þar til hann er talinn hæfur til skýrslutöku. Fleiri en tíu ökumenn voru stöðvaðir í akstri vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. 14.3.2026 07:57
Hvessir á mestöllu landinu í kvöld Minnkandi norðvestan- og vestanátt í dag. Snjókoma eða slydda með köflum norðanlands, en styttir upp að mestu þar síðdegis. Næsta lægð er væntanleg inn á Grænlandshaf seint í dag og áhrifa hennar fer að gæta í kvöld og nótt með vaxandi vindi með úrkomu. 14.3.2026 07:29
Bandarísk herflugvél fórst í Írak Björgunaraðgerðir eru hafnar eftir að bandarísk herflugvél sem ætlað var að flytja eldsneyti fórst í Írak. Þetta kemur fram í tilkynningu sem yfirstjórn herafla Bandaríkjanna í Miðausturlöndum sendi frá sér í dag. Þar greinir einnig frá því að tvær herflugvélar hafi átt hlut að máli en að önnur þeirra hafi lent heilu og höldnu á meðan hin fórst í vesturhluta Íraks. 12.3.2026 23:29
Sigríður Ingibjörg ráðin nýr framkvæmdastjóri BSRB Sigríður Ingibjörg Ingadóttir hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri BSRB, stærstu samtaka opinberra starfsmanna á Íslandi. Hún hefur mikla reynslu af störfum fyrir verkalýðshreyfinguna. 12.3.2026 21:51
Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi „Þegar að heimsmarkaðurinn lækkar, þá virðist verðið svona síga niður eins og það sé verið að sleppa fjöður lausri, en þegar að verð hækkar, þá fer það frekar upp eins og raketta,“ segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifereiðaeigenda. Hann mætti í sett kvöldfrétta Sýnar í kvöld. 12.3.2026 21:15
Kelly Clarkson segist hvorki hafa fengið sigurféð né bílinn sem henni var lofað Í samtali við Rob Rausch, nýjasta sigurvegara The Traitors í Bandaríkjunum, afhjúpaði söngkonan og spjallþáttastjórnandinn Kelly Clarkson stórt leyndarmál. Hún fékk aldrei að snerta sigurféð sem henni var lofað við lok fyrstu þáttaraðar American Idol. 12.3.2026 19:04