Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Dæmi eru um að ferðamenn bóki nótt á gististöðum hérlendis, afbóki svo og fái endurgreitt eftir að þeir hafi notað aðstöðuna. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir það undir þeim sem leiga út gistingu komið að ákveða hvort mál séu tilkynnt lögreglu. Hann telji það þó eðilegt ef um svik eða skemmdarverk sé að ræða. 17.7.2026 16:56
Bongóblíða um nánast allt land og rofar til í borginni um stund Hér á landi er sannkallað sumarveður um nánast allt land í dag, þann 17. júlí. Það eru helst íbúar á Raufarhöfn og höfuðborgarsvæðinu sem njóta ekki sólar í dag en hitinn nær rétt um tólf stigum þar en fer mest upp í um tuttugu og þrjú stig á Akureyri. Veðurfræðingur segist sjá fram á að það rofi til í borginni á hverri stundu. 17.7.2026 14:09
Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Listamaðurinn Elli Egilsson Fox opnar í dag, föstudaginn 17. júlí, einkasýningu ásamt dóttur sinni Ignaciu, sem er fjögurra ára gömul, í gallerí Herma á Hverfisgötu. Sýning þeirra feðginanna heitir því viðeigandi nafni Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni. 17.7.2026 11:55
Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Íslenska indírokksveitin Superserious gefur út nýtt efni nú um hásumar en lagið My phone or something verður aðgengilegt aðdáendum á morgun, föstudaginn 17. júlí. Er þetta önnur smáskífa af væntanlegri breiðskífu sveitarinnar sem mun bera nafnið Superserious or something. 16.7.2026 23:40
Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Rútubílstjóranum Axel Gunnarssyni brá að eigin sögn ekkert smá mikið í dag þegar hann var hársbreidd frá því að lenda í hörðum árekstri. Bíll úr gagnstæðri átt tók fram úr bílaröð og rétt náði að beygja aftur inn á rétta akgrein í tæka tíð svo hann keyrði ekki framan á rútuna sem Axel ók. 16.7.2026 22:37
Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Júlíus Rúnar Þórðarson hefur verið dæmdur sekur um að nýta sér yfirburðastöðu sína gagnvart skjólstæðingi sem hann þjónustaði og nauðga henni að minnsta kosti einu sinni. Fyrir brotið hlaut hann þriggja ára fangelsisdóm en konan sem hann braut á er andlega fötluð og á við áfengisvanda að stríða sem og minnistap. 16.7.2026 21:53
Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Slasaður maður var fluttur undir læknishendur með sjúkraflugi á níunda tímanum í dag en þyrla Landhelgisgæslunnar og allar björgunarsveitir í Eyjafirði voru kallaðar út. 16.7.2026 21:08
Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tíu óútgefin lög sem tónlistarmaðurinn David Bowie samdi og tók upp snemma á ferli sínum verða gefin út í september þessa árs. Þegar þau voru tekin upp gekk hann undir listamannanafninu Davie Jones en breytti því skömmu seinna til að forðast að vera ruglað saman við söngavarann Davy Jones úr hljómsveitinni The Monkees. 16.7.2026 19:10
Gróðureldar loga stjórnlaust og fólki ráðlagt að halda sig innandyra Ríflega átta hundruð svæði hafa orðið gróðureldum að bráð víðs vegar um Kanada og viðvaranir hafa verið gefnar út í mörgum fylkjum Bandaríkjanna vegna versnandi loftgæða. Fólki er ráðlagt að halda sig innandyra þar sem loftgæðin eru hvað verst og hafa grímur verið gerðar aðgengilegar í sumum borgum sem og kælisvæði. 16.7.2026 18:40
Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Tilkynning barst lögreglunni á stöð 1 um að óboðinn aðili hefði valsað inn á hjúkrunarheimili í annarlegu ástandi en honum var vísað á brott. Á sama varðsvæði var tilkynnt um tvö innbrot en hrina innbrota hefur staðið yfir síðastliðnar vikur. 16.7.2026 18:05