Fréttamaður

Freyja Þórisdóttir

Freyja er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Allir sem voru í öku­tækjunum uppi­standandi eftir á­reksturinn

Umferð um Suðurlandsveg vestan við Selfoss í austurátt var lokað vegna áreksturs sem varð á veginum síðdegis. Umferð var beint um Ölfusveg sunnan við hringveginn. Fjórir voru í tveimur ökutækjum sem rákust á en enginn er alvarlega slasaður að sögn lögreglu.

„Undir­staða Hörpu mun hristast undir hreinum og ó­menguðum krafti“

Þungarokkshljómsveitin Manowar snýr til Íslands í annað sinn í nóvember þessa árs og heldur tvenna tónleika í Hörpu, en sveitin er sem stendur á tónleikaferðalagi um heiminn. Uppselt var á tónleika Manowar í Reykjavík síðasta sumar en meðal þeirra sem lögðu leið sína í salinn Silfurberg var Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti Íslands.

„Þetta snýst ekki hrein­lega um bann heldur á­kveðna vernd“

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, var spurð út í nýja frumvarpið sem snýr að símabanni fyrir börn, fjórtán ára og yngri, í Reykjavík síðdegis en hún sagði það tilkomið eftir ákveðna vakningu hvað málið varðar hjá íslenskum stjórnvöldum. Bannið yrði vonandi orðið að veruleika fyrir næstu áramót en að það væri alfarið til þess hugsað að vernda börn.

Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóð­veginum

Mótorhjólakappinn Ómar Geirsson varð var við bilun í fornhjólinu sínu á leið heim frá Akureyri en stuttu seinna fór að rjúka undan hjólinu að aftan. Mótorhjólið brann til kaldra kola fyrir augunum á honum en hann hafði keypt það skömmu áður og var nýkominn með það úr ástandsskoðun.

Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan

Síðustu daga hefur veðrið leikið við fólk á austurhluta landsins en á sama tíma hafa gular viðvaranir ríkt á vestanverðu landinu. Hiti fór víða yfir tuttugu og fimm gráður á Austfjörðum og Egilsstöðum um helgina og tjaldsvæði eru mörg hver að fyllast.

Lög­reglan rann­sakar enn eitt inn­brotið í borginni

Lögreglunni barst í dag tilkynning um innbrot á varðsvæði stöðvar 1 en hún sinnir verkefnum í Vesturbæ, Miðborg, Hlíðum, Laugardal, Háaleiti og á Seltjarnarnesi. Er málið til rannsóknar en frá mánaðamótum hafa rétt tæplega fimmtíu tilkynningar um innbrot borist lögreglunni á stöð 1.

Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjöl­miðla­nefnd“

Adolf Ingi Erlingsson, fyrrverandi íþróttafréttamaður, starfsmaður hjá RÚV og í dag leiðsögumaður, hefur fengið svar við fyrirspurn sinni sem hann sendi Stefáni Eiríkssyni útvarpsstjóra eftir að honum var að eigin sögn nóg boðið vegna áfengisauglýsinga í Ríkissjónvarpinu. Í svari sínu segir Stefán að Fjölmiðlanefnd hafi tekið málið fyrir á sínum tíma og látið það niður falla en Adolf sakar Ríkisútvarpið um að skýla sér á bak við nefndina.

Fjöru­tíu básar í garðinum og götumatur frá öllum heims­hornum

Stærsti matarviðburður landsins, Götubitahátíðin, snýr aftur á sinn stað um helgina en líkt og síðustu ár fer hátíðin fram í Hljómskálagarðinum í Reykjavík. Á sunnudaginn verður svo tilkynnt hver stóð uppi sem sigurvegari árlegu keppninnar um Besta götubita Íslands.

Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila alla­vega ekki þessa hugsun“

Ekki eru allir á sama máli um hvort hjóla megi yfir á rauðu ljósi. Í umferðarlögum kveður þó skýrt á um að ökumönnum sé „óheimilt að aka gegn rauðu umferðarljósi. Við rautt ljós skal ökutæki stöðvað áður en komið er að stöðvunarlínu eða, ef stöðvunarlínu vantar, umferðarljósastólpa.“ 

Sjá meira