Fréttamaður

Freyja Þórisdóttir

Freyja er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Myndaveisla: Ríf­lega fimm­tíu sögu­leg segl­skip prýddu flóann

Síðustu daga, og þá sér í lagi þann 4. júlí, fóru fram viðburðir víðs vegar um Bandaríkin til að fagna 250 ára afmæli sjálfstæðis þjóðarinnar. Í erlendum miðlum kemur fram að bandaríska þingið hafi úthlutað 150 milljónum bandaríkjadala til hátíðarhaldanna en upphæðin nemur um átján billjónum íslenskra króna. Meðal dagskrárliða var vegleg skipasýning en aðrir viðburðir voru meðal annars fylkissýning til heiðurs öllum landshlutum Bandaríkjanna, yfirflug orrustuþotna og opnun forsetabókasafns.

Innipúkunum fjölgar enn

Elín Hall, Ízleifur, GDRN og Joey Christ eru meðal þeirra sem hafa bæst við hóp listamannanna sem koma fram á Innipúkanum í Austurbæjarbíói um verslunarmannahelgina. Tónlistarhátíðin stendur yfir í þrjá daga líkt og vanalega en hún hefur verið haldin árlega síðan 2002 að undanskildum tveimur „mögrum kóvid-árum“.

Þurfti að lenda flug­vél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana

Flugkennarinn Leandro Andrés Bertazzo, 42 ára, fannst látinn eftir að hafa stokkið út úr dyrum flugvélar og með því skilið nemanda sem hann var að kenna eina eftir svo hún varð að lenda vélinni sjálf. Atvikið átti sér stað yfir bænum Toledo í Argentínu á laugardag, samkvæmt yfirlýsingu frá ríkissaksóknara landsins sem birt var á þriðjudag.

Hægara sagt en gert að ná lé­legum myndum

Frönsk kona sem þykir hinn versti ljósmyndari lauk hringferð um Ísland á dögunum. Markmið ferðalagsins var að reyna að ná lélegum myndum af íslenskri náttúru. Hún komst þó að því að það væri hægara sagt en gert.

Nýr kok­teil­bar opnaður á Hverfis­götu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“

Kokteilbarinn Resident Room er opnaður í dag, miðvikudaginn 8. júlí, dyr sínar að Hverfisgötu 26 þar sem veitingastaðurinn Matbar var áður til húsa. Það eru útvarpsþáttastjórnandinn Daníel Jón Baróns sem starfar á Rás 2 og barþjónninn Ásgeir Már Björnsson, sem er nýfluttur aftur heim eftir að hafa starfað lengi erlendis, sem stýra barnum en þeir ætla sér að „hrista rækilega upp í íslensku kokteilsenunni“.

Heilsu­fars­skoðanir skuli fram­kvæmdar að lág­marki fjórum sinnum

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur staðfest nýja reglugerð um skólaheilsugæslu grunnskólabarna. Með henni er í fyrsta sinn mörkuð heildstæð umgjörð um skipulag og framkvæmd skólaheilsugæslu á landsvísu. Reglugerðin tekur gildi 1. janúar 2027 en meðal breytinga sem gerðar voru eru aukin áhersla á geðheilbrigði, endurskoðuð ákvæði um tannheilsu barna og aukin fræðsla um kynheilbrigði.

„Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lamba­læri“

Enn hefur ekki fundist skýring á því hvernig stærðarinnar, og kryddað, lambalæri og svo seinna steikarsneiðar og flatkökur enduðu í móa við Hafravatn, langt frá næstu mannabyggð. Kona sem var á hlaupaæfingu í aðdraganda Reykjavíkurmaraþonsins og uppgötvaði matinn þegar hundarnir hennar tveir þefuðu hann uppi segist ekki halda að lærið hafi verið eitrað en skilur hvorki upp né niður í því hvernig það endaði á þessum slóðum.

Tóku sýni úr munni móðurinnar og rann­saka mögu­legt mann­át

Móðir fjögurra ára gamals drengs sem fannst látinn í bænum Wyong í suðvesturhluta Ástralíu á laugardag, þann 4. júlí, hefur verið úrskurðuð í gæsluvarðhald og ákærð fyrir morðið á syni sínum. Lögregla rannsakar nú hvort mannát hafi átt sér stað í tengslum við atvikið en barnaverndaryfirvöld í fylkinu hafa einnig hafið sjálfstæða rannsókn vegna tilkynninga sem þeim bárust fyrir andlátið.

Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum

Eigandi hunds sem fannst dauður við Langjökul á dögunum er enn ófundinn. Fjölmargir hafa þegar sett sig í samband við sjálfboðaliðasamtökin Dýrfinnu. Meðal þess sem þeim hefur borist var ábending um hund sem týndist fyrir tæpum fjörutíu árum. Hann var ekki með eins litaða ól og sá sem fannst og er því útilokað að um sama hund sé að ræða.

Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða

Rannsókn stendur enn yfir eftir að öldruð kona féll fram af svölum á Eir hjúkrunarheimili í Grafarvogi sunnudaginn 28. júní með þeim afleiðingum að hún lést. Andlátið hefur verið rannsakað sem slys og verður það áfram nema eitthvað óvænt komi í ljós í niðurstöðum krufningar.

Sjá meira