Fréttamaður

Freyja Þórisdóttir

Freyja er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Björk, Sigur Rós og ríf­lega þúsund aðrir krefjast sniðgöngu

Björk, Ólafur Arnalds og Pálmi Gunnarsson eru meðal þeirra hundrað tuttugu og þriggja íslenskra listamanna sem hafa skrifað undir opið bréf þar sem aðdáendur eru hvattir til að sniðganga Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva árið 2026. Alls eru á listanum undirskriftir ríflega ellefu hundruð tónlistarmanna og hljómsveita á borð við Peter Gabriel, Massive Attack og Hot Chip.

Megi búast við út­skúfun úr sam­fé­laginu eftir af­plánun

Neikvæð viðhorf í garð fólks sem hefur brotið af sér eru á pari við þau neikvæðu viðhorf sem fram koma gagnvart þeim sem stríða við alvarlegan geðrænan vanda. Margir vilja halda ákveðinni fjarlægð frá fólki sem hefur afplánað fangelsisdóm og þykir eðlilegt að það sé útilokað frá ýmsum sviðum samfélagsins.

Dagar hf. ráða nýjan fjár­mála­stjóra

Þjónustufyrirtækið Dagar hf. hefur ráðið til sín Magnús Jón Magnússon, viðskiptafræðing, sem nýjan fjármálastjóra. Hann tekur jafnframt sæti í framkvæmdastjórn félagsins en alls starfa þar um sjö hundruð manns á þremur starfsstöðvum.

Var bjargað úr sjónum eftir hálf­tíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“

Kvöldævintýri tók óvænta stefnu þegar Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ásamt öðrum lenti í sjónum fyrir utan Kjalarnes. Þá höfðu þeir róið út á tveimur kajökum að veiða en lent í vandræðum með pedalspaðana og velt báðum bátunum. Þeim var bjargað úr sjónum eftir rúman hálftíma og þakkar Jón bæði björgunarsveitinni og bráðamóttökunni fyrir góð viðbrögð.

Yngsta syst­kinið fjögurra ára og það elsta fimm­tíu og fimm

„Áhuginn minn á keppninni kviknaði út frá reynslu sem hafði mikil áhrif á mig. Einhver sem stóð mér nærri gekk í gegnum erfiða tíma, og það fékk mig til að átta mig á því hversu mikilvægt það er að hafa fyrirmyndir og fólk sem hægt er að líta upp til.Síðan þá hef ég fundið sterka þörf til að stíga fram og vera sú manneskja sem ég hefði sjálf þurft að sjá,“ segir Anna María Eiríksdóttir sem keppir í Ungfrú Ísland 2026 sem Ungfrú Selfoss.

Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik

Fjórir nemendur í Borgarholtsskóla hófu nýverið sölu á leiknum Flatir Fletir með það að markmiði að fá fleiri ungmenni til að verja tíma saman úti í sumar. Þeim þykir sorglegt að sumarleikir virðist vera að víkja fyrir inniveru og símanotkun. Þeir hafi viljað fanga þá „sígildu tilfinningu að standa úti á íslenskri fjöru á sumrin og fleyta kerlingar, skemmtun sem verður aldrei þreytt“.

Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun

Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, og Nicola Sturgeon, fyrrverandi fyrsti ráðherra Skotlands, hlutu Velsældarverðlaunin í dag á Velsældarþinginu sem stendur yfir í vikunni og fer fram í Hörpu. 

Sögu­frægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru

Íbúar í Garðabæ hafa margir hverjir lýst yfir áhyggjum af niðurníðslu húsa á Vífilsstöðum, sem að margra mati voru virðuleg hér áður fyrr. Börn og ungmenni hafa gert það að vana sínum að brjótast inn í húsin en Garðabær og talsmenn Landspítalans segjast kappkosta að tryggja öryggi á svæðinu. Áform eru um að gera húsin upp í sinni upprunalegu mynd í samráði við Minjastofnun.

Báru fram kok­teila í vatns­byssum, páska­eggjum og kransa­kökum

Í gær kepptust margir af bestu barþjónum landsins um sigurinn með kokteila sem voru meðal annars bornir fram í kókómjólkurfernum, kransakökum og paprikum. Keppnirnar fara fram samhliða Reykjavík Cocktail Week sem hófst á mánudaginn, 13. apríl, og stendur yfir fram á sunnudagskvöld. Barþjónaklúbbur Íslands stendur fyrir þessari árlegu hátíð kokteilamenningar á Íslandi í samstarfi við helstu vínbirgja, veitingahús og bari á höfuðborgarsvæðinu.

Sjá meira