Fréttamaður

Freyja Þórisdóttir

Freyja er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

„Okkur þykir vænt um svæðið og við höfum á­hyggjur af því“

Ríflega þúsund hafa þegar skrifað undir undirskriftalista sem ber yfirheitið Hvaleyrarvatn - ekki byggja í Vatnshlíð en í tillögu að nýju Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2025-2040 er gert ráð fyrir íbúðabyggð við vatnið. Á vef Hafnarfjarðar segir að „Hvaleyrarvatn og umhverfi sé eitt það fallegasta á höfuðborgarsvæðinu" og eru þar fjölmargar gönguleiðir.

Norskur maður grunaður í máli Anne Elisabeth Hagen

Norskur maður á sextugsaldri hefur fengið stöðu sakbornings í máli Anne Elisabeth Hagen. Hún, ein ríkasta kona Noregs, hvarf sporlaust af heimili sínu í Lørenskógi í nágrenni Óslóar árið 2018 og hefur verið skráð myrt daginn sem hún hvarf í kerfum lögreglu síðan í janúar 2020.

Stjörnustríðs-leynivopnið Marcia Lucas látin

Marcia Lucas, sem hlaut Óskarsverðlaun fyrir klippingu á einni af Stjörnustríðsmyndunum í leikstjórn fyrrverandi eiginmanns síns, George Lucas, lést á miðvikudaginn, þann 27. maí, í Rancho Mirage í Kaliforníu. Hún var áttatíu ára þegar hún lést og hefur bandaríski miðillinn Variety eftir lögmanni fjölskyldunnar sem staðfesti að hún hefði látist úr krabbameini.

Vara við svik­sam­legum tölvu­pósti í nafni bankans

Í tilkynningu sem Íslandsbanki sendi frá sér er fólk varað við svikurum sem hafa undanfarið sent út tölvupósta í nafni bankans. Þar er fólk blekkt til að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum og gefa upp öryggisnúmer.

Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann

Þorgerður Katrín utanríkisráðherra segir að veikindi Ingu Sæland muni ekki hafa áhrif á störf ríkisstjórnarinnar og að Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, muni gegna starfi mennta- og barnamálaráðherra í fjarveru hennar. 

Nei eða já? Af eða á?

Þrír mánuðir eru þar til þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við Evrópusambandið fer fram. Miklar deilur voru um málið á þingi og búast má við að sumarið litist af umræðum um hvort Ísland gangi í sambandið eður ei. Til að aðstoða landsmenn við að komast að upplýstri ákvörðun hefur fyrirtækið Reon sett í loftið vefinn já eða nei punktur is.

Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo

Maður hefur verið dæmdur í þrjátíu daga skilorðbundið fangelsi og gert að greiða rétt tæpar tvær milljónir fyrir að veitast að ellefu ára dreng sem tók þátt í dyraati á heimili hans. Atvikið átti sér stað í nóvember 2024 en maðurinn kom að brotnu gleri í útidyrahurð sinni og ákvað að leita uppi drengjahóp sem hafði reglulega verið að prakkarast við húsið. 

Sam­komu­lagi náð og verk­falli af­lýst

Eimskip og Sjómannafélag Íslands (SÍ) hafa undirritað samkomulag um að aflýsa verkfalli háseta og bátsmanna á þremur skipum félagsins.  Á mánudag, þann 25. maí, hófu hásetar og bátsmenn í Sjómannafélagi Íslands ótímabundið verkfall á stærstu skipum félagsins: Brúarfossi, Dettifossi og Selfossi. 

Sérsveitaraðgerðir í Hvera­gerði

Sérsveitaraðgerðir standa yfir í Hveragerði og var kona tekin út úr bíl og leitað í farartækinu á bílastæðinu við N1 um klukkan hálf sjö í kvöld. 

Sjá meira