Brotaþolar fluttir á slysadeild og allar árásirnar til rannsóknar Sjö líkamsárásir rötuðu á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær og í nótt, sem þykir heldur mikið, en fjöldi fólks var samankominn í miðborginni vegna Hinsegin daga sem fóru fram í vikunni. Nokkrir voru fluttir til aðhlynningar á slysadeild en ekki liggur fyrir hversu alvarlegar árásirnar voru. 9.8.2026 11:01
Fræg feðgin snæddu kvöldmat á Horninu Bandaríski leikarinn Jason Bateman, sem er einna þekktastur fyrir leik sinn í gamanþáttunum „Arrested Development“, var meðal gesta á veitingastaðnum Horninu um helgina. Hann var þar ásamt dóttur sinni Francescu Nora en hann á tvær dætur með eiginkonu sinni, leikkonunni og kvikmyndaframleiðandanum Amandu Anka. 9.8.2026 09:41
Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Enn hefur ekki tekist að svara því hvernig skógareldar í Frakklandi sem geisuðu í sumar hófust. Margir vilja meina að eldarnir séu birtingarmynd loftslagsbreytinga en þar sem níu af hverjum tíu skógareldum sem hafa komið upp í Frakklandi eru af mannavöldum leita yfirvöld nú logandi ljósi að sökudólgi. Þarlend ríkisstjórn hefur þó sjálf verið sökuð um að hafa verið illa undirbúin fyrir eldsvoðana og gripið seint inn í. 9.8.2026 08:27
Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Sjö mismunandi tilkynningar um líkamsárásir bárust vakthafandi lögreglu á lögreglustöð eitt, sem sinnir verkefnum í Vesturbæ, Miðborg, Hlíðum, Laugardal, Háaleiti og á Seltjarnarnesi. Mikill fjöldi var samankominn í miðborginni í gær en hin árlega Gleðiganga fór þar fram og var lögregla kölluð til vegna samkvæmishávaða á svæðinu. 9.8.2026 07:45
Nýjasta sólmyrkvaspáin gefur ívið betri fyrirheit Útlit er fyrir að skil fari yfir landið á miðvikudaginn, þann 12. ágúst, og er reiknað með að skýjað verði víða en nýjustu spár herma að skýjahulan gæti brotnað upp staðbundið, einkum þegar tekur að kvölda. Í dag má búast við dálítilli vætu og svölu veðri á norðanverðu landinu en sunnan- og vestanlands verður bjart og hlýrra en hiti fer víða yfir tíu stig. 9.8.2026 07:24
72 ár síðan síðast en 170 ár þar til næst Þann 29. október árið 878 sást fyrsti almyrkvi sem samtímaheimildir eru um hérlendis en hann gekk yfir Bjargtanga, ytri hluta Snæfellsness og Reykjanesskaga um kl. 12:55. Síðan þá hafa ellefu almyrkvar sést frá Íslandi en þann 12. ágúst næstkomandi mun sá tólfti ganga yfir. Þá tekur við löng bið fram að þeim næsta. 8.8.2026 11:30
Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Nýtt spásvæði vegna sólmyrkvans miðvikudaginn 12. ágúst hefur verið gert landsmönnum aðgengilegt en fyrstu veðurspár benda til þess að skil gangi yfir landið með úrkomu og talsverðri skýjahulu. Þá hefur mikið verið rætt um það hvernig dagurinn spilist ef skýjahula dreifist yfir landið stóra sólmyrkvadaginn og því eflaust margir sem munu heimsækja spásvæðið. 7.8.2026 16:33
Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? Almyrkvar á sólu eru sjaldgæfir atburðir á hverjum stað á jörðinni, þar sem skugginn fellur aðeins á lítið takmarkað svæði. Fræðilega séð gætu almyrkvar lengst varað í 7 mínútur og 31 sekúndu en venjulega eru þeir ekki lengri en 2-4 mínútur. En hver er munurinn á almyrkva, deildarmyrkva og hringmyrkva? og hvað er eiginlega sólmyrkvi? 7.8.2026 11:31
Venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst Það þarf ekki að vera heiðskírt, né þarf að vera með kíki til þess að virða sjónarspilið fyrir sér þegar Íslendingar og aðrir sem eru staddir á landinu fá færi á að upplifa einhverja allra fallegustu sýningu náttúrunnar, almyrkva á sólu. Aftur á móti er nauðsynlegt að útvega sér þartilgerð sólmyrkvagleraugu til að vernda augun gegn skaðlegum geislum sólarinnar á meðan deildarmyrkva stendur. 6.8.2026 11:32
Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Margir hafa látið hugfallast af tilhugsuninni um að almyrkvi skelli á sólu á þessu landi þar sem sólin virðist oft ótíður gestur. Þjóðin þarf þó ekkert að örvænta að mati Stjörnu-Sævars enda þótt illa viðri munum við upplifa skyndilegt svartnætti um hábjartan dag. 5.8.2026 11:31