Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Margir hafa látið hugfallast af tilhugsuninni um að almyrkvi skelli á sólu á þessu landi þar sem sólin virðist oft ótíður gestur. Þjóðin þarf þó ekkert að örvænta að mati Stjörnu-Sævars enda þótt illa viðri munum við upplifa skyndilegt svartnætti um hábjartan dag. 5.8.2026 11:31
Hefur „ekki hugmynd um hvað er í gangi“ en kemur Grande samt til varnar Piers Morgan hefur lagt orð í belg eftir að tilkynnt var að leik- og söngkonan Ariana Grande ætli að draga sig úr sviðsljósinu frá og með 1. september næstkomandi. Hann kom henni til varnar á dögunum og biðlaði til fólks að láta það vera að setja út á útlit hennar og gefa henni andrými til þess að ná áttum. 5.8.2026 10:43
Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Bútur úr SpaceX-eldflaug sem er á stærð við fimm hæða hús og vegur í það minnsta fjögur tonn rakst á tunglið á sjöunda tímanum. Áreksturinn er ekki talinn hættulegur lífi á jörðinni og var hann ekki sýnilegur frá jörðu með berum augum. Búturinn er úr Falcon 9-eldflaug sem var skotið á loft frá Flórída með tvö tunglendingaför út í geim í janúar í fyrra. 5.8.2026 07:43
Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Tilkynnt var um tvo vopnaða aðila í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi eða nótt en að sögn tilkynnanda voru þeir ógnandi og árásargjarnir. Annar þeirri reyndist vopnaður öxi og hinn hamri en þeir voru handteknir og færðir á lögreglustöðina á Hverfisgötu. Lagt var hald á vopn í málinu en ekki liggur fyrir hvort bæði öxin og hamarinn hafi verið haldlögð. 5.8.2026 06:39
Von á lægðarsvæði í átt að landinu úr suðvestri Í dag er von á mildu og hlýju veðri á Austurlandi en skýjað og dálítil súld eða rigning með köflum vestantil. Þá má búast við suðlægri átt og stafar hún af lægðarsvæði sem kemur í átt að landinu úr suðvestri. Hitinn 10 til 16 stig en gæti komist upp í 18 til 19 stig allvíða á hálendinu. 5.8.2026 06:19
Næturborun í sjó lokið og verktakar þakka íbúum þolinmæðina Síðustu vikur hefur borun staðið yfir að næturlagi í sjónum úti fyrir Kársnesi en henni er nú lokið. Borunin er skref í smíði Fossvogsbrúar sem verður 270 metra löng, allt að sautján metra breið og opnar þann 16. júní árið 2028, ef allt fer eftir áætlun. Staðarstjóri segir framkvæmdina vera hreint út sagt ótrúlega en meðal þeirra sem hafa komið að smíðinni eru atvinnukafarar sem sérhæfa sig í logsuðu neðansjávar. 4.8.2026 16:49
„Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“ Hinsegin dagar standa nú yfir og er fjöldi viðburða á dagskrá næstu daga, svo sem glansverkstæði, hýr húslestur, trans kirkja og hinsegin hraðstefnumót. Listrænn stjórnandi opnunarhátíðarinnar segir bakslag í samfélaginu augljóst en að hinsegin fólk sé óhrætt við að ögra. Í ár sé sérstaklega kappkostað að gera ungu hinsegin fólki hátt undir höfði og er lag hátíðarinnar samið og flutt af hinum átján ára gamla Guðjóni Þorgils Kristjánssyni. 4.8.2026 14:42
Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Bandaríska söng- og leikkonan Ariana Grande ætlar að draga sig úr sviðsljósinu eftir að yfirstandandi tónleikaferðalagi hennar lýkur þann 1. september. Hún hefur sagt aðdáendum sínum frá því að hléið hafi verið skipulagt lengi og sé með engu móti ákveðið í flýti. Grande hefur sætt mikilli gagnrýni undanfarin misseri en meðal annars hefur fólk sett út á það hversu grönn hún sé. 4.8.2026 13:27
Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Björgvin Víkingsson framkvæmdastjóri Bónus birti í dag færslu þar sem hann ítrekar mikilvægi frídags verslunarmanna. Þá veltir hann upp spurningunni hvort það megi ekki gera þetta að venju aftur en Bónus var eina verslunarkeðjan þar sem allar verslanir voru lokaðar í dag, 3. ágúst. 3.8.2026 23:26
Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Fjölskyldumeðlimir þriggja kólumbískra ferðalanga hafa ekkert heyrt frá þeim í rétt um viku en þau höfðu verið á ferðalagi um Evrópu þegar þau lentu á Íslandi þriðjudaginn 28. júlí. Lögreglan á Suðurnesjum veit hvar þau eru niðurkomin. 3.8.2026 21:52