Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Umfangsmikill sníkjudýrafaraldur sem braust út í Bandaríkjunum í júlímánuði, þar sem helsta einkennið er harkalegur niðurgangur, hefur dregið tvo til dauða. Yfirvöld hafa tengt faraldurinn við salat sem var innflutt og selt af Taylor Farms en keðjur á borð við Taco Bell keyptu salat frá birgjanum. 3.8.2026 21:30
Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Lögreglan í Vestmannaeyjum lýsti eftir manni en hann er nú fundinn. Ekkert hafði sést til hans síðan klukkan sjö í morgun. Greint er frá þessu í tilkynningu. 3.8.2026 19:52
Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Einn var fluttur undir læknishendur eftir að tveir bílar rákust á í kjölfar framúraksturs á Hrútafjarðarhálsi á Norðvesturlandi á sjöunda tímanum í kvöld. Þrír voru í bílunum en sá sem var fluttur með sjúkrabíl er ekki alvarlega slasaður. Lögreglan biðlar til fólks að sýna þolinmæði en tvö keimlík slys hafa orðið á Norðvesturlandi í kvöld. 3.8.2026 18:26
Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Verulega harður árekstur þriggja bíla varð á sjötta tímanum í dag þegar ökumaður ætlaði sér að taka fram úr bílaröð á Hringveginum skammt frá Þrístöpum á Norðvesturlandi. Miklar bílaraðir hafa myndast á vegkaflanum en mikil umferð hefur verið á svæðinu í dag. Enginn er alvarlega slasaður en tveir af þremur bílum eru óökufærir að sögn lögreglu. 3.8.2026 17:55
Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Sjö eru látnir og þar af þrjú börn eftir að drónaárás á baðströnd í suðvesturhluta Rússlands. Minnst fjörutíu manns hlutu áverka í sprengingunni en það þykir mögulegt að árásinni hafi verið beint að rússnesku flotastöðinni í Novorossiysk sem er í um fjörutíu kílómetra fjarlægð frá ströndinni. Úkraínuher hefur ekki tjáð sig um málið. 3.8.2026 17:33
Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Sjúkraflugferðum hefur fjölgað umtalsvert á milli ára en slökkviliðsstjóri á Akureyri segir ástæðurnar vera margar. Það hafi hátt í níutíu flugferðir verið skráðar það sem af er liðnum júlímánuði, sem sé met, en gott veður víða um land, ferðamannastraumur og minni heilbrigðisþjónusta í boði á landsbyggðinni sé meðal þess sem valdi miklum fjölda ferða. Það sé nauðsynlegt að auka fjármagn til að tryggja góða þjónustu. 25.7.2026 18:07
„Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fjölskylda sem býr á Barðaströnd í Breiðafirði tók sig til og útbjó stærðarinnar skilti til að fagna því að ferjan Baldur væri snúin aftur til sinnar reglulegu siglingarleiðar. Hún var send suður til Vestmannaeyja fyrir um sex vikum síðan til að sinna ferjuflutningum þar í fjarveru Herjólfs. 25.7.2026 13:48
Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Alls hefur ríflega tvö hundruð og fimmtíu þúsund manns verið gert að rýma svæði í Suður-Evrópu og nú loga gróðureldar víða í Frakklandi og á Spáni. Langar bílaraðir mynduðust þegar þúsundir flúðu á brott úr úthverfum borgarinnar Bordeaux í suðvesturhluta Frakklands í nótt. 25.7.2026 09:40
Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Bræður bandaríska leikarans Chadwick Boseman, sem lést úr ristilkrabbameini árið 2020 einungis fjörutíu og þriggja ára að aldri, hafa stefnt ekkju hans, Taylor Simone Ledward-Boseman, vegna meðferðar hennar á margra milljóna dala dánarbúi hans. Þeir fara fram á að hún verði svipt yfirráðum yfir dánarbúinu en Boseman hafði ekki verið búinn að gera erfðaskrá þegar hann lést. 25.7.2026 08:59
Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Meðal þess helsta á lista lögreglustöðvar eitt, sem sinnir verkefnum í Austurbæ, Miðbæ, Vesturbæ og á Seltjarnarnesi, var tilkynning um líkamsárás þar sem aðila var fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss. Þeir sem fleygðu honum fram af fundust skammt frá vettvangi og voru handteknir en árásarþoli var fluttur á slysadeild til aðhlynningar með minniháttar áverka. Málið er enn í rannsókn. 25.7.2026 07:59