Aukaþingmaður leikur enn lausum hala Prófessor í stjórnmálafræði segir hneyksli að enn einu sinni hafi Alþingi trassað að gera augljósar breytingar á kosningalögum til að tryggja að flokkar fái þingmenn í samræmi við atkvæðafjölda. Starfandi forsætisráðherra segir ekki hægt að gera þessar breytingar svo skömmu fyrir kosningar. 4.11.2024 11:38
Kallar eftir umboði þjóðarinnar til breytinga Hún kom eins og óskrifað blað inn í íslensk stjórnmál fyrir alþingiskosningarnar 2021 og var orðin formaður Samfylkingarinnar um ári síðar. Fljótlega varð ljóst að hún var stjórnmálamaður af annarri skúffu en flestir. Hún ferðaðist um landið með opna fundi og upp úr þeim ferðum mótaði hún nýja stefnu fyrir Samfylkinguna sem var nálægt því að þurrkast út í kosningunum 2016. 2.11.2024 08:02
Kristrún hefur beðið Dag afsökunar Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar hefur beðið Dag B. Eggertsson afsökunar á að hafa kallað hann aukaleikara sem ekki væri ráðherraefni flokksins að loknum kosningum. 31.10.2024 19:52
Úkraínuforseti gagnrýnir hik vestrænna leiðtoga Forseti Úkraínu segir Rússa hafa tekist að leggja Georgíu nánast undir sig í nýafstöðnum kosningum þar og Moldóva muni falla innan tveggja ára nái Rússar sínu fram. Hann gangrýnir hik Vesturlanda varðandi heimildir á notkun langdrægra vopna á sama tíma og Putin fari yfir rauðar línur með innflutningi hermanna frá norður Kóreu. 29.10.2024 20:01
Segir lífsgæði að veði ef landamærin eru ekki tryggð Landamærin, skipulögð brotastarfsemi, hælisleitendakerfið og öryggi í Evrópu var meðal þess sem var til umræðu á fundi forsætisráðherra Norðurlandanna í tengslum við Norðurlandaráðsþingið. Forsætisráðherra Íslands segir lífsgæðin sem búið er að byggja upp að veði. 29.10.2024 11:22
Bjarni fundar með forseta Úkraínu í dag Volodomyr Zelensky forseti Úkraínu fundar með Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra á Þingvöllum síðdegis áður en hann á síðan sameiginlegan fund með forsætisráðherrum Norðurlandanna. Ályktun um að öryggis- og varnarmál verði formlega tekin upp í Helsinkisáttmála Norðurlandaráðs verður afgreidd á þingi þess í Reykjavík. 28.10.2024 12:16
Þakklát fyrir að missa ekki sjónina síðar á ævinni Inga Sæland formaður og stofnandi Flokks fólksins gerir lítið úr væringum innan flokksins nú þegar hún leiðir hann í fjórða sinn í kosningum til Alþingis. Tveir áberandi þingmenn í forystu flokksins, Tómas A. Tómasson í Reykjavíkurkjördæmi norður og Jakob Frímann Magnússon í Norðausturkjördæmi, fengu ekki brautargengi til að leiða flokkinn í kjördæmum sínum. 26.10.2024 08:02
Fjögur erlend fyrirtæki keppa um rekstur Fríhafnarinnar Fjögur erlend fyrirtæki keppast um að fá rekstur Fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli í sínar hendur og er reiknað með niðurstöðu í útboði fyrir áramót. Núverandi innviðaráðherra styður útboðið en fyrrverandi innviðaráðherra var alfarið á móti þessum áætlunum. 24.10.2024 19:31
Forystukonan sem sögð er hafa grátið sig á þing Inga Sæland formaður Flokks fólksins mætir í Samtalið með Heimi Má í opinni dagskrá á Stöð 2 strax að loknum fréttum og Íslandi í dag í kvöld. Hún segir eðlilega breytingar eiga sér stað á framboðslistum flokksins, þótt einn þingmanna hans hafi sagt sig úr flokknum vegna þeirra. 24.10.2024 16:00
Formaður Framsóknar segir ríkisstjórnina hafa talað sjálfa sig niður Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins hefur lagt sjálfan sig að veði í komandi alþingiskosningum með því að taka annað sæti á lista flokksins í Suðurkjördæmi. Þar með baráttusætið því flokkurinn hefur ekki mælst með mann inni úr kjördæminu í nýjustu könnunum. 19.10.2024 08:02