Riddari kannana mætir í Samtalið Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins mætir í Samtalið með Heimi Má í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2-Vísi klukkan 14:00. Flokkur hans tapaði miklu fylgi í kosningunum 2021 en fer nú með himinskautum í könnunum. 10.10.2024 10:05
Ekkert á hreinu um næstu kosningar Forsætisráðherra segir að ríkisstjórn sem ekki hafi burði til að ljúka málum, eigi að pakka saman. Formaður Vinstri grænna sagði eftir ríkisstjórnarfund í morgun að oddvitar stjórnarflokkanna ættu eftir að ræða forgangsröðun mála og tímasetningu kosninga. 8.10.2024 19:21
„Þetta er bara órætt okkar á milli“ Forsætisráðherra segist ekkert hafa rætt hugsanlegar kosningar í vor við hina formenn ríkisstjórnarflokkanna. Landsfundur Vinstri grænna ályktaði um helgina að ganga verði til kosninga næsta vor. 8.10.2024 12:20
Nýir aðilar ráðast í uppbyggingu Vesturbugtar Reykjavíkurborg hefur gengið til samninga við M3 fasteignaþróun um uppbyggingu tæplega 200 íbúða í Vesturbugt við Slippinn í Reykjavík. Félagið greiðir samanlagt um 3,2 milljarða króna fyrir byggingaréttinn og gatnagerðargjöld. 7.10.2024 19:30
Formenn stjórnarflokkanna hljóti að ræða framhaldið Nýkjörinn formaður Vinstri grænna segir forystufólk stjórnarflokkanna væntanlega setjast niður á næstunni til að ræða framhald stjórnarsamstarfsins fram að kosningum, sem Vinstri græn vilja að fari fram næsta vor. Forgangsraða verði málum á félagslegum forsendum. 7.10.2024 19:23
Niðurstaða um Ölfusárbrú væntanleg í þessari viku Innviðaráðherra er bjartsýn á að framkvæmdir við Ölfusárbrú geti hafist á þessu ári. Að undanförnu hafi verið leitað leiða til að framkvæmdin standist forsendur fjárlaga þessa árs um að notendagjöld standi undir kostnaði við brúna. 7.10.2024 13:27
Þorgerður Katrín: Enginn ráðskonurass undir fólki í Viðreisn Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar er keppniskona með mikla reynslu af stjórnmálum og er kominn í hlaupaskóna fyrir næstu alþingiskosningar. Hún segir engann „ráðskonurass undir fólki í Viðreisn," sem taki almannahagsmuni fram yfir sérhagsmuni. Þegar Benedikt Jóhannesson, aðalhvatamaður að stofnun Viðreisnar og fyrsti formaður flokksins, sagði af sér formennskunni aðeins sautján dögum fyrir kosningarnar 2017, stökk Þorgerður Katrín upp í brú á þessu nýsjósetta skipi í ólgusjó íslenskra stjórnmála og kom því í höfn. 5.10.2024 08:00
Kona tveggja flokka í Samtalinu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar mætir í Samtalið með Heimi Má í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi klukkan 14. Hún var vonarstjarna Sjálfstæðisflokksins og varaformaður flokksins um tíma en tók þátt í stofnun Viðreisnar sem hún hefur verið í forystu fyrir í sjö ár. 3.10.2024 10:42
Ólafur Ragnar breytti stöðu forsetaembættisins Prófessor í stjórnmálafræði segir mikinn feng af útgáfu dagbóka Ólafs Ragnars Grímssonar fyrrverandi forseta Íslands. Þær varpi ljósi á hatrammar deilur og veiti fágæta innsýn í atburðarás stjórnmálanna. 1.10.2024 19:31
Ólafur Ragnar Grímsson: Kjörnir fulltrúar eiga ekki að vera í ævarandi leynibandalagi Ólafur Ragnar Grímsson fyrrverandi forseti Íslands telur sig ekki vera að brjóta trúnað við fólk með því að gefa út valdar dagbókarfærslur frá forsetatíð hans. Þar fjallar hann atburðarásina þegar hann fyrstur forseta synjaði lögum frá Alþingi staðfestingar. 1.10.2024 14:46