Fyrirtækin bregðast við háum vöxtum og færa sig yfir í verðtryggð lán Þrátt fyrir hækkandi vaxtastig er áfram nokkur þróttur í nýjum útlánum til fyrirtækja en þau er núna nánast alfarið drifin áfram af sókn þeirra í verðtryggð lán. Frá því um mitt árið í fyrra er hlutfall verðtryggðra útlána meira en áttatíu prósent af öllum nýjum lánum bankanna til atvinnulífsins. 25.3.2024 11:30
Íslandsbanki gerði tilboð í TM með fyrirvara um hækkun hlutafjár Þegar Íslandsbanki gerði skuldbindandi tilboð í TM þá var það meðal annars gert með því skilyrði að hluthafar, þar sem ríkissjóður er langsamlega stærstur, myndu samþykkja í kjölfarið að hækka hlutafé bankans til að standa undir kaupverðinu. Viðskiptin hefðu verið stærri í hlutfalli við eigin fé bankans borið saman við Landsbankann sem var með enga fyrirvara um samþykki hluthafafundar þegar tilboðið hans var samþykkt. 22.3.2024 18:53
Lýsti yfir andstöðu við kaup á TM á fundi með stjórnendum Landsbankans Á fundi með lykilstjórnendum Landsbankans örfáum vikum áður en bankinn gerði skuldbindandi tilboð í allt hlutafé TM hafði fjármála- og efnahagsráðherra komið á framfæri andstöðu sinni við að bankinn myndi ráðast í slík kaup. Ráðherra, sem hefur verið gagnrýnd fyrir að hafa ekki beint tilmælum til Bankasýslunnar áður en kaupin færu fram, hefur sagt það óviðunandi að bankaráð Landsbankans hafi ekki upplýst stofnunina með formlegum hætti um áform bankans. 22.3.2024 10:59
Sakar SKE um „íhlutun íhlutunnar vegna“ en sé ekki að gæta hagsmuna almennings Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður Síldarvinnslunnar, gagnrýnir harðlega starfshætti Samkeppniseftirlitsins, sem rannsakar núna eignatengsl félagsins og Samherja, og spyr hvaða hagsmuni stofnunin er að verja hér á landi og hvaða samkeppni hún telur sig standa vörð um. Hann segir eftirlitið gera sjávarútvegsfélögum erfitt um vik á erlendum mörkuðum í samkeppni við risavaxna keppinauta samhliða því að íslensku fyrirtækin verða alltaf hlutfallslega minni og minni. 21.3.2024 15:22
Telja að tekjurnar fari í um 50 milljarða og verði umfram spár greinenda Samkvæmt afkomuáætlun sem stjórnendur Alvotech hafa gefið út er ráðgert að heildartekjur líftæknilyfjafélagsins geti á þessu ári orðið um 400 milljónir Bandaríkjadala, um fjórfalt meira en í fyrra, og mögulega tvöfaldast árið eftir. Þær áætlanir gætu tekið talsverðum breytingum á næstunni þegar Alvotech klárar sölusamninga í Bandaríkjunum en hin nýja tekju- og afkomuspá, sem markaðsaðilar hafa beðið eftir, er engu að síður nokkuð yfir væntingum greinenda. 21.3.2024 10:53
Tilboð Íslandsbanka í TM var með fyrirvara um samþykki hluthafafundar Tilboð Íslandsbanka, sem er að minnihluta í eigu ríkissjóðs, í allt hlutafé TM var meðal annars háð því skilyrði að kaupin yrðu í kjölfarið samþykkt af hluthöfum bankans. Því var hins vegar ekki fyrir að fara hjá Landsbankanum þegar fallist var á skuldbindandi tilboð hans upp á samtals nálægt 30 milljarða króna í tryggingafélagið. 20.3.2024 17:00
Vöxtum haldið óbreyttum fjórða fundinn í röð en óvissa minnkað eftir kjarasamninga Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum óbreyttum í 9,25 prósent, sem er í samræmi við væntingar meirihluta markaðsaðila og greinenda, en segir að óvissa hafi minnkað eftir að kjarasamningar kláruðust á almennum vinnumarkaði. Nefndin varar hins vegar við hættu á launaskriði vegna spennu í þjóðarbúinu og að verðbólga kunni að reynast þrálát. 20.3.2024 08:55
Bauð talsvert betur en Íslandsbanki í baráttunni um að kaupa TM Fjórum mánuðum eftir að Kvika hafði hrundið af stað formlegu söluferli á TM var það ríkisfyrirtækið Landsbankinn, stærsti banki landsins á alla helstu mælikvarða, sem skilaði inn álitlegasta tilboðinu í allt hlutafé tryggingafélagsins – og ætlar sér núna að blása til sóknar þvert á vilja eigandans. Bankinn naut ráðgjafar fyrrverandi forstjóra annars tryggingafélags til margra ára við kaupin og er sagður hafa augljóslega langað mest allra tilboðsgjafa að komast yfir TM. 19.3.2024 15:03
Tvísýn ákvörðun en markaðurinn veðjar á óbreytta vexti enn um sinn Þrátt fyrir skaplega niðurstöðu í kjarasamningum á almennum vinnumarkaði vegur þyngra að síðasta verðbólgumæling var slæm, talsvert yfir spám greinenda, og því er erfitt fyrir peningastefnunefnd Seðlabankans að réttlæta á þessari stundu að hefja vaxtalækkunarferlið, að mati meirihluta markaðsaðila og hagfræðinga í vaxtakönnun Innherja. Aðrir benda á hækkandi raunvaxtastig, skýr merki um kólnun í hagkerfinu og lækkandi verðbólguvæntingar og telja að bankinn muni því fara í varfærna vaxtalækkun í fyrsta sinn frá árslokum 2020. 18.3.2024 15:04
Gagnrýnir séríslenskt kerfi þar sem lífeyrissjóðum er leyft að móta veruleikann Hjörleifur Pálsson, sem hefur setið í stjórnum fjölmargra fyrirtækja í Kauphöllinni um árabil, fer hörðum orðum um þá þróun sem hefur orðið ofan á með tilnefningarnefndir og telur að þar hafi forsvarsmenn skráðra félaga „almennt sofið fljótandi að feigðarósi.“ Ekki sé hægt að aftengja stjórnir og hluthafa starfi nefndanna, eins og er að gerast, en þannig er búið að eftirláta völdin öllum öðrum en þeim sem hafa reynslu af rekstri og stjórnun skráðra félaga. 17.3.2024 11:23