Sjáðu dramatíkina í Kópavoginum og öll mörkin úr Bestu deild kvenna Breiðablik er áfram með fullt hús stiga á toppi Bestu deildar kvenna eftir dramatískan sigur á Val, 3-2, í gær. Tveir aðrir leikir fóru þá fram en þeir unnust báðir á útivelli. 12.5.2026 15:45
Katrín Tinna til Danmerkur Landsliðskonan í handbolta, Katrín Tinna Jensdóttir, hefur samið við danska úrvalsdeildarliðið HH Elite. Hún hefur leikið með ÍR undanfarin tvö og hálft tímabil. 12.5.2026 13:37
Spilar ekki með landsliðinu vegna forræðisdeilu Luka Doncic, leikmaður Los Angeles Lakers, mun ekki leika með slóvenska körfuboltalandsliðinu í sumar þar sem hann stendur í forræðisdeilu. 12.5.2026 11:33
Einstakt samband hlaupastjörnunnar og þjálfarans í Sextíu mínútum Þeir eru ekki margir átján ára unglingarnir sem hafa verið til umfjöllunar í fréttaskýringaþættinum Sextíu mínútum á CBS. En í þessari viku var fjallað um ástralska undrabarnið Gout Gout og einstakt samband hans við þjálfarann reynda, Di Sheppard. 12.5.2026 11:03
OKC sópaði Lakers og methálfleikur hjá Mitchell Meistarar Oklahoma City Thunder eru komnir í úrslit Vesturdeildar NBA eftir að hafa sópað Los Angeles Lakers. Í Austurdeildinni jafnaði Cleveland Cavaliers metin gegn Detroit Pistons, þökk sé ótrúlegum seinni hálfleik hjá Donovan Mitchell. 12.5.2026 10:32
Birgir Már til Amicitia Zürich Örvhenti hornamaðurinn Birgir Már Birgisson hefur samið við svissneska félagið Amicitia Zürich. Hann hefur leikið með FH síðan 2018. 12.5.2026 09:35
Fjölluðu um aukið hártog: „Þetta er galið og út með þetta“ Þótt aðeins fjórar umferðir séu búnar af Bestu deild kvenna í fótbolta hafa tveir leikmenn verið reknir af velli fyrir að toga í hár mótherja. Fjallað var um aukna tíðni hártogs í Bestu mörkum kvenna. 12.5.2026 09:01
Sjáðu mörkin og magnaðar vörslur hjá Kinský Tottenham er enn í mikilli fallhættu eftir 1-1 jafntefli við Leeds United í ensku úrvalsdeildinni í gær. Liðið er ósigrað í síðustu fjórum leikjum en er bara tveimur stigum frá fallsæti þegar tvær umferðir eru eftir. 12.5.2026 08:31
„Aðeins þeim sem vilja ekki að Arsenal verði meistari fannst þetta ekki vera brot“ Jamie Carragher segir engan vafa á því að brotið hafi verið á David Raya, markverði Arsenal, í markinu sem var dæmt af West Ham United í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn. 12.5.2026 08:00
Karlotta hljóp alls 742,6 kílómetra í Búlgaríu Ofurhlauparinn Karlotta Ósk Óskarsdóttir hefur lokið keppni í tíu daga hlaupi í Sofiu í Búlgaríu. Hún hljóp alls 742,6 kílómetra. 12.5.2026 07:35