Ætla að sækja einn og hálfan milljarð frá skemmtiferðaskipum Nýtt innviðagjald sem heimta á af erlendum skemmtiferðaskipum á að skila ríkissjóði 1,5 milljörðum króna umfram þær tekjur sem hann hefði annars fengið. Tilgangurinn er sagður að jafna samkeppnisstöðu innlendra og erlendra ferðaþjónustufyrirtækja. 24.10.2024 10:45
Hótar því að banna georgísku stjórnarandstöðuna Stofnandi Georgíska draumsins, stjórnarflokks Georgíu, ítrekaði í gær hótanir sínar um að banna stjórnarandstöðuflokkana vinni flokkur hans sigur í þingkosningum um helgina. Niðurstöður þeirra ráða því hvort Georgía leiti aftur í faðm Rússlands eða efli tengslin til vesturs. 24.10.2024 09:03
Bjóða upp á veðmál um leiki barna og styrkja knattspyrnurisa Samstarfsaðili knattspyrnurisanna Barcelona og PSG býður upp á veðmál um úrslit þúsunda áhugamannaleikja sem hann streymir frá og þar sem keppendur eru allt niður í fjórtán ára gamlir. Starfsemi fyrirtækisins er ólögleg víða en hægt er að veðja á síðunni á Íslandi, meðal annars á úrslit íslenskra leikja. 24.10.2024 08:32
Meirihluti Frakka telur lýðræðið ekki virka Flestir svarendur skoðanakönnunar í Frakklandi sögðust telja að lýðræðið virkaði ekki og fjórðungur sagði að það væri ekki besta stjórnskipulagið sem völ væri á. Meira en helmingur svarenda sagði að það þyrfti „sterkt vald“ til að halda uppi lögum og rétti í landinu. 24.10.2024 08:29
Taldi kennara hafa komið kröfum sínum ítrekað á framfæri Félagsdómur taldi að Kennarasamband Íslands hefði ítrekað komið kröfum sínum á framfæri við Samband íslenskra sveitarfélaga áður en það boðaði til verkfallsaðgerða. Kennarasambandið var sýknað af kröfu sveitarfélaganna um að verkfallsboðunin væri lýst ólögmæt. 23.10.2024 13:35
Íbúum Úkraínu fækkað um tíu milljónir frá innrásinni Sameinuðu þjóðirnar áætla að íbúum Úkraínu hafi fækkað um fjórðung eða tíu milljónir manna frá því að innrás Rússa í landið hófst af fullum krafti fyrir tveimur árum. Fækkunin er rakin til fólksflótta, hruni í fæðingartíðni og mannfalli í stríðinu. 23.10.2024 11:50
Kennarar telja rúma milljón í grunnlaun sanngjarna Formaður Félags grunnskólakennara segir sanngjarnt að miða við að kennarar hafi rúma milljóna króna í grunnlaun. Verkfallsaðgerðir kennara hefjast eftir helgi að óbreyttu eftir að félagsdómur dæmdi boðun þeirra löglega í morgun. 23.10.2024 10:26
Verkfallsboðun kennara dæmd lögleg Félagsdómur sýknaði Kennarasamband Íslands af kröfu Sambands íslenskra sveitarfélaga sem taldi verkfallsboðun kennara ólöglega í morgun. 23.10.2024 09:32
Atvinnuleysi tvöfaldaðist í september Hlutfall atvinnulausra tvöfaldaðist á milli mánaða í september og var 5,2 prósent þegar leiðrétt hefur verið fyrir árstíðarbundnum sveiflum. Vinnumálastofnun segist ekki sjá sömu þróun í sínum gögnum. 23.10.2024 09:16
Boxstjórnandi sem hleypti upp Ólympíuleikum nátengdur Kreml Siðafár sem var búið til í kringum tvær hnefaleikakonur á Ólympíuleikunum í sumar var runnið undan rifjum sambands sem lýtur stjórn rússnesks glæpamanns með náin tengsl við stjórnvöld í Kreml. Rússland var meinuð þátttaka á leikunum og er sagt hafa viljað hleypa þeim upp af þeim sökum. 23.10.2024 07:02