Prófessor slær á áhyggjuraddir Gylfi Magnússon, hagfræðingur, prófessor við Háskóla Íslands og fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra, segir ekki nokkra leið að fá það út, miðað við forsendur frumvarps ráðherra um tengingu bóta við launavísitölu, að breytingin eigi eftir að stefna fjárhag ríkisins í hættu. Annað mál sé þó hversu óskýrt orðalagið sé varðandi það hvað eigi að gera þegar laun hækka en það sé auðvelt að breyta því. 19.2.2026 07:32
„Við löbbum ekki bara og hrösum um Esjuna“ Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar segir mikilvægt að muna eftir litlu hlutunum sem gleðja mann þegar þetta stóra veldur miklum áhyggjum. Sjóvá og Geðhjálp standa nú fyrir ánægjuátaki til að minna fólk á litlu hlutina. Hann segir átakið aðstoða við stofnun fyrsta Skjólshúss Geðhjálpar. 19.2.2026 07:30
Borgin taki til sín fimmtung launahækkunar barnafólks VR gerir ráð fyrir því að Reykjavíkurborg taki um 20 prósent, eða fimmtung, af kjarasamningsbundnum launahækkunum barnafjölskyldna í borginni á þessu ári. Mest muni þar í krónum talið um nýkynnta hækkun á leikskólagjöldum en hitaveitukostnaður vegi einnig hlutfallslega þungt. 18.2.2026 15:02
Innkalla brúna rúllutertu Gæðabakstur-Ömmubakstur hefur í samstarfi við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur tekið ákvörðun um að innkalla Kristjánsbakarís brúna rúllutertu vegna aðskotahlutar í afmarkaðri lotu. 18.2.2026 13:12
Gengu tíu kílómetra til að geta óskað eftir aðstoð Flugbjörgunarsveitin í Varmahlíð og björgunarsveitin Skagfirðingasveit á Sauðárkróki komu fjórum ferðamönnum til aðstoðar í gær sem höfðu fest bíla sína í Mælifellsdal. Fólkið gekk tíu kílómetra í 18 stiga frosti til að komast í símasamband til að láta vita af sér. 18.2.2026 10:28
Maðurinn sem lýst var eftir fundinn Maðurinn sem lögregla lýsti eftir í gær er fundinn. Í tilkynningu lögreglu í gær var hann beðinn að hafa samband eða fólk beðið að hafa samband þekkti það til hans. Ekki kom fram í tilkynningu hvers vegna lögregla vildi ná tali af manninum. 18.2.2026 08:38
Eigi að „brenna barnaverndarkerfið til grunna og byrja aftur“ Unnar Þór Sæmundsson vill að allt barnaverndarkerfið verði endurskoðað og byggt upp frá grunni. Í aðsendri grein leggur Unnar til að núverandi kerfi verði „brennt til grunna og byrjað aftur“. Unnar er einn drengjanna sem var vistaður á Bakkakoti. 18.2.2026 08:19
Snjókoman náði ekki yfir Hellisheiðina Ekkert hefur snjóað á höfuðborgarsvæðinu eins og spáð hafði verið. Veðurfræðingur segir að litlu hafi munað, aðeins fjórum eða fimm kílómetrum, að snjókoman næði þangað. Gul viðvörun er á Suður- og Suðausturlandi en snjórinn léttur og festist illa. 18.2.2026 07:27
Kvikuhlaup og eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Kvikusöfnun undir Svartsengi er hæg en stöðug, líkt og hún hefur verið síðustu vikurnar. Samkvæmt líkanreikningum hafa nú um 22 milljón rúmmetrar af kviku safnast fyrir undir Svartsengi frá síðasta eldgosi í júlí. Þetta er eitt mesta rúmmál sem mælst hefur frá upphafi atburðanna. 17.2.2026 14:59
Fyrrverandi markvörður vill fram fyrir Miðflokk Beitir Ólafsson, fyrrverandi markvörður KR og HK, hefur óskað eftir sæti á lista Miðflokksins í Kópavogi í sveitarstjórnarkosningum í vor. Í tilkynningu frá Beiti segir hann að flokkurinn hafi skapað sér sess með orðræðu sem hann tengi við. 17.2.2026 14:41