Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Lovísa Arnardóttir skrifar 19. september 2026 08:12 Hann segir samninginn eyða óvissu. Vísir/EPA Utanríkisráðherra Danmerkur, Lars Løkke Rasmussen, segir næstu viku geta orðið góða viku í sínum fyrstu viðbrögðum við því að samningur hafi náðst á milli Bandaríkjanna, Grænlands og Danmerkur um öryggismál á Grænlandi. „
Næsta vika getur orðið góð vika ... fyrir bæði Grænland, Danmörku og Bandaríkin. Vonandi verður langvarandi óvissu skipt út fyrir bindandi samning sem styrkir öryggi á norðurslóðum og í Norður-Atlantshafi og þar með einnig sameiginlegt öryggi okkar innan NATO og í Evrópu,“ segir í færslu hans á Instagram. View this post on Instagram A post shared by Lars Løkke Rasmussen (@larsloekke) Løkke birti ásamt textanum mynd frá heimsókn sinni til Washington í byrjun árs, þar sem hann hitti J.D. Vance, varaforseta Bandaríkjanna, Marco Rubio, utanríkisráðherra landsins og Vivian Motzfeldt sem fór þá með stjórn utanríkismála á Grænlandi. Í færslunni sagði hann einnig að virðing fyrir „rauðum línum konungsríkisins“ væri mikilvæg „þegar öryggispólitískt landslag, einnig á norðurslóðum, hefur breyst.“ Undirritaður í næstu viku Gert er ráð fyrir að nýr samningur Bandaríkjanna við Danmörku um öryggismál í Grænlandi verði undirritaður í New York á næstu dögum á athöfn í tengslum við Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna. Því á að ljúka þann 28. september. Donald Trump forseti Bandaríkjanna greindi í fyrstu frá samningnum á samfélagsmiðli sínum Truth Social en síðar hafa stjórnvöld í Danmörku og á Grænlandi staðfest hann. Í frétt DR um málið segir að Donald Trump Bandaríkjaforseti, Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur og Jens-Frederik Nielsen, formaður Naalakkersuisut, heimastjórnar Grænlands, eigi að undirrita samninginn. Þá segir í frétt miðilsins að forsætisráðuneyti Danmerkur hafi staðfest í fréttatilkynningu að gert sé ráð fyrir að samningurinn verði undirritaður í tengslum við allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna. Samkvæmt ráðuneytinu þarf samningurinn fyrst að fara í gegnum nauðsynlegar þinglegar málsmeðferðir áður en hann getur tekið gildi. Fram kemur í fréttinni að miðlinum hafi ekki tekist að fá nánari upplýsingar frá ráðuneytinu um málið. Margra mánaða samningaviðræður Trump sagði í færslu sinni á Truth Social í gær að nú loksins lægi fyrir samningur um framtíð Grænlands eftir margra mánaða samningaviðræður milli þjóðanna þriggja. Trump sagði samninginn veita Bandaríkjunum varanlega stjórn á öryggismálum og öllum öðrum þörfum á Grænlandi og taka að fullu á öllum þeim fjölmörgu áhyggjum sem Bandaríkjamenn hafi. Þá kom fram að Bandaríkin muni þegar í stað hefja umfangsmikla hernaðarviðveru á viðeigandi hluta Grænlands. Fram kemur í dönskum miðlum að bæði Mette Frederiksen forsætisráðherra og Jens-Frederik Nielsen, leiðtogi Grænlands, hafi lagt mikla áherslu á að samningurinn „viðurkenni fullveldi konungsríkisins“ og sjálfsákvörðunarrétt Grænlendinga.
Danmörk Grænland Bandaríkin Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Öryggis- og varnarmál Utanríkismál Donald Trump Tengdar fréttir Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Dönskum herþotum af gerðinni F-35 var á miðvikudaginn lent á Grænlandi í fyrsta sinn. Þar tóku flugmenn þeirra þátt í æfingum með flugmönnum frá Bandaríkjunum á F-16 og Kanada á F-18. Flugvélarnar eru gerðar út frá Keflavík um þessar mundir. 18. september 2026 10:40 Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Þegar Donald Trump hafði verið nýendurkjörinn Bandaríkjaforseti í nóvember 2024 hringdi hann í Bjarna Benediktsson, þá forsætisráðherra, og nefndi meðal annars hvort Ísland ætti að verða 51. ríki Bandaríkjanna, þó í gamansömum tón. Þetta samtal var rifjað upp á fundi utanríkismálanefndar í lok ágúst. 10. september 2026 20:25 Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Bandaríkjaforseti er ekki einn um það að líta hýru auga til Grænlands. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, er sögð munu í heimsókn sinni í dag boða aukinn fjárstuðning við Grænland. Þetta gerist í skugga hótana Bandaríkjaforseta um að leggja undir sig eyjuna. Erlendir miðlar setja þetta einnig í samhengi við nýafstaðna atkvæðagreiðslu þar sem Íslendingar höfnuðu aðildarviðræðum við Evrópusambandið. 6. september 2026 14:05 Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Fleiri fréttir Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Sjá meira
Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Dönskum herþotum af gerðinni F-35 var á miðvikudaginn lent á Grænlandi í fyrsta sinn. Þar tóku flugmenn þeirra þátt í æfingum með flugmönnum frá Bandaríkjunum á F-16 og Kanada á F-18. Flugvélarnar eru gerðar út frá Keflavík um þessar mundir. 18. september 2026 10:40
Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Þegar Donald Trump hafði verið nýendurkjörinn Bandaríkjaforseti í nóvember 2024 hringdi hann í Bjarna Benediktsson, þá forsætisráðherra, og nefndi meðal annars hvort Ísland ætti að verða 51. ríki Bandaríkjanna, þó í gamansömum tón. Þetta samtal var rifjað upp á fundi utanríkismálanefndar í lok ágúst. 10. september 2026 20:25
Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Bandaríkjaforseti er ekki einn um það að líta hýru auga til Grænlands. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, er sögð munu í heimsókn sinni í dag boða aukinn fjárstuðning við Grænland. Þetta gerist í skugga hótana Bandaríkjaforseta um að leggja undir sig eyjuna. Erlendir miðlar setja þetta einnig í samhengi við nýafstaðna atkvæðagreiðslu þar sem Íslendingar höfnuðu aðildarviðræðum við Evrópusambandið. 6. september 2026 14:05