Dawson's Creek leikari með krabbamein Bandaríski leikarinn James Van Der Beek hefur verið greindur með ristilkrabbamein. Van Der Beek er hvað þekktastur fyrir leik sinn í unglingaþáttunum Dawson‘s Creek og kvikmyndinni Varsity Blues. Hann er 47 ára gamall. Hann greindi frá greiningunni í viðtali við tímaritið People. 4.11.2024 07:30
Þétt skjálftavirkni í nótt en ekki nægur kraftur fyrir kvikuhlaup Viðbragð Veðurstofunnar var virkjað í stuttan tíma í nótt vegna mögulegs kvikuhlaups. Almannavörnum var tilkynnt um málið. Um hálftíma síðar var þó komið í ljós að ekki var um kvikuhlaup að ræða. Nokkuð þétt skjálftavirkni var á milli tvö og þrjú við Stóra-Skógfell og Sýlingarfell. 4.11.2024 07:08
Verkfallið hafi mikil áhrif á fáar fjölskyldur og lítil áhrif á samfélagið Móðir barns á leikskólanum Drafnarsteini segir erfitt að réttlæta verkfallsaðgerðir kennara í leikskólum sem nú standa yfir. Ótímabundin verkföll eru í fjórum leikskólum. Jóhanna Dröfn Stefánsdóttir segir í aðsendri grein á Vísi að aðgerðirnar séu mismunun og að betra væri fyrir kennara að leggja niður störf á fleiri stöðum til að ná fram kröfum sínum. 4.11.2024 06:28
Rétt meðhöndlun hakksins hefði komið í veg fyrir veikindi Framkvæmdastjóri Kjarnafæðis segir fyrirtækið hafa átt í nánum samskiptum við MAST allt frá því að E. coli smit kom upp á leikskólanum Mánagarði. Það sé miður að fjöldi barna hafi veikst en með réttri meðhöndlun á hakkinu hefði verið hægt að koma í veg fyrir það. 1.11.2024 12:17
Uppruni smitsins var hakk frá Kjarnafæði Rannsóknir Matís á uppruna E.coli smits á leikskólanum Mánagarði hafa staðfest að bakterían var í hakki sem var matreitt á leikskólanum. Niðurstaða rannsóknarinnar er að meðhöndlun hakksins á leikskólanum var ekki fullnægjandi með tilliti til hreinlætis. 1.11.2024 10:49
Leggur hristarann á hilluna eftir mótið Grétar Matthíasson keppir um helgina í Heimsmeistaramótinu í kokteilagerð í Madeira í Portúgal. Keppninni lýkur á sunnudag. Grétar hefur ákveðið að leggja kokteilahristarann á hilluna eftir keppninni og taka að sér þjálfun. 1.11.2024 10:36
Hætta á að Grindavík fari í greiðsluþrot Grindavíkurnefnd segir hættu á að bærinn fari í greiðsluþrot á næsta ári verði ekki brugðist við. Bærinn geti verið rekinn í 1,5 til tveggja milljarða halla á næsta ári. Bæjarstjórn Grindavíkur skorar á þingmenn að samþykkja lagabreytingar sem varða afkomu og húsnæðismál Grindvíkinga sem allra fyrst og á yfirstandandi þingi. 1.11.2024 08:28
Segir ummæli Trump um konur móðgun við alla Kamala Harris varaforseti Bandaríkjanna og forsetaefni Demókrata segir ummæli Donald Trump um að hann ætli að vernda konur „sama þótt þær vilji það eða ekki“ móðgun við alla. Harris segir þessi ummæli sýna að hann skilji ekki umboð kvenna, yfirráð þeirra eða rétt þeirra og getu til að taka ákvarðanir um sitt eigið líf, þar á meðal líkama sína. 1.11.2024 07:26
Þau skipa framboðslista Lýðræðisflokksins Lýðræðisflokkurinn hefur nú birt fullskipaða lista sína fyrir alþingiskosningarnar 30. nóvember. Flokkurinn býður fram í fyrsta sinn í öllum kjördæmum og er með listabókstafinn L. Flokkurinn er stofnaður af Arnari Þór Jónssyni lögmanni og fyrrverandi forsetaframbjóðanda. 1.11.2024 06:43
Greiða bætur vegna tækja sem eyðilögðust eða biluðu í rafmagnsleysinu RARIK mun greiða fólki bætur vegna tækja sem eyðilögðust í víðtæku rafmagnsleysi þann 2. október. Frá þessu er greint í tilkynningu frá RARIK og jafnframt að þau muni, ásamt TM, taka yfir öll samskipti og umsýslu vegna tjónatilkynninga. 1.11.2024 06:17