Innlent

Kveiksþætti kippt út tímabundið

Agnar Már Másson skrifar
Þátturinn var frumsýndur í gær.
Þátturinn var frumsýndur í gær. Vísir/Vilhelm

Þáttur Kveiks um einkarekin búsetuúrræði fyrir börn með fjölþættan vanda hefur tímabundið verið fjarlægður af vef Ríkisútvarpsins. Ritstjórinn segir að breyta hafi þurft myndefni í þættinum.

„Hann er á leiðinni aftur inn,“ segir Ragnhildur Þrastardóttir, ritstjóri Kveiks, um þáttinn í samtali við Vísi. Hún segir að uppfæra hafi þurft myndefni.

„Þetta eru engar miklar breytingar,“ bætir ristjórinn við en kvaðst ekki geta skýrt frekar hvaða breytingar verði gerðar.

Þátturinn, sem fjallar um öryggismál á einkareknum búsetuúrræðum fyrir börn með fjölþættan vanda, hefur vakið mikla athygli frá því að hann var frumsýndur í ríkissjónvarpinu í gærkvöldi. Þar var sjónum einkum beint að bágu öryggi barna í slíkum úrræðum og skorti á eftirliti.

Rúv greinir frá því að eftir að þátturinn var sýndur í gær hafi Börkur Birgisson, sem á að baki dóma fyrir alvarlega ofbeldisglæpi, birt fjölda ljósmynda á samfélagsmiðlum sem sýndu einn af viðmælendum Kveiks. Viðmælandinn hafði rætt um aðkomu Barkar að búsetuúrræði í þættinum.

Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, skrifaði aðsenda grein á Vísi í gær þar sem hann sagði að viðvörunarljós vegna slíkra úrræða hefðu blikkað svo árum skipti og lítið hefði verið gert í málaflokknum af hálfu stjórnvalda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×