Vann rúmar 55 milljónir í Lottó Einn ljónheppinn miðahafi vann rúmar 55 milljónir króna í Lottó í kvöld. Miðaeigandinn keypti miðann á lotto.is. 22.6.2024 20:13
Ríkisstjórnin hafi séð um það sjálf að stúta eigin málum Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar segir stjórnarandstöðuna hafa fengið verulega samkeppni í stjórnarandstöðu frá þingliði ríkisstjórnarflokkanna. Hún segir ljóst að ríkisstjórnin hefði ekki getað klárað mörg mál án aðstoðar stjórnarandstöðunnar. 22.6.2024 19:44
Af hættustigi niður á óvissustig Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum, hefur ákveðið að færa almannavarnastig af hættustigi á óvissustig vegna umbrota á Reykjanesi. Gosórói hefur farið minnkandi á síðustu sólarhringum en svæðið verður áfram vaktar af Veðurstofunni og lögreglunni á Suðurnesjum. 22.6.2024 18:15
Þriggja saknað eftir aurskriðu í Ölpunum Þriggja er saknað eftir að bálviðri og úrhelli olli aurskriðu í Alpadalnum Misox in Graubuenden í Sviss. Einni konu tókst að bjarga úr skriðunni en hinna þriggja er enn leitað. 22.6.2024 18:01
Enn ekkert spurst til týnda unga mannsins á Tenerife Vinir Jay Slater, nítján ára gamals manns sem hefur verið týndur á Tenerife síðan á mánudagsmorgun, hafa beðið bresku og spænsku lögreglurnar um að veita þeim liðsauka í leitinni. Hann var í sínu fyrsta fríi án foreldra sinna þegar hann týndist. 20.6.2024 23:42
Fordæma notkun „ómannúðlegra“ minkagildra Jacobina Joensen formaður dýraverndunarfélagsins Villikatta segir félagið fordæma einstaklinga, sveitarfélög og félagasamtök sem nota minkagildrur. Þær séu hannaðar til að meiða dýr og það sé óskiljanlegt að þær séu enn leyfðar á Íslandi. 20.6.2024 22:51
Fólk hvatt til að sýna aðgát vegna skriðufallahættu á Norðurlandi Ofanflóðssérfræðingar Veðurstofu Íslands brýna til fólks að sýna aðgát og fylgjast vel með aðstæðum í fjallshlíðum þar sem fólk er að störfum. Í dag slapp bóndi í Eyjafjarðardal naumlega undan aurskriðu sem féll við Halldórsstaði þar sem hann var að þvæla fé upp á fjöll. 20.6.2024 22:41
Stjórnarflokkarnir séu farnir að stilla sér upp fyrir kosningabaráttu Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði segir að, þó að Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir hafi varist vantrausti með talsverðum meirihluta, varpi atkvæðagreiðslan enn skærara ljósi á þá úlfúð og óeiningu sem ríkir í ríkisstjórnarsamstarfinu. 20.6.2024 21:15
Sinubruni ógnar einum uppáhaldsgolfvelli íslenskra ferðamanna Stór eldur logar í sinu við á Orihuela Costa á sunnanverðum Spáni. Eldurinn er nokkuð umfangsmikill og logar á milli golfvallanna við Campoamor og Las Ramblas, báðir eru mjög vinsælir meðal íslenskra ferðamanna og golfunnenda og eiga margir Íslendingar sumarhús á svæðinu. 20.6.2024 20:07
Komst naumlega undan aurskriðu í Eyjafjarðardal Ragnar Jónsson bóndi á Halldórsstöðum innst í Eyjafirði var að klára að sleppa fé sínu upp á fjall þegar hann þurfti að bruna undan aurskriðu sem féll þar sem hann stóð. 20.6.2024 19:34