Dagskráin í dag: Besta deild kvenna og Ofurbikar Evrópu Tveir knattspyrnuleikir eru í beinni útsendingu Stöðvar 2 Sport í dag sem og Bestu mörkin en þar verður farið yfir allt það helsta sem gerðist í síðustu umferð Bestu deildar kvenna. 16.8.2023 06:01
Úr stálinu í Sheffield í sólina í Los Angeles Goðsögnin Billy Sharp hefur ákveðið að kalla þetta gott á Englandi eftir hrikalega farsælan feril og færa sig um set. Hann yfirgaf Sheffield United í sumar og hefur nú samið við LA Galaxy í MLS-deildinni í Bandaríkjunum. 15.8.2023 23:30
Kolbeinn að semja við Gautaborg Hinn fjölhæfi Kolbeinn Þórðarson er við það að semja við sænska efstu deildarfélagið Gautaborg. 15.8.2023 23:01
Hörður Björgvin og félagar áfram í Meistaradeildinni Landsliðsmaðurinn Hörður Björgvin Magnússon og liðsfélagar hans í gríska liðinu Panathinaikos eru komnir í umspil um sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu eftir að hafa lagt Marseille að velli eftir vítaspyrnukeppni. 15.8.2023 22:06
Chelsea nær samkomulagi um kaup á Lavia Enska knattspyrnufélagið Chelsea heldur áfram að vera virkasta félagið á leikmannamarkaðnum en í kvöld var staðfest að samkomulag hefði náðst á milli liðsins og Southmapton um kaup á belgíska miðjumanninum Romeo Lavia. 15.8.2023 21:31
Íslendingalið FC Kaupmannahafnar áfram eftir vítaspyrnukeppni Orri Steinn Óskarsson kom inn af varamannabekk FC Kaupmannahafnar þegar liðið tryggði sér sæti í umspili um sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Sigurinn var vægast sagt naumur en einvígi FCK og Sparta Prag frá Tékklandi réðst í vítaspyrnukeppni. 15.8.2023 20:30
Áfall fyrir Englands- og Evrópumeistarana Kevin de Bruyne, einn mikilvægasti leikmaður Englands- og Evrópumeistara Manchester City, verður frá næstu þrjá til fjóra mánuðina vegna meiðsla sem hann varð fyrir í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. 15.8.2023 19:01
Steven Lennon í Þrótt Það er nóg um að vera í Laugardalnum í dag en rétt í þessu staðfesti Þróttur Reykjavík að skoski framherjinn Steven Lennon muni spila með liðinu á láni út tímabilið. Skömmu þar áður var tilkynnt að landsliðskonan Elín Metta Jensen hefði tekið skóna af hillunni og myndi spila með kvennaliði félagsins til 2024. 15.8.2023 17:55
Elín Metta í Þrótt Landsliðskonan fyrrverandi Elín Metta Jensen hefur ákveðið að taka takkaskóna af hillunni og er genginn í raðir Þróttar Reykjavíkur í Bestu deild kvenna í knattspyrnu. 15.8.2023 17:30
Gætu frestað ákvörðun varðandi framtíð Greenwood þangað til í september Enska knattspyrnufélagið Manchester United hefur ekki enn tekið ákvörðun varðandi framtíð framherjans Mason Greenwood. Talið er líklegt að félagið gæti tilkynnt ákvörðun sína í landsleikjahléinu í næsta mánuði. 15.8.2023 07:01