Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 13. september 2026 09:51 Andy Burnham gæti orðið síðasti forsætisráðherra sameinaðs Bretlands ef marka má orð skoska forsætisráðherrans John Swinney. Leon Neal/AP Leiðtogar Skotlands, Wales og Norður-Írlands ætla að funda á mánudag og skrifa undir sameiginlega viljayfirlýsingu þar sem þeir munu krefjast þess að haldnar verði þjóðaratkvæðagreiðslur um að þau kljúfi sig frá Bretlandi. Wales og Skotland verði sjálfstæð ríki en Norður-Írland hluti af Írlandi.
Telegraph greinir frá þessu en miðillinn segir leiðtoga landanna þriggja ætla að hittast á sögulegum fundi í Cardiff á morgun, mánudag. Nú séu í fyrsta sinn við völd flokkar í öllum þremur löndunum sem styðji sjálfstæði, Plaid Cymru í Wales, Skoski þjóðarflokkurinn í Skotlandi og Sinn Fein í Norður-Írlandi. Fram kemur að Andy Burnham forsætisráðherra Bretlands hafi sagt í umræðum á breska þinginu að hann myndi ekki standa í vegi fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Skotlands ef skýr meirihlutavilji væri fyrir hendi um eina slíka. Skotar héldu síðast þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði árið 2014 þar sem 55,3 prósent sögðu nei en 44,7 prósent já. John Swinney leiðtogi Skoska þjóðarflokksins og forsætisráðherra Skotlands segir að Burnham gæti þurft að sætta sig við þá staðreynd innan tíðar að hann verði síðasti forsætisráðherra sameinaðs Bretlands. Allir þrír ráðherrarnir, hann auk Rhun ap lowerth forsætisráðherra Wales og Michelle O'Neil forsætisráðherra Norður-Írlands séu sammála um að óbreytt staða sé ekki sjálfbær. „Í fyrsta sinn í sögunni eru Skotland, Wales og Norður-Írland undir forystu forsætisráðherra sem eru fylgjandi sjálfstæði. Það gæti ekki verið skýrara merki um að óbreytt ástand sé ekki sjálfbært, og að Westminster verði að búa sig undir framtíð eftir Bretland.“ Telegraph segir að ráðherrarnir muni funda saman auk leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Norður-Írlandi. Þeir muni undirrita samkomulag sem muni varða fjóra málaflokka, efnahagsmál, orkumál, Evrópumál og alþjóðamál og sameiginlegan sjálfsákvörðunarrétt. Allir þrír flokkarnir muni undirrita viljayfirlýsingu þess efnis að þjóðir þeirra eigi að vera í ESB, Skotland og Wales sem nýir meðlimir og Norður-Írland sem hluti af Írlandi. Miðillinn segir að með samkomulaginu vonist ráðamenn í Wales til þess að fá til sín frekari völd í skattamálum. Þá hefur Telegraph eftir heimildarmanni í Sinn Fein að flokkurinn telji líklegt að sameinað Írland geti orðið möguleiki von bráðar. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gær í heimsókn sinni í Írlandi að hann styddi hugmyndina. Telegraph segir hinsvegar að Andy Burnham forsætisráðherra Bretlands hafi sent John Swinney forsætisráðherra Skotlands bréf á fimmtudag þar sem hann hafi tjáð honum að skosk þjóðaratkvæðagreiðsla væri ekki í boði fyrir næstu þingkosningar í Bretlandi, sem haldnar verða árið 2029. Ekki sé skýr meirihluti fyrir tillögunni í Skotlandi né heldur ljóst að skýr meirihluti í Norður-Írlandi vilji kljúfa sig frá Bretlandi.
Bretland Skotland Wales Norður-Írland Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira