Sverrir Ingi byrjar á sigri í Danmörku Midtjylland vann Hvidovre 1-0 í fyrsta leik tímabilsins í dönsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. 21.7.2023 19:11
Er „þannig séð sáttur“ í Hollandi en dreymir um England Landsliðsmaðurinn Willum Þór Willumsson mætti nýverið í hlaðvarpsþáttinn Chat After Dark, áður Chess After Dark. Þar fór hann yfir stöðu mála en Willum Þór er samningsbundinn Go Ahead Eagles í Hollandi. Það er þó áhugi frá öðrum liðum en hár verðmiði Eagles hefur gert það að verkum að enn hefur ekkert tilboð borist. 21.7.2023 18:15
Viðar Ari gæti spilað með Fram í sumar Viðar Ari Jónsson æfir um þessar mundir með liði Fram í Bestu deild karla í knattspyrnu. Hann er samningslaus eftir að hafa yfirgefið ungverska liðið Honvéd og gæti spilað með Fram í Bestu deildinni ef ekkert býðst erlendis. 21.7.2023 16:45
Keflavík fær liðsstyrk frá Kanada Melanie Claire Rendeiro er gengin til liðs við Keflavík í Bestu deild kvenna í knattspyrnu. 20.7.2023 23:31
Botnliðið fær liðsstyrk Selfoss hefur samið við Abby Burdette um að leika með liðinu út tímabilið í Bestu deild kvenna í knattspyrnu. Selfoss situr sem stendur á botni deildarinnar með aðeins sjö stig, fimm frá öruggu sæti. 20.7.2023 17:31
Rekinn eftir tapið gegn Klaksvík Þjálfari ungverska knattspyrnuliðsins Ferencváros, Stanislav Chercheso, var látinn taka poka sinn eftir 0-3 tap gegn KÍ Klaksvík frá Færeyjum í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu. 20.7.2023 17:00
Skinner nýr þjálfari Dagnýjar hjá West Ham Kvennalið West Ham United hefur ráðið nýjan þjálfara. Sú heitir Rehanne Skinner og er 43 ára gömul. Hún býr yfir 20 ára reynslu og þjálfaði síðast Tottenham Hotspur. 20.7.2023 16:30
Ræddi við franska blaðamenn: Vildi prófa stærri deild og líkar við leikstíl Lille Franska úrvalsdeildarfélagið Lille kynnti Hákon Arnar Haraldsson fyrir fjölmiðlum í dag. Þar var svaraði hann hinum ýmsu spurningum, meðal annars um ákvörðun sína að fara til Lille og hvar á vellinum hann mun spila fyrir félagið. 20.7.2023 13:30
Brasilíska ríkisstjórnin breytir vinnutímum vegna HM í fótbolta Opinbert starfsfólk í Brasilíu þarf ekki að hafa áhyggjur af því að mæta seint til vinnu þó það horfi á leiki kvennalandsliðsins á HM frá upphafi til enda. Hefðbundnum vinnudegi verður breytt svo fólk geti fylgst með landsliðinu. 20.7.2023 12:30
Metfjöldi sá Matildurnar byrja á sigri Ástralía lagði Írland með einu marki gegn engu í fyrsta leik liðanna á HM kvenna í knattspyrnu. Aldrei hafa fleiri komið saman til að horfa á kvennaknattspyrnu í Ástralíu. 20.7.2023 12:02