Cloé skoraði tvö í sigri Benfica á Rosengård Cloé Lacasse, fyrrum leikmaður ÍBV, skoraði í kvöld tvö af þremur mörkum Benfica í 3-1 útisigri á Guðrúnu Arnarsdóttur og stöllum hennar í Rosengård þegar liðin mættust í Meistaradeild Evrópu. 7.12.2022 19:45
Myndband: Haukur fór að því virtist alvarlega meiddur af velli Landsliðsmaðurinn Haukur Þrastarson virtist meiðast illa á hné í leik Pick Szeged og Lomza Kielce í Meistaradeild Evrópu í handbolta í kvöld. Neðst í fréttinni má sjá myndband af atvikinu. 7.12.2022 19:21
Nýliðar HK sækja liðsstyrk til Eyja HK hefur sótt sinn fyrsta leikmann fyrir komandi tímabil í Bestu deild karla í fótbolta. Sá heitir Atli Hrafn Andrason og kemur frá ÍBV. 7.12.2022 19:00
Fleiri Færeyingar á leiðinni í Kópavog? Það er nóg um að vera á skrifstofu Íslandsmeistara Breiðabliks en félagið er nú orðað við færeyska landsliðsmanninn Klæmint Olsen sem leikur með NSÍ Runavík í heimalandinu. 7.12.2022 18:31
Brynjar Björn rekinn þrátt fyrir að halda Örgryte uppi Brynjar Björn Gunnarsson hefur verið sagt upp störfum sem þjálfari Örgryte í sænsku B-deildinni í fótbolta. Hann tók við liðinu í maí síðastliðnum en er nú atvinnulaus. 7.12.2022 17:45
Djokovic snýr aftur til Ástralíu ári eftir að vera vísað úr landi Fyrir rétt rúmlega ári var tenniskappanum Novak Djokovic vísað frá Ástralíu þar sem hann var ekki bólusettur. Ári síðar snýr hann til baka og mun keppa Adelaide International sem og á Opna ástralska í janúar. 7.12.2022 17:00
Spilaði í Víkinni í fyrra: Hver er Gonçalo Ramos? Það vakti mikla athygli þegar Fernando Santos, þjálfari Portúgals, ákvað að byrja með Gonçalo Ramos sem fremsta mann gegn Sviss í 16-liða úrslitum HM og skilja þar með Cristiano Ronaldo eftir á bekknum. Portúgal vann 6-1, Ramos skoraði þrennu og Santos fór sáttur að sofa. En hver er Gonçalo Matias Ramos? 7.12.2022 11:01
Máttugur Mitchell og glæsilegur Dončić leiddu lið sín til sigurs Aðeins fóru þrír leikir fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Segja má að Donavan Mitchell, leikmaður Cleveland Cavaliers, og Luka Dončić, leikmaður Dallas Mavericks, hafi stolið senunni. 7.12.2022 10:31
Jesus undir hnífinn og frá keppni næstu mánuðina Gabriel Jesus, framherji Brasilíu og Arsenal, verður frá keppni í dágóða stund vegna meiðsla sem hann varð fyrir í leik gegn Kamerún. 7.12.2022 08:01
Ronaldo fljótur inn í klefa eftir magnaðan sigur Portúgals Cristiano Ronaldo virtist ekki hafa of mikinn áhuga á að fagna með liðsfélögum sínum eftir magnaðan 6-1 sigur Portúgals á Sviss í 16-liða úrslitum HM í fótbolta ef marka má myndbandsupptöku sem nú fer líkt og eldur um sinu á samfélagsmiðlum. 7.12.2022 07:30