Ómar Ingi langbestur í Þýskalandi Landsliðsmaðurinn Ómar Ingi Magnússon var í dag kjörinn besti leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta en hann leikur með Þýskalandsmeisturum Magdeburg. 27.6.2022 20:01
Sveinn Aron með frábæra innkomu í stórsigri Elfsborg Það var nóg um að vera í sænsku úrvalsdeild karla í fótbolta í kvöld. Sveinn Aron Guðjohnsen skoraði í stórsigri Elfsborg, Davíð Kristján Ólafsson spilaði allan leikinn í sigri Kalmar og Aron Bjarnason spilaði allan leikinn í tapi Sirius. 27.6.2022 19:15
Hulda Dís aftur á Selfoss eftir tvö ár á Hlíðarenda Hulda Dís Þrastardóttir hefur samið við uppeldisfélag sitt Selfoss. Hulda Dís hefur leikið með Val í Olís deild kvenna í handbolta undanfarin tvö ár. 27.6.2022 18:31
Íslendingarnir byrjuðu allir er Sogndal vann mikilvægan sigur Hörður Ingi Gunnarsson, Jónatan Ingi Jónsson og Valdimar Þór Ingimundarson byrjuðu allir er Sogndal vann 1-0 sigur á Mjøndalen í norsku B-deildinni í fótbolta. 27.6.2022 18:06
Fram hefur boðið í Brynjar Gauta Fram hefur boðið í Brynjar Gauta Guðjónsson, miðvörð Stjörnunnar. Frá þessu er greint á Fótbolti.net. 27.6.2022 17:30
Guðni Valur rétt marði sigur og Erna Sóley vann með yfirburðum Íslandsmethafinn í kringlukasti, Guðni Valur Guðnason úr ÍR, rétt marði sigur í kringlukasti karla á Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum sem fram fer í Kaplakrika í Hafnarfirði um helgina. Þá sigraði Íslandsmethafinn Erna Sóley Gunnarsdóttir í kúluvarpi kvenna. 26.6.2022 17:15
Allt jafnt í Víkinni Víkingur og Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir gerðu 1-1 jafntefli í Lengjudeild kvenna. 26.6.2022 16:30
Stefán Ingi skoraði fjögur er HK gekk frá Dalvík/Reyni í seinni hálfleik HK tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars karla með öruggum 6-0 sigri á Dalvík/Reyni í Kórnum. Staðan var markalaus í hálfleik en Lengjudeildarliðið lét gestina finna fyrir því í síðari hálfleik. 26.6.2022 16:01
West Ham kaupir Areola frá París Enska úrvalsdeildarfélagið West Ham United hefur fest kaup á franska markverðinum Alphonse Areola. Hann kemur frá París Saint-Germain en markvörðurinn var á láni hjá West Ham á síðustu leiktíð. 26.6.2022 15:32
Häcken henti frá sér tveggja marka forystu Tveir Íslendingar voru í eldlínunni í sænsku úrvalsdeildinni í dag. Valgeir Lunddal Friðriksson var í byrjunarliði BK Häcken og Ari Freyr Skúlason byrjaði hjá Norrköping. 26.6.2022 15:00