Ísak Bergmann á lista með Pedri, Ansu Fati, Camavinga, Bellingham og fleiri góðum Ár hvert tilnefnir ítalski miðillinn Tuttosport 100 efnilegustu leikmenn heims innan fótboltans. Ísak Bergmann Jóhannesson, leikmaður íslenska landsliðsins og Danmerkurmeistara FC Kaupmannahfnar er meðal þeirra sem eru á listanum. 16.6.2022 11:31
Er á leið á HM með Ástralíu eftir að hafa fæðst í flóttamannabúðum Saga Ástralans Awer Mabil er nokkuð ólík flestum þeim sem munu taka þátt á HM í fótbolta sem fram fer í Katar undir lok þessa árs. Hinn 26 ára gamli Ástrali fæddist nefnilega í flóttamannabúðum í Malí í september árið 1995. 16.6.2022 10:01
Sjáðu markaflóðið í Vesturbæ og mörk Víkinga í Eyjum Alls voru níu mörk skoruð í aðeins tveimur leikjum í Bestu deild karla í fótbolta á miðvikudag. KR og ÍA gerðu 3-3 jafntefli á meðan Víkingar lögðu ÍBV 3-0 í Vestmannaeyjum. 16.6.2022 09:30
Man City mætir West Ham í fyrstu umferð og Liverpool heimsækir Fulham Leikjaniðurröðun ensku úrvalsdeildarinnar er klár. Englandsmeistarar Manchester City heimsækja West Ham United í fyrstu umferð á meðan Liverpool heimsækir nýliða Fulham. 16.6.2022 08:31
Meiddist illa á hné skömmu fyrir HM og hefði í raun ekki átt að spila á mótinu Alfreð Finnbogason meiddist illa á hné skömmu fyrir heimsmeistaramótið í fótbolta sem fram fór í Rússlandi sumarið 2018. Hann spilaði í gegnum sársaukann en segir meiðslin hafa haft áhrif á feril sinn í töluvert langan tíma eftir að móti lauk. 16.6.2022 07:00
Efnilegur hornamaður í raðir FH FH hefur samið við Arnar Stein Arnarsson, efnilegan hægri hornamann, sem spilaði áður með Víking. Arnar Steinn skrifar undir samning í Kaplakrika til þriggja ára. Frá þessu er greint á Facebook-síðu félagsins. 15.6.2022 18:01
Dúsir í rússnesku fangelsi fram yfir mánaðamót Brittney Griner, ein skærasta stjarna WNBA-deildarinnar í Bandaríkjunum hefur verið í haldi rússneskra yfirvalda frá því í febrúar á þessu ári. Fjölmiðlar þar í landi hafa gefið út að hún verði það áfram, fram yfir mánaðarmót hið minnsta. 15.6.2022 16:31
Róbert Ísak bætti eigið Íslandsmet á HM í sundi Sundmaðurinn Róbert Ísak Jónsson frá Firði/SH setti í gærkvöld nýtt Íslandsmet í 100 metra bringusundi S14 á heimsmeistaramóti fatlaðra í sundi. 15.6.2022 16:00
Hrósuðu Hildi í hástert: Varnarpressan fram á við orðin miklu betri „Mér fannst Breiðablik mikið sterkara í þessum leik. Maður sér líka að það vantar kannski smá breidd í liði Þróttar,“ sagði Helena Ólafsdóttir, þáttastjórnandi, Bestu markanna um leik liðanna í Bestu deild kvenna í fótbolta. 15.6.2022 15:30
Alfreð farinn frá Augsburg Framherjinn Alfreð Finnbogason verður ekki áfram í herbúðum Augsburg í Þýskalandi. Frá þessu greindi úrvalsdeildarfélagið í dag. 15.6.2022 13:33