Viking komið á toppinn í Noregi | Silkeborg öruggt í þriðja sæti Íslendingalið Viking er komið á topp Eliteserien, norsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Þá virðist sem Stefán Teitur Þórðarson og félagar í Silkeborg séu komnir í sumarfrí eftir að ljóst var að liðið endar í 3. sæti dönsku úrvalsdeildarinnar. 16.5.2022 20:30
Emil fór aftur í hjartastopp: „Þakklátur að þetta hafi farið vel“ Fótboltamaðurinn Emil Pálsson fór aftur í hjartastopp í síðustu viku. Emil lenti í þeirri skelfilegu lífsreynslu að fara í hjartastopp er hann var að spila með Sogndal í Noregi. Nú lenti hann í því að hníga niður á æfingu hjá FH hér á landi. 16.5.2022 19:52
Forseti GSÍ: Landsbyggðin þarfnast stuðnings við útbreiðslu Golfsamband Íslands hélt kynningafund þar sem golfsumarið 2022 var kynnt. Hulda Bjarnadóttir tók nýverið við sem forseti GSÍ og var rætt við hana í Sportpakka Stöðvar 2 varðandi helstu áherslur nýrrar stjórnar Golfsambands Íslands. 16.5.2022 19:30
Íslendingalið Rosengård og Häcken enn ósigruð á toppnum Guðrún Arnardóttir og stöllur hennar í meistaraliði Rosengård fara vel af stað í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Liðið vann enn einn sigurinn í kvöld og er sem stendur ósigrað á toppi deildarinnar. Häcken er einnig ósigrað en Íslendingarnir þar fengu ekki mikinn spiltíma í kvöld. 16.5.2022 19:01
Viktor Gísli stóð vaktina er GOG fór á toppinn Landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson átti fínan leik er GOG vann fjögurra marka sigur á Ribe-Esbjerg í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta, lokatölur 33-29. 16.5.2022 18:45
Leikmaður í ensku B-deildinni kom út úr skápnum | Fengið stuðning úr öllum áttum Jake Daniels hefur átt sannkallað draumatímabil. Braut sér lið inn í aðallið Blackpool, skrifaði undir atvinnumannasamning, raðaði inn mörkum fyrir unglingalið félagsins og naut sín í botn. Það var þó alltaf eitthvað sem lá þungt á honum, þangað til nú. 16.5.2022 18:16
Lögmál leiksins: Íslandstenging í NBA „Það er búið að vera mjög skemmtileg þróun í gangi – Íslandstenging – í NBA,“ segir Kjartan Atli Kjartansson í nýjasta þættinum af Lögmál leiksins. Þátturinn er á sínum stað klukkan 20.35 á Stöð 2 Sport 2. 16.5.2022 18:01
Ten Hag vill halda Ronaldo hjá Man Utd Erik ten Hag, nýráðinn þjálfari Manchester United, vill halda portúgalska framherjanum Cristiano Ronaldo í röðum félagsins. 16.5.2022 17:16
Hrósaði endurkomunni og segir þetta enn vera í höndum Man City Pep Guardiola, þjálfari Manchester City, hrósaði leikmönnum sínum eftir endurkomu liðsins gegn West Ham United. Meistararnir lentu 0-2 undir en komu til baka og hefðu getað náð í stigin þrjú ef Riyad Mahrez hefði ekki brennt af vítaspyrnu. 16.5.2022 07:00
Dagskráin í dag: Stórleikur í Bestu, Ítalía, Svíþjóð, Gametíví og Stúkan Það er nóg um að vera á rásum Stöðvar 2 Sport í dag. Alls eru 9 beinar útsendingar á dagskrá. 16.5.2022 06:00