Fréttamaður

Smári Jökull Jónsson

Smári Jökull er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Ó­veður gengur yfir landið

Óveður gengur nú yfir landið og tóku veðurviðvaranir gildi í öllum landshlutum á miðvikudagsmorgun. Um sextíu ára gamalt met var slegið þar sem aldrei hefur mælst jafn lár loftþrýstingur. Fylgst var með veðrinu og áhrifum þess í fréttavakt.

Kröfur sem ein­stak­lingum er ómögu­legt að upp­fylla

Kennarar sem sinnt hafa einkakennslu í íslensku fyrir fólk af erlendum uppruna segja það mikið högg að Starfsmenntunarsjóður ætli ekki lengur að endurgreiða félagsmönnum sem sækja einkakennslu. Þá segja þeir að kröfur sem menntamálaráðuneytið setji til að fá vottun sem viðurkenndur fræðsluaðili séu ómögulegar að uppfylla fyrir einstaklinga.

„Stolt af því hvernig ég stóð mig í dag“

Ída Marín Hermannsdóttir kom inn í byrjunarlið Íslands gegn Króatíu í dag og setti heldur betur mark sitt á leikinn. Hún skoraði auk þess að leggja upp og var ánægð með sína frammistöðu í leikslok.

Ís­land - Króatía 5-0 | Ís­lensk ein­stefna á Laugar­dals­velli

Ísland er komið áfram í úrslitaeinvígi um sæti á HM í Brasilíu á næsta ári eftir samanlagðan 9-0 sigur í einvígi gegn Króatíu. Ísland vann 5-0 sigur á Laugardalsvelli í kvöld og mætir að öllum líkindum Portúgal í úrslitum þar sem sæti á HM verður undir.

Viður­kennir mis­tök við skipan Jafnréttissjóðs

„Þetta voru mistök, þau hafa verið leiðrétt núna þannig að kynjahlutföllin eru eins og við viljum hafa þau. Ég legg bara áherslu á það að þegar svona mistök verða þá er sjálfsagt mál að leiðrétta þau.“

Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu

Drónaárásir voru gerðar á tvö skip á Svartahafinu við strendur Búlgaríu í gærkvöldi. Frá þessu greinir forsætisráðherra Búlgaríu á samfélagsmiðlum en ekki er vitað hver er á bak við árásirnar. Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins segir óásættanlegt að Svartahafið sé orðið að enn einum vígvellinum í stríðinu.

Þurftu að kyrr­setja flug­vél vegna veggjalúsa

Ástralska flugfélagið Qantas neyddist til að kyrrsetja eina af vélum sínum í Róm eftir að veggjalýs fundust í farþegarými vélarinnar. Vélin hafði komið til Rómar frá Perth í Ástralíu.

Lög­reglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða

Lögreglan á Norðurlandi vestra varar við slæmu ferðaveðri sem fram undan er og biðlar til fólks um að flýta ferðum sínum eða bíða þar til veðrið hefur gengið yfir. Veðurfræðingur segir veðrið verða verst á Norðvesturhluta landsins. Það verði hvasst sunnan til í fyrramálið og lægðin færi sig svo norðar. 

Sjá meira