Fjármálafyrirtæki „
1 2 3 4 5 6 … 69 ›
„Við erum ekkert æst í að fá nýjan skatt“ Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu segir boðaðar viðbótarskatttekjur frá fyrirtækjum í fjármálageiranum koma verulega á óvart. Algjör óvissa ríki um það um hvers konar viðbótarskatta verður að ræða og þegar hafi verið óskað eftir fundi með fjármálaráðherra. Íslensk fjármálafyrirtæki greiði nú þegar flesta og hæstu skatta allra banka í þeim löndum sem Ísland ber sig saman við. Viðskipti innlent 27.3.2026 16:30
Ráðherra fari með rangt mál Formaður BSRB segir fjármálaráðherra tala gegn betri vitund þegar hann heldur því fram að ríkisstarfsmönnum hafi fjölgað hraðar en starfsfólki á almennum vinnumarkaði síðustu ár. Þeim hafi þvert á móti fækkað hlutfallslega. Markmið um fækkun stöðugilda næstu ár sé vonbrigði og byggi ekki á faglegri stefnumótun. Innlent 27.3.2026 13:04
Fjármálaráðherra boðar frekari viðbótarskattlagningu á fjármálafyrirtæki Ein af þeim aðgerðum sem áformað er að ráðast í til að „styrkja tekjugrunn“ ríkissjóðs er að afla enn meiri viðbótarskatttekna frá fjármálafyrirtækjum, samkvæmt nýrri fjármálaáætlun stjórnvalda, en í fyrra greiddu bankarnir samtals um átján milljarða í sérstaka skatta. Innherji 26.3.2026 17:51
Magnús Örn til Fossa Fossar fjárfestingarbanki hafa ráðið Magnús Örn Guðmundsson í stöðu forstöðumanns einkabankaþjónustu bankans. Viðskipti innlent 24.3.2026 12:43
Landsbankinn hækkar einnig vexti Forsvarsmenn Landsbankans tilkynntu í dag að vextir yrðu hækkaðir. Hækkanirnar eru á milli 0,15 upp í 0,35 prósentustig eftir því hverslags lán er um að ræða en fyrstu breytingarnar tóku gildi í dag og hinar taka gildi á föstudaginn. Viðskipti innlent 23.3.2026 20:13
„Löngu tímabært“ að kaupaukareglur verði þær sömu og í nágrannalöndum Stjórnarformaður Kviku telur að innleiðing á nýju regluverki um breytileg starfskjör muni að óbreyttu hafa „alvarleg áhrif“ á samkeppni um starfsfólk á fjármálamarkaði og kallar eftir því að löggjöfin sé samræmd við það sem þekkist í nágrannalöndum. Stjórnendur Kviku og Arion hafa átt í forviðræðum um margra mánaða skeið við Samkeppniseftirlitsins vegna fyrirhugaðs samruna en „of snemmt“ er að segja til um lyktir þeirra. Innherji 20.3.2026 11:25
Landsbankinn greiðir 34,9 milljarða í arð til hluthafa Aðalfundur Landsbankans sem haldinn var í Reykjastræti í gær samþykkti að greiða samtals 34,9 milljarða króna í arð til hluthafa á árinu 2026. Tvær arðgreiðslur voru samþykktar á aðalfundi. Viðskipti innlent 19.3.2026 07:31
Vextir hafi sannarlega lækkað en framboðið sé breytt Bankastjóri Landsbankans segir vexti bankans sannarlega hafa lækkað samhliða stýrvaxtalækkunum undanfarinna mánaða. Framboð bankans sé aftur á móti gjörbreytt eftir Vaxtadómana svokölluðu og því erfitt að bera saman vexti nýrra lána fyrir og eftir dómana. Tölur sem formaður Starfsgreinasambandsins vísaði til í gær séu þannig réttar en vart samanburðarhæfar. Viðskipti innlent 18.3.2026 14:55
Gengishækkun bréfa ISB vegna mikilla endurkaupa var „ekki forsendubrestur“ Þegar samið var um helstu skilmála samruna Íslandsbanka og Skaga í október, meðal annars með því að festa gagngjaldið til hluthafa Skaga í tilteknum fjölda hluta, var gert ráð fyrir áframhaldandi kaupum bankans á eigin bréfum sem hafði „óhjákvæmilega áhrif til hækkunar“ á hlutabréfaverðinu, að sögn stjórnarformanns Skaga. Hann segir það hafa verið „veruleg vonbrigði“ þegar Íslandsbanki setti fram kröfur um mikla lækkun á gagngjaldinu á grundvelli ólíkrar þróunar á markaðsvirði félaganna sem hafi ekki átt sér stoð sem ein forsenda breytinga á samkomulaginu. Innherji 17.3.2026 21:16
Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Tveir nýir starfsmenn hafa hafið störf hjá Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu, SFF, þeir Bjartur Elíasson og Vésteinn Örn Pétursson. Bjartur starfar sem lögfræðingur hjá samtökunum, en Vésteinn í stöðu sérfræðings í samskiptum, auk þess sem hann sinnir lögfræðilegum verkefnum. Viðskipti innlent 13.3.2026 10:07
Telur stjórnarmenn þurfa að útskýra fyrir hluthöfum breytta afstöðu til samruna Fjárfestirinn Bjarni Ármannsson segist „ekki trúa öðru“ en að stjórnir Íslandsbanka og Skaga muni á aðalfundi félaganna í komandi viku gera efnislega grein fyrir því gagnvart hluthöfum af hverju samrunaviðræðum var slitið og kallar eftir því að lífeyrissjóðir hafi skoðun á slíkum „strategískum ákvörðunum.“ Þá er Bjarni, annar stærsti hluthafi Skaga, afar gagnrýninn á að ekki hafi verið upplýst um hvaða fjárfestar voru í samfloti með Heiðari Guðjónssyni þegar óskað var eftir hluthafafundi í Íslandsbanka í því skyni að efna til stjórnarkjörs og segir slíka „leyndarhyggju ekki vera í lagi“ þegar um sé að ræða kerfislega mikilvægan banka. Innherji 12.3.2026 15:36
Ætla að fækka aðalmönnum í bankaráði í Landsbankans Á komandi aðalfundi Landsbankans stendur meðal annars til að fækka þeim aðalmönnum sem sitja í bankaráði bankans um tvo talsins og feta þannig í fótspor Arion banka sem gerði slíkt hið sama fyrir fáeinum árum. Innherjamolar 8.3.2026 13:20
Skrifstofustjórinn fær ekki áheyrn og situr uppi með feitan reikning Páll Þórhallsson, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu, fær ekki áheyrn Hæstaréttar í deilu hans við Landsbankann. Páll tapaði greiðslukorti sínu í París í Frakklandi og óprúttnir aðilar náðu tæpum 600 þúsund krónum út af reikningi hans. Landsréttur taldi Pál hafa sýnt af sér stórkostlegt gáleysi og Landsbankinn þyrfti því ekki að endurgreiða honum fjármunina. Innlent 5.3.2026 10:19
Einstakt tækifæri til að læra um fjármál Börn og ungmenni eru fljót að tileinka sér nýjungar samhliða hraðri tækni- og sjálfvirknivæðingu og auknu framboði á vörum og fjármálaþjónustu. Boðleiðir styttast og mun einfaldara er að taka fjárhagslegar ákvarðanir sem áður voru oftast teknar undir leiðsögn fullorðinna. Skoðun 5.3.2026 08:32
Kemur „mjög á óvart“ að stjórn ISB treysti sér ekki til að standa við samkomulagið Stóru lífeyrissjóðirnir sem eru í þeirri stöðu að eignarhald þeirra þverast með svipuðum hætti í Íslandsbanka og Skaga eru fremur fámálir um þá ákvörðun að samrunaviðræðum hafi verið slitið, á meðan afstaða sumra annarra sjóða litast af því hvar hagsmunir þeirra vega hlutfallslega meira. Stærsti einkafjárfestir Skaga segir það koma „mjög á óvart“ að stjórn Íslandsbanka hafi ekki treyst sér til að standa við samkomulagið en hún fór fram á verulegar breytingar á fyrri verðskilmálum við samruna félaganna sem yrðu aðlagaðir með tilliti gengishækkunar á bréfum bankans og gagngjaldið að hluta greitt með reiðufé. Innherji 24.2.2026 17:30
Óttar og Jón Arnór látnir róa vegna tengsla við viðskiptavin Óttar Helgason og Jón Arnór Stefánsson voru látnir hætta störfum hjá einkabankaþjónustu Fossa vegna eignarhluta þeirra í félagi sem hefur verið í viðskiptum við einkabankaþjónustuna. Einn eigenda félagsins er Magnús Sverrir Þorsteinsson, kenndur við bílaleiguna Blue Car Rental. Viðskipti innlent 24.2.2026 13:32
Spá því að verðbólgan fari rétt undir fimm prósent en óvissan er upp á við Útlit er fyrir að tólf mánaða verðbólgan geti farið aftur undir fimm prósent þegar ný mæling birtist síðar í vikunni, ef marka má meðalspá sex greinenda, en sumir benda á að óvissan sé upp á við í spánum og vara við annarrar umferðar áhrifum af hærri verðbólgu á næstunni. Innherji 23.2.2026 16:47
Samrunaviðræðum Íslandsbanka og Skaga slitið Samrunaviðræðum Skaga hf. og Íslandsbanka hf. hefur verið slitið. Þetta kemur fram í Kauphallartilkynningu frá Skaga sem send var út síðdegis. Viðskipti innlent 21.2.2026 17:09
Tryggingar lækki verulega verði ráðist í nauðsynlegar úrbætur Neytendur gætu sparað sér háar fjárhæðir ef farið yrði í úrbætur á íslenskum tryggingamarkaði að mati Neytendasamtakanna. Bótakerfi tryggingafélaganna sé óþarflega flókið og fáir hafi yfirsýn yfir alla anga þess. Formaður Neytendasamtakanna segir umtalsvert svigrúm til hagræðingar, einföldunar og aukins gagnsæis. Innlent 21.2.2026 13:55
Arion verðlagður á „spottprís“ þrátt fyrir sambærilega arðsemi og norrænir bankar Þrátt fyrir að skila sambærilegri arðsemi og aðrir helstu bankar á hinum Norðurlöndunum þá er Arion verðlagður á markaði talsvert lægra með hliðsjón af afkomu og eigið fé. Í nýrri hlutabréfagreiningu er Arion því sagður vera „á spottprís“ en verðmat á bankanum er lækkað lítillega og gert er ráð fyrir minni efnahagsumsvifum samtímis háum grunnvöxtum. Innherji 21.2.2026 13:29
Kristín í Komið gott fær sér dagvinnu Kristín Gunnarsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Upplýsingamiðlunar, nýrrar deildar á sviði samskipta og menningar hjá Landsbankanum sem tekur til starfa í lok febrúar. Kristín hefur ásamt Ólöfu Skaftadóttur stýrt Komið gott, einu vinsælasta hlaðvarpi landsins, síðustu misserin. Viðskipti innlent 18.2.2026 15:03
Engin svör að fá sem skýra „rán um hábjartan dag“ Trúnaður ríkir um innihald samninga sem Keflavíkurflugvöllur gerir við rekstraraðila í flugstöðinni og sökum þessa getur Isavia ekki veitt upplýsingar um það hvaða skilyrði eru fyrir hendi í samningi flugvallarins við fyrirtæki sem rekur fjármálaþjónustu á Keflavíkurflugvelli. Hins vegar eru þeir samningar sem Keflavíkurflugvöllur gerir við rekstraraðila þess eðlis að þeir eru jafnan tengdir við veltu. Af því má ráða að Isavia fái meira upp úr krafsinu eftir því sem rekstraraðilar í flugstöðinni fá meira í kassann. Það tók níu mánuði að fá svör frá Isavia um samning vegna fjármálaþjónustu á flugvellinum, sem var á þá leið að ekki væri unnt að veita umbeðnar upplýsingar. Neytendur 13.2.2026 08:53
Stjórn Íslandsbanka vill greiða tólf milljarða í arð Stjórn Íslandsbanka mun leggja til á aðalfundi að greiddir verði út tólf milljarðar í arð. Hagnaður af rekstri bankans nam 5,9 milljörðum króna á fjórða ársfjórðungi 2025 og 25,2 milljörðum króna fyrir árið í heild. Bankastjóri segir bankann hafa náð öllum sínum fjárhagslegu markmiðum. Viðskipti innlent 12.2.2026 17:00
Stjórn vill greiða fimmtán milljarða í arð Stjórn Arion banka mun leggja það til á aðalfundi í mars að greiddur verði út arður sem nemur 11,5 krónum á hlut, sem samsvarar um 15 milljarða arðgreiðslu. Hagnaður sem tilheyrir hluthöfum Arion banka var 30,6 milljarðar króna á árinu 2025, samanborið við 26,1 milljarð króna árið 2024. Viðskipti innlent 11.2.2026 18:07
Vill opna á verðbréfalán lífeyrissjóða sem ætti að auka skortsölu á markaði Fjármálaráðherra áformar að leggja fram frumvarp sem myndi meðal annars í fyrsta sinn gera íslenskum lífeyrissjóðum kleift að lána áfram hluta af hlutabréfum eða skuldabréfum í þeirra eigu, sem gæti þá skapað forsendur fyrir aukinni skortsölu meðal fjárfesta, en það ætti að bæta í senn virkni og verðmyndum á markaði. Innherji 10.2.2026 13:41
„Ekki hlutverk hins opinbera að ýta sparnaði fólks í íbúðir“ Fjármála- og efnahagsráðherra segir markmið ríkisstjórnarinnar að stuðla að einföldun regluverks og að það eigi að vera einfalt fyrir venjulegt fólk að fjárfesta sparnaði sínum á Íslandi, enda hafi þátttaka almennings á hlutabréfamarkaði ýmislegt jákvætt í för með sér. „Við ætlum að hætta að ýta sparnaði fólks yfir í steinsteypu. Einhvern veginn höfum við endað í kerfi, þar sem stuðningur hins opinbera snýst fyrst og fremst að því að styðja við íbúðafjárfestingar. Það er ekki hlutverk hins opinbera að ýta sparnaði fólks í íbúðir.“ Viðskipti innlent 10.2.2026 10:00
Bein útsending: Kraftmeiri sparnaður í seilingarfjarlægð? Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu og Nasdaq Iceland standa fyrir viðburði um möguleikann á upptöku fjárfestingarreikninga fyrir einstaklinga hér á landi. Yfirskrift viðburðarins er Kraftmeiri sparnaður í seilingarfjarlægð? og hann má sjá í beinni útsendingu á Vísi. Viðskipti innlent 10.2.2026 08:17
Kvika skráði ekki tugi þúsunda viðskipta og fær tugmilljóna sekt Kvika banki hefur gengist undir sátt við Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands vegna brota bankans á ákvæðum reglugerðar um markaði fyrir fjármálagerninga, MiFIR. Bankinn lét undir höfuð leggjast að skila svokallaðri TSR II-skýrslu vegna 73.792 viðskipta á tímabilinu 14. desember 2022 til 7. febrúar 2024 og þarf að borga tuttugu milljóna króna sekt vegna þess. Viðskipti innlent 9.2.2026 16:32
Einfaldar leiðir til að efla hlutabréfamarkaðinn Síðasta áratug síðustu aldar og á fyrstu árum þessarar aldar var almenningi veittur árlegur skattaafsláttur vegna kaupa á skráðum hlutabréfum á íslenska markaðnum. Tilgangurinn með afslættinum var fyrst og fremst að efla hinn unga íslenska hlutabréfamarkað og auka þátttöku almennings á honum meðan hann var að komast á legg. Afslátturinn var afnuminn árið 2002 þrátt fyrir augljósan hvata, en þá var áhersla innan OECD-ríkja að einfalda skattkerfi og leitast við að draga úr ívilnunum en á móti að lækka skatta almennt. Skoðun 9.2.2026 10:16
Olíusjóðurinn bætir við sig í íslenskum verðbréfum fyrir um tuttugu milljarða Olíusjóður Noregs, stærsti fjárfestingarsjóður í ríkiseigu á heimsvísu, bætti verulega við stöðu sína í íslenskum ríkisskuldabréfum á liðnu ári en umfang verðbréfaeignar sjóðsins hér á landi er að nálgast sömu slóðir og þegar mest var fyrir tveimur áratugum. Innherji 31.1.2026 12:54
Enn ólgar Ungfrú Ísland: „Ekkert til sem heitir ósanngjarn samningur ef þú skrifar undir hann“ Lífið