Bað Trump um „vetrarpakka“ Samúel Karl Ólason skrifar 23. september 2026 07:47 Vólódímír Selenskí og Donald Trump funduðu í New York í gær. Trump sagðist vongóður um að hægt yrði að finna leiðir til að binda enda á stríð Rússa gegn Úkraínu. AP/Julia Demaree Nikhinson Vólódímír Selenskí bað Donald Trump um „vetrarpakka“ af hernaðaraðstoð og þá sérstaklega um flugskeyti í Patriot-loftvarnarkerfi, til að verjast skotflaugaárásum Rússa. Hann segir einnig að Bandaríkjamenn séu líklegir til að reyna að koma á vopnahléi sem snýr sérstaklega að orkuinnviðum í bæði Úkraínu og Rússlandi.
Forsetarnir funduðu á hliðarlínunum á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna i New York í gærkvöldi og í kjölfarið ræddi Selenskí við blaðamann Wall Street Journal. Þá sagðist Selenskí hafa beðið um pakka af vopnum fyrir veturinn. Hann sagðist einnig meðvitaður um að orkumálin væru í forgangi hjá Trump. „Ég held að hann muni reyna að semja um orkuvopnahlé,“ sagði Selenskí. Hann bætti við að hann teldi Vladimír Pútín, forseta Rússlands, ólíklegan til að semja um vopnahlé varðandi orkuinnviði, án frekari þrýstings eins og hertra refsiaðgerða. Sjá einnig: Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Selenskí telur að Pútín sjái sig í ágætri stöðu eftir kosningarnar í Rússlandi og hann sjái sig ekki knúinn til að breyta til í hernaði sínum, þrátt fyrir takmarkaðan árangur á víglínunni. Trump sagði á blaðamannafundi með Selenskí að hann væri vongóður um að hægt yrði að binda enda á stríðið. Eftir fund þeirra sagðist Selenskí svo vonast til þess að Trump gæti fengið Pútín á fund með þeim tveimur. Trump hefur beðið Selenskí um að hætta árásum á olíuvinnslur í Rússlandi, vegna þess hve hátt verð á díselolíu er. Trump hefur haldið því fram að það sé vegna árása Úkraínumanna en ekki vegna stríðs Bandaríkjanna gegn Íran og meðfylgjandi takmarkana á flutningi olíuafurða frá Mið-Austurlöndum. Sjá einnig: Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Selenskí sagði í viðtalinu að Úkraínumenn hefðu eyðilagt um 45 prósent af getu Rússa til að vinna olíu. Rússar eru einn stærsti díselolíuframleiðandi heims en hafa stöðvað útflutning vegna árása Úkraínumanna. Hann sagði að árásir Úkraínumanna væru svar við árásum Rússa á borgaralega orkuinnviði í Úkraínu. Sala olíuafurða er þar að auki langstærsta tekjulind rússneska ríkisins. „Líf okkar eru mikilvægari en orkuverð.“ Á blaðamannafundi eftir fund forsetanna sagði Trump að hann væri að íhuga að banna útflutning díselolíu frá Bandaríkjunum, til að reyna að lækka verðið þar í landi. .@POTUS says he has directed his team to weigh a ban or restriction on diesel exports — with a decision coming "fast, one way or the other." pic.twitter.com/fv4Z5xg6jQ— Rapid Response 47 (@RapidResponse47) September 22, 2026 Í færslu sem Selenskí skrifaði eftir fund hans og Trumps sagði hann að þeir hefðu rætt um leiðir til að binda enda á stríðið. Það væri í algjörum forgangi en hann væri ekki viss um að Rússar hefðu áhuga á friði að svo stöddu. Þá lagði Selenskí aftur fram orkuvopnahlé og sagði að ef Rússar myndu hætta árásum á orkuver, dreifikerfi og hita- og vatnsveitur í Úkraínu fyrir veturinn, myndu Úkraínumenn hætta árásum á olíuvinnsluinnviði og önnur orkutengd skotmörk í Rússlandi. Selenskí vísaði einnig til þess að Trump myndi í dag hitta Xi Jinping, forseta Kína. Hann sagði Trump að hægt væri að hafa áhrif á Pútín í gegnum Xi en Úkraínumenn segja Kínverja hafa gert Rússum kleift að halda stríðsrekstrinum áfram með því að selja þeim íhluti fyrir hergagnaframleiðslu, kaupa af þeim olíuafurðir og öðrum leiðum. President Trump, our teams, and I spoke about how to end the war. This is the priority. We are ready. I’m not sure Russia is ready as of today, but anyhow, we spoke about an energy ceasefire. We are ready for an energy ceasefire if they do not attack our energy system, our… pic.twitter.com/5JASduEiPp— Volodymyr Zelenskyy / Володимир Зеленський (@ZelenskyyUa) September 22, 2026
Úkraína Bandaríkin Innrás Rússa í Úkraínu Donald Trump Sameinuðu þjóðirnar Rússland Hernaður Bensín og olía Tengdar fréttir Segir stóra ákvörðun framundan Donald Trump forseti Bandaríkjanna hótaði í ræðu sinni á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær að afmá klerkastjórnina í Íran ef átökin leystust ekki. Samskipti áttu sér stað á milli fulltrúa landanna á þinginu í gær. 23. september 2026 06:44 Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Xi Jinpin, forseti Kína, er talinn ætla að fara fram á það við Donald Trump að Bandaríkin hætti að selja vopn til Taívan. Xi hefur nokkuð öflugt vopn í formi sjaldgæfra málma til að beita Trump þrýstingi. Á móti hefur Trump getu til að skaða efnahag Kína töluvert. 22. september 2026 23:30 Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ Sjá meira
Segir stóra ákvörðun framundan Donald Trump forseti Bandaríkjanna hótaði í ræðu sinni á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær að afmá klerkastjórnina í Íran ef átökin leystust ekki. Samskipti áttu sér stað á milli fulltrúa landanna á þinginu í gær. 23. september 2026 06:44
Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Xi Jinpin, forseti Kína, er talinn ætla að fara fram á það við Donald Trump að Bandaríkin hætti að selja vopn til Taívan. Xi hefur nokkuð öflugt vopn í formi sjaldgæfra málma til að beita Trump þrýstingi. Á móti hefur Trump getu til að skaða efnahag Kína töluvert. 22. september 2026 23:30