
Viðskipti

Stofnfé sé eign allra Hafnfirðinga
Þótt ekki sé verið að stela frá neinum, er þetta siðlaust og ætti ekki að líðast. Þetta segir Helgi í Góu, einn stofnfjáreigenda í Sparisjóði Hafnarfjarðar, um þá sem hafa selt hluti sína í sjóðnum. Hann segir stofnféð vera eign allra Hafnfirðinga.

Alvarlegt samkeppnisbrot Símans
Samkeppnisráð hefur komist að þeirri niðurstöðu að Landssíminn hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína með því að tvinna saman ólíka þjónustuhætti og veita tryggðarafslætti í svonefndu "Allt saman" tilboði. Samkvæmt úrskurði Samkeppnisráðs skekkti Landssíminn á alvarlegan hátt samkeppni á markaði og misnotaði markaðsráðandi stöðu sína.
Deilurnar lagðar til hliðar
"Við erum ágætlega sáttir við þessa niðurstöðu. Menn töluðu í þá átt að vinna saman og halda áfram á uppbyggingarbraut," segir Valgeir Bjarnason, sem í gær var kosinn í stjórn Sparisjóðs Skagfirðinga á aðalfundi.
Mikil spurn eftir Actavisbréfum
Mikil eftirspurn var eftir bréfum sem í boði voru til kaups í forgangsréttarútboði Actavis Group sem lauk í gær.

Bankarán um glaðbjartan dag
Það er verið að fremja bankarán í Hafnarfirði um glaðbjartan dag. Þetta segir Guðmundur Árni Stefánsson, alþingismaður og fyrrverandi bæjarstjóri, vegna tilboðs sem stofnfjáreigendur Sparisjóðs Hafnarfjarðar hafa fengið frá óþekktum aðila um að selja hvern hlut á tæpar fimmtíu milljónir króna. Engar upplýsingar berast frá nýrri stjórn sparisjóðsins um hvað sé að gerast.

Tilkynning frá Icelandic Group
Vegna umfjöllunar fjölmiðla að undanförnu um hluthafa í Icelandic Group hf. vill félagið koma því á framfæri að við samruna Icelandic Group og Sjóvíkur ehf., sem samþykktur var þann 30. maí sl., hafi Serafin Shipping Corp. eignast 5,96% hlut í Icelandic Group í skiptum fyrir hluti sína í Sjóvík.
Skylt að gefa upplýsingar
Staðfest var með tilkynningu til Kauphallar Íslands í gær að Serafin Shipping eignaðist tæp sex prósent í Icelandic Group við sameiningu SH og Sjóvíkur.
Ekki nóg tengsl
Þór Sigfússon, framkvæmdastjóri Verslunarráðs Íslands, segir að niðurstaða Ríkisendurskoðunar um fjárlög 2004 veki upp spurningar um tengsl valds og ábyrgðar hjá forstöðumönnum ríkisstofnana.

Launavísitalan hækkaði um 0,6%
Launavísitalan í maí mældist tæplega 266 stig og er það hækkun um 0,6 prósent frá því í apríl. Síðastliðna tólf mánuði hefur hún hækkað um 6,6 prósent en ef litið er aðeins til sex mánaða hefur hún hækkað um 9,8 prósent.
Stefnir í samkomulag
Aðalfundur Sparisjóðs Skagfirðinga, áður Sparisjóður Hólahrepps, verður haldinn klukkan hálftvö í dag. Miklar deilur hafa staðið milli tveggja stofnfjáreigendahópa sem buðu fram sitt hvorn listann á aðalfundi í nóvember síðastliðnum, en mögulegt er að sættir náist á fundinum í dag.

Yfirtaka á sparisjóði
Flókið að ráða yfir sparisjóð. Stofnun eignarhaldsfélaga gæti verið lausnin.
Eignarhald enn óljóst
"Ég eða félög mér tengd eigum ekkert í Serafin Shipping og höfum aldrei átt," segir Jón Kristjánsson, stjórnarformaður Icelandic Group, spurður um hver ætti félagið. Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður Samskipa, vísaði á Jón þegar hann var spurður í fyrradag hvort hann ætti eða hefði átt Serafin Shipping.

Gengu úr stjórn Árvakurs
Haraldur Sveinsson, sem ýmist hefur verið stjórnarformaður eða framkvæmdastjóri Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins, og jafnframt stór hluthafi, gekk úr stjórn félagsins á aðalfundi þess í gær. Það gerði Friðþjófur Johnson, fulltrúi hlutafjár Johnson ehf. í Árvakri, einnig.

Íbúðaverð hækkaði um 4%
Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um tæp fjögur prósent í maí frá fyrri mánuði samkvæmt upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins. Í Morgunkorni Íslandsbanka segir að íbúðamarkaðurinn einkennist því enn af mikilli eftirspurn og verðþrýstingi þótt dregið hafi úr hækkun íbúðaverðs frá fyrstu mánuðum ársins.

Mosaic Fashions inn í Kauphöll
Mosaic Fashions varð í dag fyrsta breska félagið sem skráð er á aðallista Kauphallar Íslands. Útgefið hlutafé félagsins er tæpir þrír milljarðar króna að nafnverði. Forstjóri Kauphallarinnar segir þetta kannski ryðja brautina fyrir fleiri erlend félög.

Boðið í stofnfé í SPH
Einhverjir stofnfjáreigendur sem ekki studdu núverandi stjórn Sparisjóðs Hafnarfjarðar hafa fengið tilboð í stofnfjárbréf sín. Talið er að núverandi stjórn sé að tryggja það að gamla stjórnin muni ekki ná völdum á ný.
Byggingarvísitala hækkar um 0,03%
Vísitala byggingarkostnaðar í þessum mánuði er 0,03 prósentum hærri en í síðsta mánuði samkvæmt Hagstofu Íslands. Þar kemur fram að vísitalan hefur síðustu tólf mánuði hækkað um 4,2 prósent.

Vill ekkert staðfesta um Europris
"Það getur vel verið að það verði eigendaskipti í Europris en ég ætla ekki að staðfesta neitt að svo stöddu," segir Matthías Sigurðsson, meirihlutaeigandi Europris-verslananna.

Ekki hætt við að reisa bensínstöð
Atlantsolía ætlar ekki að hætta við bensínstöð við Dalveg í Kópavogi þrátt fyrir að Skeljungur hafi breytt stöð sinni á lóð við hliðina í Orkustöð. Skeljungur hótaði Kópavogsbæ að skaðabóta yrði krafist fengi Atlantsolía lóðina.

Avion Group kaupir RGH
Avion Group hefur fest kaup á The Really Great Holliday Company (RGH) sem á og rekur ferðaskrifstofurnar Travel City Direct, Transatlantic Vacations og Carshop. Travel City Direct er þekkt ferðafyrirtæki og býður einkum ferðalög frá Bretlandi til Florída. Eftir kaupin verða Really Great Holliday og systurfélag þess, Excel Airways, til samans áttunda stærsta félagið á Bretlandseyjum í afþreyingarferðum.

Olíuverð hækkar áfram
Olíuverð hefur hækkað um 36 prósent frá því í janúar, þar af um níu prósent síðastliðna viku. Í morgun fór verð á tunnu af hráolíu yfir 59 dollara og fátt bendir til að það lækki í bráð. Þær skýringar sem gefnar hafa verið á þessum gríðarlegu hækkunum eru meðal annars að framboð sé meira en eftirspurn og þá hefur ástandið í alþjóðamálum áhrif á markaðinn.

Breytinga að vænta hjá Europris
"Þessi mál eru enn á huldu en eiga eftir að skýrast á næstu dögum," segir Lárus Guðmundsson, einn eigenda í verslunum Europris, um hvort breytinga sé að vænta á eignarhaldi fyrirtækisins.

1100 milljóna hagnaður
Skinney-Þinganes hf. skilaði rúmlega 1100 milljóna króna hagnaði eftir skatta árið 2004, 660 milljónum meira en árið áður. Aðalfundur félagsins, sem hefur verið mjög í fréttum í tengslum við sölu ríkisbankanna vegna eignaraðildar forsætisráðherra, samþykkti í fyrradag að greiða út 10 prósenta arð.
Bogi kaupir Sindra-Stál
Stjórn Sindra-Stál hf. hefur samþykkt kauptilboð Boga Þórs Siguroddssonar í allt hlutafé félagsins. Kauptilboðið er gert með fyrirvara um áreiðanleikakönnun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Boga í dag.

Rússneska mafían fjármagni útrás?
Er það rússneska mafían sem fjármagnar útrás íslenskra kaupahéðna? Því er velt upp í hinu virta, breska dagblaði <em>Guardian</em> í dag. Árangur sumra Íslendinga í samkeppni við mafíuna þykir undraverður.

Gengið frá sölu Pennans
Gengið hefur verið frá samningum um sölu Pennans hf. til hóps fjárfesta undir forystu Kristins Vilbergssonar. Tekur Kristinn við starfi forstjóra Pennans í dag af Gunnari B. Dungal sem stjórnað hefur fyrirtækinu í 36 ár.

Íhuga að loka þriðjungi útibúa
Til greina hefur komið að loka þriðjungi útibúa Íslandsbanka. Ákveðið hefur verið að leggja niður fjögur útibú hvað sem síðar verður.
Reynt að flytja fólk til í starfi
Íslandsbanki lýsir því yfir að fækkun útibúa, sem sagt var frá í hádegisfréttum Bylgjunnar, sé í þágu viðskiptavina sinna. Útibúin þurfi að vera stærri og sjálfstæðari til að mæta kröfum um víðtækari þjónustu og ráðgjöf. Leitast verði við að flytja starfsfólk þeirra útibúa sem lögð verða niður til í starfi innan bankans.
Kaupi hlut í Marks og Spencer
Hópur íslenskra fjárfesta er við það að tryggja sér ríflega þriggja prósenta hlut í verslanakeðjunni Marks og Spencer fyrir rúma tuttugu milljarða króna. Þetta kemur fram í breska blaðinu <em>Guardian</em> í morgun. Þar segir að kaupin verði væntanlega tilkynnt á allra næstu dögum en þreifingar hafi staðið yfir í um það bil tíu daga. Ekki er vitað hverjir kaupendurnir eru, en Baugur, Kaupþing og Landsbankinn eru öll nefnd á nafn í grein <em>Guardian</em>.

Staða bankanna sé traust
Seðlabankastjóri gefur ekki mikið fyrir niðurstöður norsks prófessors um að íslenska bankakerfið geti hrunið eins og spilaborg. Prófessorinn kannaði stöðu íslenskra banka fyrir norska fjármálaeftirlitið.