Viðskipti

Krónan fellur um 2,5 prósent
Gengi krónunnar hefur fallið um rúm 2,5 prósent í dag. Vísitalan stendur í 167,3 stigum. Evran kostar nú 130 krónur og hefur aldrei verið dýrari.

Icelandair á flug
Gengi hlutabréfa í Icelandair hækkaði um 2,95 prósent í fyrstu viðskiptum í Kauphöll Íslands í dag. Fyrirhugað er að félagið segi upp hátt í þrjú hundruð starfsmönnum vegna erfiðleika í rekstri. Þá hækkaði gengi 365 um 0,86 prósent, Glitnis um 0,31 prósent og Straums um 0,1 prósent.

Woolworths: Risaeðla í útrýmingarhættu
Leið bresku verslanakeðjunnar Woolworths hefur legið niður á við síðustu sex ár. Verslunin, sem á rætur að rekja til Bandaríkjanna, fagnar aldarafmæli á næsta ári. Breska dagblaðið Telegraph telur ólíklegt að þau verði mikið fleiri.

DeCode snerti lægsta gildi
Hlutabréf í DeCode, móðurfélagi Íslenskrar erfðagreiningar fór í 77 sent á hlutabréfamarkaði í Bandaríkjunum en það er lægsta gengi bréfanna frá upphafi.

Fall á bandarískum hlutabréfamarkaði
Gengi hlutabréfa lækkaði verulega á bandarískum hlutabréfamarkaði í dag. Fallið orsakast af mikilli hlutabréfasölu fjárfesta, sem nú óttast að bankar og fjármálafyrirtæki beri með sér fleiri lík í lestinni sem geti valdið frekari afskriftum. Þá hækkaði olíuverð nokkuð eftir mikla verðlækkun í gær.

Icelandair hækkaði mest í Kauphöllinni
Icelandair tók flugið í Kauphöllinni í dag þegar gengi bréfa í félaginu hækkaði um 3,53 prósent. Gengið endaði í 15,25 krónum á hlut og hefur ekki verið hærra í vikunni. Þá hækkaði gengi bréfa í Færeyjabanka um rétt rúmt prósent.

Viðsnúningur á hlutabréfamarkaði
Gengi bréfa í Icelandair hefurhækkað um 3,19 prósent í Kauphöll Íslands í dag. Heldur hefur hins vegar dregið úr hækkun dagsins eftir því sem liðið hefur nær lokun hlutabréfamarkaðar.

Glitnir leiðir rólega hækkun í Kauphöllinni
Gengi hlutabréfa í Glitni hækkaði um 0,92 prósent á rólegum degi í Kauphöllinni. Gengi Eimskips heldur hins vegar áfram að lækka.

Verðbólga á Indlandi mælist 11 prósent
Verðbólga mælist nú ellefu prósent á Indlandi, samkvæmt tölum hagstofu landsins. Verðbólgutölur sem þessar hafa ekki sést í þrettán ár. Hún var 8,75 prósent í mánuðinum á undan.

Kínverjar hækka eldsneytisverð um 18 prósent
Heimsmarkaðsverð á hráolíu lækkaði um rúma fjóra dali á tunnu eftir að stjórnvöld í Kína ákváðu að hækka verð á eldsneyti og díselolíu um átján prósent. Markmiðið er að draga úr eldsneytiskaupum og slá á verðbólgu í landinu.

Bréf í AMR ruku upp um 15 prósent
Gengi hlutabréfa í bandarísku flugrekstrarsamstæðunni AMR rauk upp um rúm fimmtán prósenta á bandarískum hlutabréfamarkaði í dag eftir að olíuverð lækkaði.

Krónan styrktist eftir fall í gær
Krónan styrktist um 1,45 prósent í dag eftir tæplega fjögurra prósenta fall í gær.

Bréf Færeyjabanka hækkaði mest í dag
Gengi bréfa í Færeyjabanka hækkaði um 2,86 prósent í Kauphöll Íslands í dag. Þetta er mesta hækkunin á markaðnum í dag. Gengi bréfa í Bakkavör hækkað um 1,91 prósent og bréf 365 um 1,74 prósent.

Kínverjar hækka olíuverð
Heimsmarkaðsverð á hráolíu lækkaði lítillega í dag eftir að fréttist að Kínverjar hyggist hækka verðið. Reiknað er með því að hærra verð muni draga úr eftirspurn eftir olíu á Kínamarkaði.

Sjóðsstjórar Bear Stearns handteknir
Tveir fyrrum stjóðsstjórar hjá bandaríska fjárfestingabankanum Bear Stearns voru handteknir í morgun vegna gruns um sviksamlegt athæfi í verðbréfaviðskiptum og fyrir að leyna upplýsingum. Þeir eru taldir hafa með ábyrgðalausum hætti hafa valdið því að sjóðir þeirra lentu í þroti en það leiddi meðal annars til gjaldþrots Bear Stearns.

Smásala tók stökk í Bretlandi
Velta í smásölu jókst um 3,5 prósent í Bretlandi í síðasta mánuði, samkvæmt tölum bresku hagstofunnar. Viðlíka stökk á milli mánaða hefur ekki sést í landi Elísabetar drottningar í 22 ár.

Bakkavör hækkar mest í byrjun dags
Gengi hlutabréfa í Bakkavör hækkaði um 2,4 prósent í upphafi viðskiptadagsins í Kauphöll Íslands í dag. Á sama tíma lækkaði gengi 365 um 1,74 prósent í kjölfar 4,55 prósenta hækkunar í gær.

Krónan leitar upp á við á ný
Gengi krónunnar snéri úr lækkun þegar nær dró tíuleytinu eftir fall í gær. Það hefur nú styrkst um 0,63 prósent og stendur gengisvísitalan í 163,7 stigum.

Enn veikist krónan
Krónan veiktist um 0,4 prósent í fyrstu viðskiptum dagsins á gjaldeyrismarkaði. Þetta er annar dagurinn í röð sem gengi krónunnar sígur. Í gær féll það um 3,8 prósent innan dags. Hún hefur ekki verið veikari frá því Seðlabankinn tók upp verðbólgumarkmið og hóf að skrá gengi krónunnar fyrir sjö árum síðan.

Skuldabréf Nýsis á Athugunarlista
Kauphöllin hefur sett skuldabréf Nýsis á Athugunarlista vegna óvissu um framtíð útgefanda.

Króna veikist hratt í enda dags
Gengi krónunnar hefur veikst um 3,6 prósent í dag og stendur vísitalan í 164,3 stigum. Mikil veiking var á síðustu mínútum viðskiptadagsins.

365 hækkaði um 4,55 prósent
Gengi hlutabréfa í 365 hækkaði um 4,55 prósent í Kauphöll Íslands í dag eftir að stjórn félagsins greindi frá því að það hyggðist taka það af markaði. Á sama tíma féll gengi Færeyjabanka um 5,4 prósent.

Krónan fellur um 2,4 prósent
Gengi krónunnar féll um 2,4 prósent í kringum hádegisbil í dag. Það hefur ekki verið lægra í fimm ár.

Biðstaða á gjaldeyrismarkaði?
Eftir rúmlega 20% gengisfall í mars hefur krónan flökt á bilinu 113-124 á móti evru og þannig má líta svo á að gjaldeyrismarkaðurinn hafi verið nokkuð stöðugur á öðrum ársfjórðungi. Þrátt fyrir þennan stöðugleika á ytri borði er samt ljóst að undir niðri kraumar töluverð óvissa. Svo virðist sem fæstir hafi trú á því að núverandi gildi sé einhvers konar jafnvægi heldur að gjaldeyrismarkaðurinn sé í biðstöðu. Hvert er þá krónan að stefna þegar kemur fram að þriðja fjórðungi?

Áhrif Landsmóts eru ómetanleg
„Ég held að áhrif Landsmóts séu algjörlega ómetanleg og verði seint reiknuð út til fulls. Annars vegar er það þannig að mót af þessu tagi skapa í sjálfu sér mikil verðmæti. Þarna kemur saman mikill fjöldi fólks sem hefur heilmikil áhrif á efnahag svæðisins í kring. Þessi mót hafa sýnt það að þau laða til sín fjölda útlendinga sem styrkja okkar gjaldeyrisgrundvöll,“ segir Einar Kristinn Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Risaskjáirnir komnir, kamrarnir farnir
Landsmót hestamanna var fyrst haldið árið 1950 á Þingvöllum. Þá voru gestir um tíu þúsund talsins. Þó gestum hafi ekki fjölgað mikið síðan þá hefur umfang mótsins gjörbreyst og fyrirkomulag mótsins er orðið allt annað.

Forstjóri Woolworths kveður
Trevor Bish-Jones, forstjóri breska stórmarkaðarins Woolworths, ætlar að stíga úr forstjórastólnum fljótlega. Baugur, sem á um tíu prósenta hlut í versluninni. Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður félagsins, gagnrýndi í fyrra stjórnendur hennar fyrir slælega frammistöðu í fyrra.

Útivist og gönguferðir
„Mývatnssveitin er í uppáhaldi,“ segir Lilja Pálsdóttir, útibússtjóri í Glitni í Þarabakka, en hún er mikil ferðakona þegar kemur að því að ferðast um landið.

Pissað í polla
Vondar fréttir af Eimskipafélaginu sendu markaðinn í þunglyndi í vikunni. Það var svo sem ekki á svartsýnina bætandi og fyrir vikið sat íslenski markaðurinn eftir þegar Evrópa rétti sig örlítið við. Þunglyndið var allsráðandi og ég mann satt að segja ekki eftir jafn svartsýnum tóni á markaðinum síðan 2001-2002 þegar gengið grillaði ansi marga á sama tíma og draumurinn um að þjóðin gæti upp til hópa lifað af arðinum á Decode lognaðist út af.

Kaupþingsbréf hækka í Svíþjóð
Gengi hlutabréfa í Kaupþingi sem skráð er í sænsku kauphöllina hafa hækkað um 1,3 prósent það sem af er dags. Gengið stendur nú í 58,5 sænskum krónum á hlut. Kauphöll Íslands er lokuð vegna Þjóðhátíðardagsins.