
Michelin

Allir halda stjörnu og OTO fær viðurkenningu
Veitingastaðurinn OTO fékk í dag Michelin-viðurkenningu, auk þess sem allir þeir íslensku veitingastaðir, sem hlutu Michelin-stjörnu á síðasta ári, halda þeirri viðurkenningu í ár.

Fyrsti takóstaðurinn sem fær Michelin-stjörnu
Mexíkóski takóstaðurinn Tacos El Califa de León í San Rafael hverfinu í Mexíkóborg, hlaut nýverið Michelin-stjörnu, en staðurinn er sextándi veitingastaður landsins sem hlýtur þessa eftirsóttu nafnbót.

Þrefaldur Michelin kokkur matreiddi fyrir Íslendinga
Fyrsta konan sem hefur fengið þrjár Michelin stjörnur matreiddi kræsingar fyrir heppna gesti á Reykjavík Edition í kvöld. Hin franska Dominique Crenn sem rekur veitingastaðinn Atelier Crenn í San Francisco í Bandaríkjunum.

„Nú er þetta fyrsta hótelið á Íslandi sem er með Michelin-stjörnu“
Veitingastaðirnir Dill og Óx fá að halda sínum Michelin-stjörnum og á verðlaunahátíð Michelin í Finnlandi í gærkvöldi fékk veitingastaðurinn Moss í Bláa lóninu stjörnuna eftirsóttu í fyrsta sinn.

Hæstánægður með stjörnuna og bauð stjörnukokkum upp á íslenskan rófurétt í Turku
Einn eigenda veitingastaðarins Óx er himinlifandi með að staðurinn hafi haldið Michelinstjörnunni sinni þrátt fyrir flutninga á síðasta ári. Hann er nýlentur á Íslandi eftir að hafa sótt Michelin-verðlaunaafhendingu í Finnlandi en þar bauð hann, ásamt matreiðslufólki Óx, stjörnukokkum að gæða sér á íslenskum rófurétti.

Koks hélt tveimur Michelin-stjörnum eftir flutninginn til Grænlands
Færeyski veitingastaðurinn Koks, sem starfræktur er tímabundið í Ilimanaq, suður af Ilulissat á Grænlandi, heldur tveimur Michelin-stjörnum sínum.

Moss í Grindavík fær Michelin-stjörnu
Veitingastaðurinn Moss í Bláa lóninu í Grindavík er meðal veitingastaða á Norðurlöndunum sem geta skreytt sig með Michelin-stjörnu. Þetta var kunngjörnt í dag.

„Besti kokkur í heimi“ missir óvænt eina Michelin-stjörnuna
Veitingastaður franska meistarakokksins Guy Savoy hefur misst eina af Michelin-stjörnum sínum eftir að hafa skartað þremur slíkum í heil nítján ár.

Hundrað bókanir eftir Michelin-stjörnuna
Stofnandi Óx segir það mikinn heiður að hljóta Michelin-stjörnu eftir áralanga þróun og vinnu með veitingastaðinn. Tveir íslenskir staðir státa nú af stjörnunni eftirsóttu.

ÓX fékk Michelin-stjörnu og DILL hélt sinni
Tilkynnt var um það rétt í þessu að veitingastaðurinn ÓX á Laugavegi í Reykjavík hefði hlotið hina eftirsóttu Michelin-stjörnu. Veitingastaðurinn DILL hélt sinni stjörnu.

Nokkrum Íslendingum boðið á Michelin-verðlaunaathöfnina
Nýr Michelin-leiðarvísir verður kynntur við hátíðlega athöfn í Stafangri í Noregi í dag. Þá kemur í ljós hvaða veitingastaðir á Norðurlöndum hljóta hina eftirsóttu Michelin-stjörnu. Eigendur tveggja íslenskra veitingahúsa hafa fengið boð á athöfnina.

Færeyski Michelin-staðurinn flytur til Grænlands
Eigendur færeyska veitingastaðarins Koks, sem býr yfir tveimur Michelin-stjörnum, hyggjast loka í Færeyjum og flytja staðinn tímabundið til Grænlands.

„Sigur fyrir mig, starfsfólkið og veitingastaðinn“
Gunnar Karl Gíslason, stofnandi og yfirkokkur veitingastaðarins Dill í Reykjavík, segir það mikinn heiður að staðnum hafi verið veitt Michelin-stjarna annað árið í röð. Slíkar stjörnur eru veittar veitingastöðum sem þykja skara fram úr og eru afar eftirsóttar meðal veitingamanna.

Bein útsending: Michelin-stjörnum úthlutað til veitingastaða á Norðurlöndum
Tilkynnt verður um hvaða veitingastaðir á Norðurlöndum fá Michelin-stjörnur, eina mestu viðurkenningu í veitingageiranum, á blaðamannafundi sem hefst klukkan 18.

Heimsins ódýrasta Michelin-máltíð missir stjörnuna
Götubitastaðurinn Hawker Chan í Singapúr nýtur nú ekki þeirrar virðingar að vera Michelin-stjörnu veitingastaður, eftir að nýjasta útáfa Michelin-handbókarinnar fyrir Singapúr var uppfærð í upphafi mánaðarins.

Dill fær Michelin-stjörnu á ný
Veitingastaðurinn Dill á Laugavegi var rétt í þessu að endurheimta Michelin-stjörnu sína, en slíkar stjörnur eru veittar þeim veitingastöðum sem taldir eru skara fram úr.

Missir þriðju Michelin-stjörnuna eftir 55 ár á toppnum
Franski matarheimurinn nötrar eftir að fréttir hófu að berast af því að eftir rúmlega hálfa öld með þrjár Michelin-stjörnur muni veitingastaður Paul Bocuse í Lyon missa eina stjörnuna.

Fékk Michelin-stjörnu á afmælisdaginn sinn
Um helgina fékk belgíski veitingastaðurinn Souvenir afhenta Michelin-stjörnu við hátíðlega athöfn ytra. Eigendur staðarins eru hjónin Joke Michiel og Vilhjálmur Sigurðsson sem rekið hafa stað

Settu stefnuna á Michelin-stjörnu en enduðu í 106 milljóna gjaldþroti
Ekki ein einasta eign fannst í þrotabúi veitingastaðarins Nostra.

Erfiður vetur sem varð að martröð
Einn eigenda Dill segist nú vera að skoða framhaldið eftir að ákvörðun var tekin um að loka þremur veitingastöðum á Hverfisgötu 12 á einu bretti.

Ballið búið á Dill
Veitingastaðnum Dill við Hverfisgötu hefur verið lokað.

Michelin-kokkur opnar veitingastað í elsta íbúðarhúsi Egilsstaða
Hjónin Kári Þorsteinsson og Sólveig Bjarnadóttir opnuðu nýlega veitingastað á Egilsstöðum í elsta íbúðarhúsi bæjarins, Nielsenshúsi. Þau lýsa því sem langþráðum draumi að vera kominn aftur í sveitina en segja taktinn á Egilsstöðum allt öðru vísi en í Reykjavík – og hvað þá í Kaupmannahöfn.

Hvernig gerir maður mat eins og Michelin kokkur?
Vala Matt fór í leiðangur fyrir Ísland í dag og skoðaði nokkra íslenska veitingastaði sem hafa fengið hin frægu Michelin meðmæli.

Ólafur Örn um Michelin-málið: „Þetta er ansi brútal“
Ólafur Örn Ólafsson stjörnukokkur segist vera í sjokki eftir að veitingastaðurinn Dill Restaurant var sviptur Michelin-stjörnu sinni fyrr í kvöld.

Lítur ekki á stjörnumissinn sem einhvern heimsendi
Framkvæmdastjóri Dill Restaurant segir það hafa komið flatt upp á starfslið Dill að hafa misst Michelin-stjörnuna í dag.

Færeyskur veitingastaður fær sína aðra Michelin-stjörnu
Færeyski veitingastaðurinn Restaurant Koks hlaut í kvöld sína aðra Michelin-stjörnu.

Franski meistarakokkurinn Jóel Robuchon látinn
Michelin-stjörnuhafinn Joel Robuchon er látinn 73 ára gamall.

Michelin mælir með fimm stöðum í Reykjavík
Stjörnugjafi og matargagnrýnandi Michelin var staddur hér á landi fyrir skömmu og tók út veitingahús borgarinnar. Mælir gagnrýnandinn nú með fimm stöðum eftir heimsóknina – sem bragð er að.

DILL heldur Michelin-stjörnunni
Nýr yfirkokkur staðarins, Kári Þorsteinsson, tók við staðfestingu á að staðurinn heldur stjörnunni við athöfn í Ráðhúsi Kaupmannahafnar síðdegis í dag.

Stjörnukokkurinn Paul Bocuse er látinn
Innanríkisráðherra Frakklands, Gerard Collomb, tilkynnti um andlát Bocuse á Twitter-reikningi sínum í dag.