Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024)
86 87 88 89 90 91 92 93 94 … 148 ›
Ásdís Halla nýr ráðuneytisstjóri háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefr skipað Ásdísi Höllu Bragadóttur í embætti ráðuneytisstjóra. Alls sóttu átta um stöðuna, sem var auglýst 3. febrúar og rann umsóknarfrestur út 28. febrúar. Innlent 13.4.2022 16:55
„Fólki misbýður brask“ Varaformaður fjárlaganefndar Alþingis segir nefndina hafa óskað eftir svörum frá Bankasýslunni um hvaða aðferðafræði söluráðgjafar í útboðinu á Íslandsbanka hafi viðhaft. Myndin sem sé að teiknast upp eftir útboðið sé allt annað en falleg. Fólki misbjóði brask. Hann segist ekki muna eftir því að viðskiptaráðherra hafi komið áhyggjum sínum á framfæri um söluna við fjárlaganefnd. Innlent 13.4.2022 13:00
Óli Björn varar Lilju við því að svíkja lit Óli Björn Kárason þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins sendir Lilju D. Alfreðsdóttur, varaformanni Framsóknarflokksins eiturpillu í grein sem hann birtir í Mogga dagsins. Innlent 13.4.2022 12:41
Félög Þorsteins Más og Guðbjargar hafa ekki selt neitt í Íslandsbanka Eignarhaldsfélagið Steinn, sem er í meirihlutaeigu Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra Samherja, og fjárfestingafélagið Kristinn, sem er í eigu Guðbjargar Matthíasdóttur og fjölskyldu og rekur meðal annars Ísfélag Vestmannaeyja, hafa ekki selt neitt af þeim bréfum sem þau keyptu í útboði Bankasýslu ríkisins á ríflega fimmtungshlut í Íslandsbanka í lok síðasta mánaðar. Innherji 13.4.2022 10:03
Fylgi hrynur af stjórnarflokkum eftir bankasölu og Búnaðarþing Fylgi hefur hrunið af stjórnarflokkunum eftir að umræða um Búnaðarþingsmálið og söluna á Íslandsbanka komst í hámæli. Stjórnarflokkarnir hafa samanlagt tapað um átta prósentustiga fylgi á örfáum dögum. Á sama tíma hefur fylgi Pírata og Samfylkingar stóraukist. Innlent 12.4.2022 18:31
Fjölmargir farnir með feng sinn eftir „vel heppnuð“ kaup í Íslandsbanka Af þeim 207 fjárfestum sem fengu úthlutað til kaups hlutum í Íslandsbanka í umdeildu útboði sem fram fór fyrir þremur vikum, hafa 132 þeirra þegar selt sitt að verulegu eða öllu leyti. Innlent 12.4.2022 18:20
Bankasýslan segist „fagna“ rannsókn FME á útboði Íslandsbanka Bankasýsla ríkisins „fagnar“ því að Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hafi tekið til athugunar tiltekna þætti í tengslum við lokað útboð á 22,5 prósenta hlut Íslandsbanka í síðasta mánuði. Stofnunin segir að mikilvægi þess að skapa traust og tiltrú á sölumeðferð á eignarhlutum í Íslandsbanka verði „seint ofmetið.“ Innherji 12.4.2022 16:03
Fagnar því að Lilja standi með sannfæringu sinni Ásthildur Lóa Þórsdóttir, varaformaður þingflokks Flokks fólksins fagnar því að Lilja Alfreðsdóttir viðskiptaráðherra standi með sannfæringu sinni og segi hug sinn opinberlega varðandi Íslandsbankamálið. Ásthildur kallar eftir afsögn fjármálaráðherra. Innlent 12.4.2022 14:39
Ný móttökumiðstöð bylting í þjónustu Fólki sem sækir um alþjóðlega vernd hér á landi hefur fjölgað gríðarlega að undanförnu, ekki síst vegna innrásar rússneskra stjórnvalda í Úkraínu. Skoðun 12.4.2022 10:30
Framsóknarflokkurinn ráðgáta að mati stjórnmálafræðings Eftir yfirlýsingar Lilju D. Alfreðsdóttur, viðskiptaráðherra, að hún hafi verið mótfallin þeirri leið sem farin var við útboð á hlut ríkisins í Íslandsbanka og að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hljóti að bera þar ábyrgð, er komin upp krísa á stjórnarheimilinu. Innlent 12.4.2022 10:09
Telur alvarlega krísu á stjórnarheimilinu Fjármálaeftirlitið hefur tekið söluna á Íslandsbanka til skoðunnar. Viðskiptaráðherra segir óeiningu hafa verið í ríkisstjórn um framkvæmdina en það var hvergi fært til bókar að sögn forsætisráðherra. Þingmaður stjórnarandstöðunnar segir krísuástand í ríkistjórn. Innlent 11.4.2022 22:30
Geislavirkur ráðherra kominn nær því að þurfa að íhuga stöðu sína Kristrún Frostadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segir Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra kominn nær því að þurfa að íhuga stöðu sína alvarlega eftir að misbrestir komu í ljós við söluna á Íslandsbanka. Innlent 11.4.2022 21:19
LSR hefur keypt í Íslandsbanka fyrir vel á fjórða milljarð eftir útboð Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR), stærsti lífeyrissjóður landsins, hefur verið afar umfangsmikill kaupandi á eftirmarkaði með bréf í Íslandsbanka í kjölfar útboðs Bankasýslu ríkisins á stórum hluta í bankanum í lok síðasta mánaðar. Hefur sjóðurinn á þeim tíma bætt við sig sem nemur 1,4 prósenta eignarhlut sem er stærri hlutur en hann fékk úthlutað í útboðinu. Innherji 11.4.2022 18:32
Túlka megi orð Lilju sem svo að hún kalli eftir afsögn fjármálaráðherra Stjórnmálafræðiprófessor segir ekki hægt að túlka orð Lilju Alfreðsdóttur viðskiptaráðherra, um að hún hafi verið mótfallin þeirri leið sem farið var við sölu á hlut ríkisins til Íslandsbanka, öðruvísi en að sprungur séu komnar í samstarf ríkisstjórnarflokkanna þriggja. Hann segir hægt að túlka orð Lilju á þá leið að hún kalli eftir afsögn Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra. Innlent 11.4.2022 18:17
Katrín kannast ekkert við andstöðu Lilju Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra kannast ekki við að Lilja D. Alfreðsdóttir viðskiptaráðherra hafi viljað færa til bókar andstöðu sína við fyrirkomulag útboðs á hlutum í Íslandsbanka. Innlent 11.4.2022 16:51
Hátt í tvö hundruð bandarískir hermenn æfðu landgöngu í Hvalfirði Bandarískir landgönguliðar eru við lendingaræfingar í Hvalfirði í dag í tengslum við varnaræfinguna Norður-Víking. Um sjö hundruð manns taka þátt í varnaræfingunni sem hófst 2. apríl og sendur til fimmtudags. Innlent 11.4.2022 16:39
Fjármálaeftirlitið hefur hafið athugun á tilteknum þáttum sölu á Íslandsbanka Gríðarleg gagnrýni hefur komið fram á framkvæmd á sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka í síðasta mánuði. Stjórnarþingmenn og stjórnarandstaðan hafa gagnrýnt framkvæmdina ásamt fleirum. Fjármálaeftirlitið hefur nú hafið rannsókn. Innlent 11.4.2022 15:42
Segir að Lilja hefði getað forðað stórslysi ef hún hefði bara talað skýrt Sigmar Guðmundsson alþingismaður segir í aðsendri grein á Vísi að Lilja Dögg Alfreðsdóttir hefði mátt tala skýrar því þannig hefði mátt afstýra stórslysi sem Sigmar vill meina að salan á hlut ríkisins í Íslandsbanka hafi verið. Innlent 11.4.2022 14:32
Lilja afruglar VG og bendir á Bjarna Ben Salan á eign þjóðarinnar í Íslandsbanka tekur á sig undarlegri mynd með hverjum deginum. Nú stígur Lilja Alfreðsdóttir, viðskiptaráðherra, fram og segist hafa verið andvíg því fyrirkomulagi sem viðhaft var við söluna. Skoðun 11.4.2022 14:30
Moldviðri þyrlað upp Það er mikilvægt að tapa ekki áttum þegar stormurinn blæs og þyrlar upp moldviðri. Íslandsbanki komst í eigu ríkissjóðs við uppgjör þrotabúa. Ríkissjóður tók yfir bankann og hann hefur orðið að verðmætri eign, um 270 milljarða króna virði þegar lögð eru saman verðmæti eignarhluta og arður til eigandans, Ríkissjóðs. Skoðun 11.4.2022 13:32
Verð hlutabréfa í Íslandsbanka lágt þegar umdeild salan fór fram Björn Leví Gunnarsson alþingismaður segir að þegar hlutur ríkisins í Íslandsbanka var seldur hafi verð á hlutabréfum verið lágt. Hann telur ekki úr vegi að um markaðsmisnotkun ofan á annað hafi verið í kortunum. Viðskipti innlent 11.4.2022 13:17
Viðskiptaráðherra segist hafa gagnrýnt áform í nefnd með forsætis- og fjármálaráðherrum Viðskiptaráðherra segist ekki vera undrandi á þeirri gagnrýni sem salan á Íslandsbanka hefur hlotið síðustu daga. Ábyrgðin hjóti að liggja hjá stjórnmálamönnum sem tóku ákvörðun í málinu. Varaformaður efnahags-og viðskiptanefndar segir að framkvæmd útboðsins hafi verið allt önnur en Bankasýslan kynnti fyrir nefndinni. Framkvæmdastjóri Landssambands lífeyrissjóða segir mikilvægt að kanna hvort salan hafi farið fram á eðlilegan máta. Innlent 11.4.2022 13:14
Útilokar ekki nýja herstöð á Íslandi Starfandi utanríkisráðherra útilokar ekki að nýrri herstöð verði komið á fót hér á landi, þó engin áform séu um það á þesssum tímapunkti. Bandarískir landgönguliðar taka lendingaræfingar í Hvalfirði í dag í tengslum við varnaræfinguna Norður-Víking og hernaðarandstæðingar boðuðu til kræklingatínslu á sama tíma. Innlent 11.4.2022 12:01
Málsvarar fjárfesta í pontu Alþingis Íslenska örþjóðin stendur undir háum rekstrarkostnaði og gríðarlegum hagnaði bankanna. Enginn annar. Almenningur borgar brúsann með vinnu sinni og viðskiptum. Skoðun 11.4.2022 09:00
Allt á að vera uppi á borðum Við Vinstri græn erum hreyfing sem styður og vill styrkja samfélagslegt eignarhald á sem flestum sviðum. Það er því algjörlega ljóst að þegar ráðist er í sölu ríkiseigna verður að ríkja fullkomið traust til söluferilsins og algjört gagnsæi, um það hljótum við öll að vera sammála. Ekki leið á löngu frá því að sölu á 22% hlut í Íslandsbanka lauk uns vísbendingar komu fram um að pottur kynni að hafa verið brotin. Skoðun 11.4.2022 07:31
Lilja gagnrýnir söluferli Íslandsbanka og segir ekki koma til greina að selja Landsbankann Lilja Alfreðsdóttir viðskiptaráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins segist hafa verið mótfallin þeirri ákvörðun að selja hlut ríkisins í Íslandsbanka til valins hóps fjárfesta og bendir á að ekkert í stöðu þjóðarbúsins hafi kallað á bankasölu nú. Innlent 11.4.2022 06:49
Þungt hljóð í flokksmönnum VG vegna Íslandsbanka en gerir ekki athugasemdir við fjármálaráðherra Þingmaður stjórnarmeirihlutans vill stjórn og forstjóra Bankasýslu ríkisins frá vegna Íslandsbankamálsins. Hann segir hljóðið þungt í flokksmönnum Vinstri grænna vegna málsins en gerir engar athugasemdir við aðkomu fjármálaráðherra. Innlent 10.4.2022 19:30
Salan á Íslandsbanka beri augljós einkenni spillingar „Sala fjármálaráðherra á hlut ríkisins í Íslandsbanka er skólabókardæmi um spillingu, aðstöðubrask, vanhæfni og óheilbrigða menningu ábyrgðarleysis undir forystu ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur,“ segir í yfirlýsingu frá stjórn Íslandsdeildar Transparency International. Innlent 10.4.2022 18:00
Æpandi skortur á pólitískri forystu „Tilboðsfyrirkomulag lágmarkar einnig áhættu ríkissjóðs og kostnað í tengslum við útboð.“„Markmiði um dreift eignarhald var náð með frumútboði, enda hefur Íslandsbanki flesta hluthafa af skráðum félögum á Íslandi og fjölbreyttra eignarhald heldur en flest, ef ekki öll skráð félög á Íslandi.“ Skoðun 10.4.2022 14:31
Afkoma Póstsins skipti engu í huga stjórnarformannsins, aðeins pólitík Birgir Jónsson, forstjóri Play og áður forstjóri Íslandspósts, segir Bjarna Jónsson, þingmann VG og fyrrverandi stjórnarformann Íslandspósts, vera „holdgervingur þess að pólitísk hrossakaup fari alls ekki saman við meðhöndlun fyrirtækja eða verðmæta í almannaeigu.“ Innherji 10.4.2022 12:02