Tækni
80 81 82 83 84 ›
Besti vefurinn tilnefndur Val á besta íslenska vefnum stendur þessa dagana yfir vegna Íslensku vefverðlaunanna sem veitt verða í fjórða sinn föstudaginn 29. október. Hægt er að tilnefna vefi til miðnættis annað kvöld á vef <strong><a href="http://www.vefsyn.is" target="_blank">Vefsýnar</a></strong>. Innlent 13.10.2005 14:48
Útflutningur fjórtánfaldast Íslenskur upplýsingatæknigeiri hefur verið að taka við við sér eftir niðursveiflu og jukust tekjur af útflutningi hugbúnaðar og þjónustu um 9,5 prósent milli áranna 2002 og 2003. Meira er nú flutt til Evrópu en áður og minna til Bandaríkjanna. Innlent 13.10.2005 14:44
Tilefnislítið lögguáhlaup Bjarki Magnússon, sem var handjárnaður í stóra tölvumáli lögreglunnar, segir margfalt meiri skipti á tölvuskrám eiga sér stað á vefsvæði Deilis en Ásgarði, sem lögreglan réðst á. Hann segist hafa fengið ábendingu um komu lögreglunnar. Innlent 13.10.2005 14:44
Hamlar gegn bankaránum Á útibússtjóraráðstefnu Landsbankans um helgina var kynnt nýstárleg seðlavél fyrir bankaútibú sem eykur uppgjörs- og afgreiðsluhraða og sér til þess að reiðufé verði ekki aðgengilegt. Innlent 13.10.2005 14:43
Aukinn hraði ADSL hjá Símanum Í október og nóvember verður aukinn hraði á öllum ADSL-tengingum viðskiptavina Símans. Þegar hefur verið hafist handa við að auka hraðann og þurfa viðskiptavinir ekki að biðja um hann sérstaklega. Innlent 13.10.2005 14:43
Samkeppni við Google harðnar Bóksalinn Amazon opnaði fyrir skömmu nýja leitarvél á slóðinni a9.com. Leitin þar byggist á svipaðri tækni og Google. Viðmótið er einfalt en til viðbótar upplýsingum í textaformi sýnir leitarvél Amazon einnig þær myndir sem vélin finnur á vefnum og geta tengst leitinni. Erlent 13.10.2005 14:43
80% drengja hala ólöglega niður Um áttatíu prósent drengja í tíunda bekk sækja kvikmyndir og tónlist á Netið með samskonar forriti og nú er til rannsóknar hjá lögreglunni vegna meints höfundarréttarstuldar. Einn höfuðpauranna í því máli ákvað að leysa frá skjóðunni til þess að komast hjá gæsluvarðhaldi. Innlent 13.10.2005 14:43
Tekið á stafrænum rummungum Í Bandaríkjunum er verið að herða löggjöf um höfundarréttarbrot. Stafrænn hugverkaþjófnaður er talinn vaxandi vandamál víða um heim. Spjótum er beint bæði að tölvunotendum sem skiptast á skrám og þjófum sem afrita efni til sölu. Innlent 13.10.2005 14:42
Metið á a.m.k. hundruðir milljóna Þrjátíu manna lið Ríkislögreglustjóra og lögregluembætta víða um land gerði í gær húsleit hjá tólf einstaklingum á nokkrum stöðum á landinu og handtóku nokkra vegna gruns um að þeir sæktu og dreifðu ólöglega kvikmyndum, tónlist og tölvuforritum í gegnum Netið. Verðmæti notkunar þess efnis sem um ræðir hleypur a.m.k. á hundruðum milljóna króna. Innlent 13.10.2005 14:42
Höfuðpaurar 100 manna hóps Tólf menn, sem grunaðir eru um stórfellda ólöglega dreifingu á kvikmyndum, tónlist og tölvuforritum á Netinu, voru handteknir í gær eftir umfangsmikla húsleit Ríkislögreglustjóra og lögreglu víða um land. Krafist hefur verið gæsluvarðhalds yfir einum þeirra. Hald var lagt á búnað í fórum mannanna en talið er að þeir séu höfuðpaurar í hundrað manna lokuðum hópi. Innlent 13.10.2005 14:43
Leit vegna ólöglegrar dreifingar Þrjátíu manna lið Ríkislögreglustjóra og lögregluembætta víða um land gerði í gær húsleit hjá tólf einstaklingum á nokkrum stöðum á landinu vegna gruns um að þeir sæktu og dreifðu ólöglega til annarra, kvikmyndum, tónlist og tölvuforritum í gegnum Netið. Nokkrir voru handteknir. Innlent 13.10.2005 14:42
ADSL notkun hrundi Notkun á ADSL-neti Símans dróst saman um 50 til 60 prósent eftir að menn frá ríkislögreglustjóra lögðu hald á tölvur og tölvubúnað tólf einstaklinga í húsleitum í fimm lögregluumdæmum á þriðjudag. Innlent 13.10.2005 14:42
Netumferð minnkar um 40% Gagnaumferð á Netinu hér á landi hefur minnkað um 40% eftir aðgerð lögreglunnar og samtaka höfundarrétthafa í gær þar sem hald var lagt á tölvur og gögn í tólf húsleitum. Innlent 13.10.2005 14:42
Þráðlaust dreifikerfi úti á landi Fjarskiptafélagið eMax vill byggja upp þráðlaust dreifikerfi á landsbyggðinni í samkeppni við Símann. Framkvæmdastjóri eMax segir umræðu stjórnmálamanna um uppbyggingu Símans á villigötum. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 14:40
Tilkynning frá Vísi Vegna tæknilegra vandkvæða hafa verið örðugleikar við að halda Vísi gangandi. Ekki liggur fyrir hver ástæðan er en unnið er að viðgerð. Óvíst er hvenær henni lýkur en vandræðin gætu varað fram eftir degi í dag, föstudag. Innlent 13.10.2005 14:39
Vírusar hjá bændum Vírusvarnir bænda mættu vera betri, segir Baldur Óli Sigurðsson, kerfisstjóri hjá Bændasamtökum Íslands. Í umfjöllun Bændablaðsins kemur fram að sérstaklega verði tekið á öryggismálum í á námskeiðinu "Rafrænt bókhald - rafræn samskipti" sem Bændasamtök Íslands halda í samstarfi við búnaðarsamböndin og Upplýsingatækni í dreifbýli. Innlent 13.10.2005 14:39
Fólk hætti að nota vafra Microsoft Öryggisskrifstofa upplýsingatækni í Þýskalandi (Bundesamt für Sicherheit in der Informationstechnik) leggur til að fólk hætti að nota Microsoft Internet Explorer vafrann og noti frekar aðra valkosti. Á þetta er bent í tilkynningu frá norska hugbúnaðarfyrirtækinu Opera Software. Erlent 13.10.2005 14:39
13 ára drengur með vændisþjónustu Þrettán ára drengur í Taívan hefur verið handtekinn fyrir að starfrækja vændisþjónustu á Netinu. Samkvæmt upplýsingum lögreglu mun drengurinn hafa fengið fleiri en 100 drengi og stúlkur til að skrá sig á heimasíðuna síðustu fjóra mánuði, undir þeim formerkjum að selja kynferðislega þjónustu. Erlent 13.10.2005 14:39
Eins og að hitta gamlan vin Fjallað var um íslenskt viðmót hugbúnaðar Microsoft á stærstu árvissu ráðstefnunni sem fyrirtækið heldur hér á landi. Microsoft telur sig halda tungumálinu "lifandi" með íslenskum útgáfum vinsælasta hugbúnaðar fyrirtækisins. Innlent 13.10.2005 14:39
Netið að hrynja undan álagi Fréttirnar sem Netnotendur vilja ekki heyra: Veraldarvefurinn er að hruni kominn. Þannig hljóðar upphaf fréttar í breska dagblaðinu The Guardian í morgun. Vitnað er í ummæli Patricks Gelsinger, tækistjóra hjá örgjörvarisanum Intel, en hann sagði að Netið gæti ekki lengur ráðið við umferðarþungann sem fer um kerfið. Innlent 13.10.2005 14:38
Yahoo! kaupir Musicmatch Netfyrirtækið Yahoo! greindi frá því í dag að fyrir dyrum stæðu kaup á einkafyrirtækinu Musicmatch. Með kaupunum hyggst Yahoo! efla tónlistarþjónustu fyrirtækisins á Netinu en Musicmatch hefur boðið Netnotendum hugbúnað að til að stýra stafrænum lagasöfnum og hlusta á útvarpsstöðvar á Netinu. Erlent 13.10.2005 14:38
Starfsumsókn í MyDoom veiru Þrjú ný afbrigði af MyDoom veirunni hafa skotið upp kollinum og þau hafa ekki aðeins að geyma hefðbundnar hættulegar veirur heldur einnig bón um atvinnu. Nýju afbrigðin kallast MyDoom U, V og Q og þau freista þess að sýkja tölvur með svokölluðum trójuhesti, Surila, sem gæfi tölvuþrjótum kleift að taka yfir stjórn tölvur og nota þær ýmist til að senda ruslpóst eða hópsendingar til að kaffæra póstþjóna. Erlent 13.10.2005 14:38
Höfundur Sasser veirunnar ákærður Meintum höfundi Sasser veirunnar hefur verið birt formleg ákæra. Þýski saksóknarinn tíundar í ákæruskjalinu brot þýska námsmannsins Sven Jaschan og ber á hann þær sakir að hafa unnið skemmdarverk á tölvum, hagrætt skjölum og truflað tölvukerfi í almannaþágu. </span /> Erlent 13.10.2005 14:38
Guð blessi Netið, segir Björk Íslenska stórstirnið Björk er ekki ánægð með hljómplötuiðnaðinn. Hún þakkar Guði fyrir Netið og heitir því að halda á lofti sjóræningjafána. Þannig hefst frétt í norska Netmiðlinum ITAvisen sem vitnar í viðtal Vals Gunnarssonar á heimasíðu Bjarkar þar sem hún segir álit sitt á baráttu hljómplötuiðnaðarins gegn Netmiðlun tónlistar. Innlent 13.10.2005 14:38
Mýs og lyklaborð lesa fingraför Microsoft hyggst framleiða og markaðssetja innan tíðar tölvumýs og lyklaborð sem verða þeirrar náttúru að þau lesa fingraför. Erlent 13.10.2005 14:38
Tölvupóstsstríð í fyrirtækjum Tölvupóstur er orðinn eitt skæðasta vopnið í valdabaráttu innan fyrirtækja, segir í niðurstöðum nýrrar rannsóknar frá Monash háskólanum í Ástralíu. Rannsóknin fólst í því að kanna hvernig starfsmenn fyrirtækja nota þessa algengu samskiptaleið en starfsmenn þriggja stórfyrirtækja á mismunandi sviðum voru undir smásjá vísindamanna. Innlent 13.10.2005 14:38
Lífstíðarfangelsi fyrir Netklám Stjórnvöld í Kína hafa hert baráttuna gegn Net- og farsímaklámi með því að hóta þeim sem dreifa slíku efni allt að lífstíðarfangelsi,að því er fram kemur hjá Xinhua fréttastofunni. Erlent 13.10.2005 14:38
Samstarf um farsímasjónvarp Stærstu farsímafyrirtæki heims hafa tekið höndum saman um þróun farsímasjónvarps. Fulltrúar Nokia í Finnlandi greindu nýlega frá því að Motorola, NEC, Siemens og Sony Ericsson hefðu sett á laggirnar bandalag, Open Mobile Alliance, til að þróa sjónvarpsþjónustu fyrir farsíma og aðra farandgripi. Innlent 13.10.2005 14:38
Stafrænt RÚV Ríkisútvarpið hefur hafið tilraunir með stafrænar útvarpssendingar í samvinnu við verkfræðideild Háskóla Íslands. Stafrænum sendi hefur verið komið upp á Vatnsenda í Reykjavík og nást sendingarnar á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 13.10.2005 14:36
Flugbílar í háloftin fyrir 2030 Boeing-verksmiðjurnar í Bandaríkjunum eru að hanna flugbíl. Sérfræðingar NASA segja tæknilega mögulegt að slíkir bílar verði að veruleika eftir 25 ár. Spurning sé hins vegar hvort þeir verði nægilega praktískir. Óvíssa ríkir um það hvernig löggæslu verði háttað í háloftunum. </font /></b /> Erlent 13.10.2005 14:36