Grunnskólar

Fréttamynd

Fjöl­breyttar þarfir kalla á fjöl­breytta fag­þekkingu

Eftir nokkra daga tek ég aftur á móti nemendum í einhverfudeild grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu. Þar hef ég starfað síðustu tvö skólaár og fundið starfsvettvang þar sem menntun mín sem tómstunda- og félagsmálafræðingur nýtist afar vel. Samt endurspeglast sú fagþekking hvorki í þeim starfstitlum né launakjörum sem mér standa til boða.

Skoðun
Fréttamynd

Inni­hald náms skiptir máli – ekki um­búðirnar!

Nú þegar ég mæti til vinnu eftir sumarfrí liggur það fyrir að ég sé að fara að vinna að því með mínum skóla að breyta birtingarmynd námsmats enda stóð menntamálaráðherra við það að henda í reglugerð þess efnis.

Skoðun
Fréttamynd

Þegar fram­setning verður að um­bótum

Málflutningur ráðherra menntamála gefur tilefni til að efast um skilning hennar á því hverju hún er að breyta. Málflutingur mótsagnakenndur og að nýtt námsmat eigi ekki að koma neinum á óvart. Tekið skal fram að skólastjórnendur fengu kynningu á fyrirhuguðum nýjum matskvarða í liðinni viku.

Skoðun
Fréttamynd

Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugar­nes­skóla

Breyta á skipulagi við Laugarnesskóla til að tryggja umferð gangandi og hjólandi við skólann og nýtt skólaþorp. Foreldrar kölluðu eftir viðbrögðum borgaryfirvalda síðasta vetur eftir að ekið var á tvö börn á Reykjavegi, skammt frá skólanum og nýju skólaþorpi. 

Innlent
Fréttamynd

„Við hefðum viljað sam­ráð frekar en sam­tal“

Formaður Kennarasambandsins segir að kennarar hefðu viljað samráð frekar en samtal um ákvörðun er varðar breytt námsmat í grunnskólum landsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur mikill hiti verið á fundum kennara, skólastjórnenda og fulltrúa ráðuneytisins síðustu daga.

Innlent
Fréttamynd

Geðþóttaákvörðun barna- og mennta­mála­ráð­herra?

Á allra síðustu dögum hafa komið upplýsingar frá barna- og menntamálaráðuneytinu um að breyta eigi fyrirkomulagi námsmats í grunnskólum. Að 10. bekkur muni fá námsmat í tölustöfum í lokamati í vor í stað bókstafa, þrátt fyrir að ekki sé búið að breyta aðalnámskránni. Eins og áður eiga kennarar að finna út úr þessu sjálfir, þ.e. hvernig breyta og aðlaga eigi hæfnimiðað nám og bókstafaeinkunnir að útreiknuðum tölustöfum.

Skoðun
Fréttamynd

Til hvers erum við að breyta náms­matinu?

Menntamálaráðherra hefur boðað breytingar á námsmati í grunnskólum þar sem meðal annars stendur til að nemendur útskrifist úr grunnskóla með einkunnir í tölum í stað bókstafa. Rökin eru að gera þurfi námsmat skýrara, gegnsærra og samræmdara.

Skoðun
Fréttamynd

Blásum til sóknar í menntun með bættum náms­gögnum

Ný greining mennta- og barnamálaráðuneytisins á stöðu stærðfræðikennslu styður við það sem margir kennarar hafa lengi bent á. Of mikill tími fer í að búa til eigið námsefni vegna þess að námsgögn eru víða komin til ára sinna og stuðningur við kennslu er ekki nægur. [1]

Skoðun
Fréttamynd

„Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“

Móðir einhverfs drengs fékk sig fullsadda af því að glíma við úrræðaleysi í kerfinu og stofnaði því Þorláksskóla, grunnskóla fyrir börn með einhverfu, sem opnar dyr sínar í haust. Hún muni aldrei treysta kerfinu fyrir syni sínum og ætlar að sjá til þess að hann fái alla þá hjálp sem hann þurfi og verði sigurvegari í lífinu.

Lífið
Fréttamynd

Vilja fá ó­keypis að­gang að gommu af höfundar­vörðu efni

Hildur Knútsdóttir rithöfundur segir að hún hafi fengið sérkennilegt viðskiptaboð fyrir skömmu sem gekk út á „samstarf“ við aðila sem eru að þróa gervigreindarforrit til að styðja við lestrarkennslu. Meinið er að það stóð ekki til að greiða neitt fyrir texta hennar.

Innlent
Fréttamynd

For­eldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“

Börn mega ekki vera úti lengur en til miðnættis á sumrin en nýlega hefur skapast umræða á samfélagsmiðlum og spurningin sem virðist brenna á allra vörum er: klukkan hvað börn mega fara aftur út?  Lögreglumaður segist sjálfur hafa velt málinu fyrir sér en það fari mjög eftir aðstæðum hvort sett sé athugasemd við einsömul börn á flakki snemma á morgnana.

Innlent
Fréttamynd

Þöglu börnin gleymast í kerfinu

„Það er ekkert að barninu mínu. Samfélagið mætir honum bara ekki. Við foreldrar þurfum stöðugt að sanna það sem ætti að vera augljóst,“ segir Þuríður Sverrisdóttir. Sonur hennar,  Sverrir Styrkár, varð fimm ára í maí. Hann er greindur með einhverfu, málröskun og erfiðleika við fæðuinntöku. Síðustu ár hafa kennt Þuríði að réttindi fást ekki sjálfkrafa þótt greining liggi fyrir.

Lífið
Fréttamynd

„Miklar vendingar núna í mál­efnum bæjarins“

Nýr bæjarstjóri Grindavíkur lítur ekki svo á að farið sé gegn tilmælum Grindavíkurnefndarinnar með því að hefja skólastarf að nýju í bænum. Allt verði gert til að tryggja öryggi nemenda og starfsmanna og að miklar vendingar séu framundan í málefnum bæjarins.

Innlent
Fréttamynd

Heilsu­fars­skoðanir skuli fram­kvæmdar að lág­marki fjórum sinnum

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur staðfest nýja reglugerð um skólaheilsugæslu grunnskólabarna. Með henni er í fyrsta sinn mörkuð heildstæð umgjörð um skipulag og framkvæmd skólaheilsugæslu á landsvísu. Reglugerðin tekur gildi 1. janúar 2027 en meðal breytinga sem gerðar voru eru aukin áhersla á geðheilbrigði, endurskoðuð ákvæði um tannheilsu barna og aukin fræðsla um kynheilbrigði.

Innlent
Fréttamynd

Sam­bandið storma­samt og lítið út­lit fyrir að gjáin sé að minnka

Tæpt hálft ár er liðið síðan Inga Sæland tók við embætti mennta- og barnamálaráðherra og samband hennar við kennaraforystuna hefur verið stormasamt. Nokkrum sinnum hefur slegið í brýnu og spennan er mikil. Skýrast kom það fram á kennaraþingi í apríl þegar Inga kynnti breytingar á einkunnagjöf í grunnskólum.

Innlent
Fréttamynd

Nem­endum mis­munað með ó­sam­ræmi ein­kunna

Barna- og menntamálaráðherra segir misræmi í einkunnagjöf við útskrift nemenda úr grunnskóla búa til falskt öryggi. Verið sé að mismuna nemendum sem komast ef til vill ekki í sitt fyrsta val um framhaldsskóla vegna þessa. Þá er hún döpur yfir fylgi Flokks fólksins sem mælist utan þings.

Innlent
Fréttamynd

Tíma­mót hjá Klettaskóla: „Allir mjög peppaðir“

Skólastjóri Klettaskóla er spennt fyrir flutningum á hluta starfsemi skólans úr Hlíðunum í Reykjavík í Staðahverfi í Grafarvogi. Kærkomið verði að færa frístund nemenda á miðstigi nær skólanum og rýmka almennt um starfsemina sem hafi sprengt húsnæðið algjörlega utan af sér.

Innlent