Færð á vegum
1 2 3 4 5 6 … 13 ›
Enn viðvaranir og óvissustig vegna snjóflóðahættu Gular viðvaranir eru nú í gildi vegna veðurs á Faxaflóa, Vestfjörðum og á Ströndum og Norðurlandi vestra. Þær eru annars vegar til 14 og 17. Þar er norðvestan stormur og hríð og á Faxaflóa er vindhraðinn allt að 25 metrum á sekúndu. Veður 17.3.2026 07:18
Um 500 leituðu skjóls í fjöldahjálparstöð og á hótelum Hátt í fimm hundrað manns gistu í fjöldahjálparstöðvum, gistiheimilum og hótelum í nótt vegna lokunar á Holtavörðuheiði. Búið er að opna veginn og lögregla segir fólk geta komið sér af stað. Mikilvægt sé þó að gefa sér tíma. Innlent 16.3.2026 08:57
Aldrei séð flóð falla á þessum stað á átján ára ferli Gestur Hansson, snjóflóðaeftirlitsmaður á Siglufirði, segir veðrið á Siglufirði að ganga niður og það hafi verið bærilegt í nótt. Innlent 16.3.2026 08:47
Holtavörðuheiðin opin á ný Búið er að opna Holtavörðuheiðina eftir lokun í nótt. Enn er ófært um Fróðaárheiði. Hálka og snjóþekja er á flestum leiðum. Veður 16.3.2026 07:22
Hundruð manns í fjöldahjálparstöðvum fyrir norðan: „Það var bara snælduvitlaust veður“ Hundruð manns hafa leitað í fjöldahjálparstöðvar Rauða krossins á Norðvesturlandi í kvöld. Veðurviðvararnir eru fallnar úr gildi en Holtavörðuheiðin stendur enn lokuð. Ekki er ljóst hvenær hún opnar að nýju. Innlent 15.3.2026 23:07
Önnur rúta fór út af og Hringvegi lokað að hluta Þrenging er á Hringvegi um Holtavörðuheiði þar sem rúta fór út af vegi í dag, að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar. Þá hefur Hringveginum verið lokað milli Hvammstanga og Víðigerðis þar sem bílar sitja fastir. Ríflega hundrað björgunarmenn hafa verið ræstir út síðasta sólarhring, að sögn Landsbjargar. Veður 15.3.2026 18:53
Rúta út af og Þingvallavegi lokað Lokað hefur verið fyrir umferð um Þingvallaveg vegna umferðarslyss á Mosfellsheiði en þar hafnaði rúta fyrir utan veginn eftir að ökumaður missti stjórn á ökutækinu. Innlent 15.3.2026 15:58
Hellisheiði er lokuð Umferðaróhapp varð á Hellisheiði og er vegurinn lokaður í báðar áttir í augnablikinu. Innlent 15.3.2026 13:48
Ferðalangar í vandræðum víða um land vegna færðar Björgunarsveitir á Vestfjörðum og Reykjavík voru stóran hluta nætur að aðstoða ferðalanga sem voru í vandræðum sökum slæmrar færðar. Innlent 15.3.2026 12:52
Holtavörðuheiði var lokað vegna slyss Búið er að opna Holtavörðuheiði að nýju eftir að henn ihafði verið lokað vegna umferðarslyss. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar Umferðin.is. Lokunin varði í um klukkustund en á meðan var hjáleið um Laxárdalsheiði og Bröttubrekku. Innlent 13.3.2026 16:30
„Ég var skelfingu lostinn“ Franskur maður óttaðist um líf sitt í gær þegar að lítið snjóflóð hafnaði á ökutæki hans. Hann missti stjórn á ökutækinu og segir mikla lukku að ekki hafi farið verr. Búið er að opna Holtavörðuheiði aftur en flytja þurfti 25 manns þaðan í gær og skilja ökutæki eftir. Fjöldahjálparstöð var opnuð í Reykjaskóla vegna þessa. Innlent 13.3.2026 12:16
Fimm fólksbílar og flutningabíll fastir á Holtavörðuheiði Björgunarsveitir á Norðurlandi aðstoðuðu 25 manns niður af Holtavörðuheiði í gærkvöldi. Meirihlutinn fékk gistingu í Reykjaskóla. Björgunarsveitir fóru aftur á heiðina í morgun til að losa bílana sem þar sátu fastir, alls festust fimm fólksbílar og einn flutningabíll í óveðri í gær. Innlent 13.3.2026 10:56
Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Veginum um Súðavíkurhlíð verður lokað hálf tólf en klukkan ellefu höfðu alls sex snjóflóð fallið á veginn. Erfið færð er um veginn. Einnig hafa fallið snjóflóð í fjallinu fyrir ofan Flateyri. Innlent 12.3.2026 11:01
Óvissustig í Súðavíkurhlíð Vegagerðin hefur lýst yfir óvissustigi í Súðavíkurhlíð vegna snjóflóðahættu. Innlent 11.3.2026 22:01
„Ágætis líkur á því að færð spillist“ Gular viðvaranir hafa verið gefnar út vegna norðan hríðar við Breiðafjörð, á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra á morgun fram á föstudag. Vegagerðin segir líklegt að færð spillist á fjallvegum seint á morgun. Innlent 11.3.2026 10:50
Færð geti víða spillst hratt Í dag má búast við allhvössum vindi og snjókomu á fjallvegum og heiðum víða um land. Slíkt hríðarástand skapar mjög blind og erfið akstursskilyrði og færð getur spillst hratt. Veður 9.3.2026 10:15
Él og slydduél í dag og önnur lægð á morgun Í dag má búast við suðlægri átt og fimm til 13 metrum á sekúndu og él eða slydduél, en lengst af að það verði þurrt norðaustanlands framan af degi. Eftir hádegi gengur í suðaustan 13 til 20 metra á sekúndu og bætir í él um tíma á austanverðu landinu. Veður 8.3.2026 07:27
Gul viðvörun og enn líkur á eldingum Gul viðvörun er í gildi á meirihluta landsins þar til klukkan um hádegi eða seinni part í dag. Lengst eru viðvaranir í gildi á Norðurlandi eystra, Ströndum, Vestfjörðum og Norðurlandi vestra, eða til klukkan 16. Viðvörun rennur fyrst út í Breiðafirði klukkan 12 en svo klukkan 14 á Suðurlandi og á miðhálendi. Sums staðar eru líkur á eldingum líkt og í gær. Veður 7.3.2026 07:33
Kröpp lægð yfir landinu og úrkoman blönduð Kröpp og djúp lægð er núna vestur af landinu. Samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar gengu skilin yfir landið í nótt og erum við nú í hlýjasta hluta veðurkerfisins. Úrkoman á engu að síður að vera blönduð samkvæmt spá, rigning, slydda og jafnvel snjókoma á köflum. Veður 6.3.2026 07:28
Búið að opna veginn um Raknadalshlíð eftir flóðið Vegurinn um Raknadalshlíð á Vestfjörðum var opnaður rétt eftir klukkan sjö í morgun en snjóflóð féll á hann síðdegis í gær. Dynjandisheiðin er lokuð og sömu sögu er að segja af Kleifarheiði. Innlent 4.3.2026 07:24
Gæti orðið flughált síðdegis Spáð er að hlýni skarpt síðdegis með rigningu á sunnan- og vestanverðu landinu. Það gæti því víða orðið flughált á meðan saman þjappaður snjór og klaki tekur upp. Innlent 3.3.2026 07:25
Hringveginum lokað vegna veðurs Hluta Hringvegarins sem liggur um Skeiðársand hefur verið lokað vegna sandfoks og óveðurs. Gul veðurviðvörun er í gildi á svæðinu. Innlent 2.3.2026 15:32
Hringvegurinn líklega lokaður til morguns Skólahaldi var aflýst í tveimur skólum í Múlaþingi í morgun vegna veðurs og þá loka skólar í Fjarðabyggð á hádegi. Hringveginum um Mývatn og Möðrudalsöræfi var lokað í morgun og ekki er búist við að hann opni á ný fyrr en í fyrramálið. Innlent 2.3.2026 11:55
Appelsínugul viðvörun á morgun Veðurstofan hefur gefið út appelsínugula viðvörun á Austurlandi vegna norðaustan hríðar sem tekur gildi klukkan eitt á morgun, mánudaginn 2. mars. Gular viðvaranir vegna veðurs hafa sömuleiðis verið gefnar út fyrir Norðurland eystra, Austfirði, Miðhálendi og Suðausturland. Veður 1.3.2026 11:32
Vara við stórhríð á Austurlandi Varað við miklum vindi og snjókomu á norðaustanverðu landinu eftir hádegi á morgun. Veður 1.3.2026 10:08
Hálka í höfuðborginni og þungfært víða um land Vegagerðin varar við því að hálka sé nú á flestum leiðum á höfuðborgarsvæðinu eftir veðrið sem gekk yfir í gækvöldi og í nótt. Á Suðvesturlandi er einnig snjóþekja, eða hálka og hálkublettir, á flestum leiðum. Opið er um Hellisheiði og Þrengsli en Hellisheiðin var opnuð á tólfta tímanum í gærkvöldi. Innlent 27.2.2026 06:54
Strætó fór útaf á Holtavörðuheiði Strætisvagn fór út af veginum á Holtavörðuheiði á sjöunda tímanum í dag. Björgunarsveitirnar Húnar á Hvammstanga, Blanda á Blönduósi og Heiðar í Borgarfirði voru kallaðar út til aðstoða um fimmtán manns sem voru í vagninum. Innlent 26.2.2026 23:09
Holtavörðuheiði og Fjarðarheiði lokaðar Holtavörðuheiði og Fjarðarheiði hefur verið lokað. Auk þess er búið að loka veginum milli Ísafjarðar og Súðavíkur vegna snjóflóðahættu. Innlent 26.2.2026 22:08
Væta sunnantil og töluverð hláka í höfuðborginni Fram eftir degi í dag verður suðaustlæg átt með vætu um sunnanvert landið. Töluverð hláka er á höfuðborgarsvæðinu og má búast við hálkublettum hér og þar auk þess sem pollar hafa myndast víða. Veður 26.2.2026 07:13
Mesti snjórinn síðan í október: „Ætluðum við að gera þetta núna?“ Vetrarfærð er víða á vestanverðu landinu vegna snjókomu og gular viðvaranir voru gefnar út í dag vegna hríðarveðurs á höfuðborgarsvæðinu, og á Vestfjörðum og við Breiðafjörð sem taka gildi á morgun. Snjóinn tók að kyngja niður á höfuðborgarsvæðinu rétt um klukkan tvö í dag og var gul veðurviðvörun gefin út nær samstundis og veðrið skall á þar sem óljóst var framanaf hvar nákvæmlega úrkomubakkinn myndi ná landi. Innlent 25.2.2026 20:02