Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Lovísa Arnardóttir skrifar 14. september 2026 07:19 Á morgun kemur hæðarhryggur og svo lægð á miðvikudag. Vísir/Anton Brink Í dag er spáð norðanátt, 5 til 13 metrum á sekúndu vestantil, en annars hægari fram eftir degi.
Í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar segir að það verði dálítil rigning á Norðurlandi og þokusúld en að það ætti að haldast að mestu þurrt í öðrum landshlutum. Það gætu þó verið stöku skúrir á Suðausturlandi. Hiti verður á bilinu sex til 15 stig, hlýjast syðra. Þá kemur fram í hugleiðingum að á morgun eigi að koma hæðarhryggur yfir landið með hægum vindi og björtu veðri, fyrst vestantil. Þá á að vera heldur svalara en í dag. Svo á miðvikudag er nokkuð djúp lægð væntanleg upp að landinu. Þá hvessir af austri og suðaustri með talsverðri rigningu, einkum sunnan- og vestanlands. Um kvöldið fer að lægja og á fimmtudag er útlit fyrir þokkalegt veður, úrkomulítið og milt. Nokkuð greiðfært er um landið allt en þó er víða vegavinna og framkvæmdir sem geta haft áhrif á umferð. Gott er að fylgjast með færð og framkvæmdum á vef Vegagerðarinnar og veðri á vef Veðurstofunnar. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Fremur hæg breytileg átt og víða bjartviðri, en norðvestan 5-13 m/s með smáskúrum austanlands fram eftir degi. Hiti 4 til 13 stig, hlýjast syðst. Á miðvikudag: Suðaustan og austan 10-18 og talsverð rigning. Hiti 7 til 12 stig. Á fimmtudag: Norðaustlæg eða breytileg átt, skýjað og sums staðar dálítil væta. Hiti 8 til 14 stig. Á föstudag: Suðaustanátt og rigning með köflum, en úrkomulítið norðanlands. Hiti breytist lítið. Á laugardag og sunnudag: Vestlæg eða breytileg átt og væta í flestum landshlutum, en úrkomuminna á sunnudag. Hiti 6 til 12 stig.
Veður Færð á vegum Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Sjá meira