Haraldur V Noregskonungur

Fréttamynd

Eigin­maður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra

Seiðmaðurinn og eiginmaður Mörtu Lovísu Noregsprinsessu, Durek Verrett, hefur gengist undir nýrnaígræðslu á Ríkisspítalanum í Ósló. Ígræðslan er sögð hafa gengið vel eftir langa bið eftir líffæragjafa. Hann var 28 ára gamall þegar hann greindist með ólæknandi nýrnasjúkdóm.

Erlent
Fréttamynd

Heilsu Haralds konungs hrakar

Haraldur Noregskonungur hefur legið inni á spítala í tæplega viku, eða síðan mánudaginn 17. ágúst, þar sem hann hlýtur meðferð vegna blóðsjúkdóms en heilsu hans hrakaði um helgina. Hákon krónprins er ríkisstjóri á meðan hinn 89 ára Haraldur konungur er á sjúkrahúsi.

Erlent
Fréttamynd

Mette-Marit út­skrifuð af sjúkra­húsi

Mette-Marit, krónprinsessa Noregs, hefur verið útskrifuð af sjúkrahúsi eftir að hún gekkst undir lungnaígræðslu í síðasta mánuði. Hún tekur sér frí frá konunglegum skyldum í nokkurn tíma til viðbótar.

Erlent
Fréttamynd

Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir að­gerðina

Líkt og langflestir Norðmenn þá fylgdist Mette-Marit, eiginkona Hákonar krónprins, spennt með leik Noregs og Brasilíu á HM í fótbolta sem fram fór í gær og lauk með frækilegum sigri Norðmanna. Norska konungshöllin birti í morgun mynd af Mette-Marit, þeirri fyrstu sem birt er eftir að hún gekkst undir lungnaígræðslu í síðasta mánuði.

Lífið
Fréttamynd

Styttir ferðina vegna veikinda krónprinsessunnar

Hákon, krónprins Noregs, snýr fyrr heim úr opinberri ferð sinni til Japans vegna veikinda Mette-Marit krónprinsessu. Dóttir hjónanna gerir einnig hlé á námi sínu í Ástralíu til að verja tíma með móður sinni.

Erlent
Fréttamynd

Noregs­konungur á sjúkra­hús á Tenerife

Haraldur Noregskonungur hefur verið lagður inn á sjúkrahús þar sem hann er nú staddur á Tenerife. Ástæðan er sýking og vökvaskortur en að öðru leyti er ástand konungsins gott.

Erlent
Fréttamynd

Stuðningur við norsku konungsfjölskylduna í frjálsu falli

Stuðningur Norðmanna við konungsfjölskylduna sína er í frjálsu falli þessa dagana. Samkvæmt nýrri skoðanakönnun á vegum norska ríkisútvarpsins styður 60 prósent Norðmanna konungsfjölskylduna og hlutfallið minnkar um tíu prósentustig á milli mánaða.

Erlent
Fréttamynd

Segir von­brigðin með prinsessuna rista djúpt

Vonbrigði norsku þjóðarinnar með krónprinsessu landsins eftir opinberanir í Epstein-skjölunum og málaferli gegn syni hennar rista djúpt, að sögn Íslendings í Noregi. Norðmenn taki því illa þegar orðstír þjóðarinnar sé í húfi.

Erlent
Fréttamynd

Verða ekki við­stödd réttar­höld stjúp­sonarins

Hákon, krónprins Noregs, og Mette-Marit krónprinsessa verða ekki viðstödd réttarhöld Mariusar Borg Høiby, sonar Mette-Marit. Réttarhöldin hefjast innan viku en meðal 32 ákæruliða sem Marius á yfir höfði sér eru fjórar nauðganir gegn fjórum konum.

Erlent
Fréttamynd

Tjáir sig í fyrsta sinn um bróður sinn

Ingrid Alexandra Noregsprinsessa segir mál hálfbróður síns Mariusar Borg Høiby hafa verið gríðarlega erfitt fyrir norsku konungsfjölskylduna. Prinsessan tjáir sig í fyrsta sinn um málið við norska ríkisútvarpið.

Lífið
Fréttamynd

Norska krónprinsessan í veikinda­leyfi

Norska krónprinsessan Mette-Marit er á leið í veikindaleyfi vegna lungnasjúkdóms og ætlar hún að leita sér meðferðar. Tilkynningin kemur í kjölfar ákæru á hendur syni hennar sem grunaður er um að hafa brotið á fjórum konum.

Erlent
Fréttamynd

Drottningin lögð inn vegna veikinda

Sonja Noregsdrottning var lögð inn á spítala í Osló seint í gær vegna öndunarerfiðleika. Drottningin var útskrifuð af spítalanum í morgun og verður í veikindaleyfi út vikuna. 

Erlent
Fréttamynd

Á­kvað fyrir löngu að fara með ræðuna á ís­lensku

„Við höfum fengið alveg dásamlega fallegar móttökur hérna í Noregi. Ég held að Norðmenn líti á okkur sem sína nánustu frændþjóð og taka á móti okkur sem slíkri,“ segir Halla Tómasdóttir forseti Íslands um ríkisheimsókn forsetahjónanna til Noregs.

Innlent
Fréttamynd

Halla gerði hlé vegna veikinda veislugests

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, þurfti að gera hlé á ræðu sinni við hátíðarkvöldverð sem er hluti af opinberri heimsókn forsetans til Noregs. Það mun hafa verið vegna veikinda eins veislugests.

Innlent
Fréttamynd

Tíma­mót í opin­berri heim­sókn Höllu til Noregs

Það voru tímamót í morgun þegar þrjár kynslóðir norsku konungsfjölskyldunnar tóku á móti Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, og Birni Skúlasyni, eiginmanni hennar, við konungshöllina í miðborg Oslóar. Þar sinnti Ingiríður prinsessa sínu fyrsta opinbera embættisverki í ríkisheimsókn.

Innlent
Fréttamynd

For­seta­hjónin á leið til Noregs

Forsetahjónin auk tveggja ráðherra fara á morgun til Noregs í þriggja daga ríkisheimsók. Þar munu þau meðal annars heimsækja norska Stórþingið, háskóla og viðskiptaviðburð.

Innlent
Fréttamynd

Á leið til Noregs og Sví­þjóðar

Halla Tómasdóttir forseti hefur þegið boð um ríkisheimsóknir til Noregs og Svíþjóðar í vor. Markmið beggja heimsókna er að styrkja enn frekar söguleg tengsl þjóðanna og vinna að sameiginlegum hagsmunum.

Innlent
Fréttamynd

Dregur úr vinnu og verk­efnum

Haraldur V. Noregskonungur sneri aftur til vinnu í morgun eftir að hafa verið fjarverandi síðastliðnar átta vikur vegna heilsubrests. Norska konungshöllin greinir frá því að konungurinn muni draga nokkuð úr verkefnum sínum enda orðinn gamall.

Erlent
  • «
  • 1
  • 2