Pétur Björgvin Sveinsson

Fréttamynd

Full­veldi þjóðar og frelsi ein­stak­lings

Einstaklingur sem leggur hart að sér en sér stóran hluta launanna hverfa í vexti í hverjum mánuði er ekki eins frjáls og hann ætti að vera. Ungt fólk sem kemst ekki að heiman vegna þess að það kemst ekki í gegnum greiðslumat er ekki frjálst til að hefja eigið líf. Par sem frestar barneignum vegna húsnæðisverðs hefur færri valkosti. Eigandi lítils fyrirtækis sem hættir við að fjárfesta vegna vaxtakostnaðar hefur ekki frelsi til að láta hugmyndir sínar verða að veruleika.

Skoðun
Fréttamynd

Mið­flokkarnir tveir í Kópa­vogi

Ég ólst upp í Kópavogi og elskaði það. Spilaði fótbolta með HK í Fossvogsdalnum og hef fylgst með bænum stækka og samfélaginu með. Sá Kópavogur sem ég þekki, hefur alltaf verið samhent og öflugt samfélag. Kosningarnar 16. maí snúast um hvernig við viljum sjá samfélagið í Kópavogi þróast.

Skoðun
Fréttamynd

Kópa­vogur og amma Stella

Nú stendur yfir fyrsta prófkjör Viðreisnar í Kópavogi. Í framboði eru sjö framúrskarandi einstaklingar sem berjast um fyrstu þrjú sætin. Það eru mikil forréttindi að fá að taka þátt í baráttu með fólki sem brennur fyrir samfélagið okkar og er tilbúið að gefa tímann sinn til að láta gott af sér leiða í þágu Kópavogs.

Skoðun
Fréttamynd

Að byggja upp sam­fé­lag

Samfélag er eitt fallegasta íslenska orðið. Það lýsir því sem skiptir öllu máli: að við tilheyrum, að við stöndum saman og að við búum í bæ þar sem öll finna að þau skipta máli.

Skoðun
Fréttamynd

Opin eða lokuð landa­mæri?

Á vísindavef Háskóla er samfélag skilgreint sem: „Hópur fólks sem býr saman í skipulögðum félagsskap. Fólk sem hefur samskipti hvert við annað myndar samfélag, og samfélögin geta verið bæði lítil og stór.“

Skoðun